Fréttablaðið - 30.07.2013, Side 36
30. júlí 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 20MENNING
Sýning VaVaVoom leikhópsins,
Nýjustu fréttir, var valin inn í
Summer hall Theatre í Edinborg þar
sem hún verður hluti af leiklistar-
hátíðinni Edinburgh Fringe Festi-
val 2. til 26. ágúst. Þetta er í fyrsta
sinn sem hópurinn ferðast út fyrir
landsteinana með verkið en það
var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu síð-
astliðið haust. Sýningin hlaut mikið
lof gagnrýnenda hérlendis og tvær
Grímu tilnefningar í flokkunum
Tónlist ársins og Sproti ársins.
Nýjustu fréttir er án orða og
hentar vel til að ferðast með erlend-
is og vonast aðstandendur sýningar-
innar til að Skotlandsförin verði
stökkpallur fyrir frekari ferðalög
og lengi framhaldslíf verksins.
Edinborgarhátíðin er ein stærsta
listahátíð í Evrópu og stendur yfir
í þrjár vikur. Þátttaka í hátíðinni
getur skipt sköpum fyrir leikhópa
sem vilja kynna sig á Bretlands-
eyjum og víðar í Evrópu, þar sem
allir helstu leikhúsgagnrýnendur,
framleiðendur og bókarar mæta á
hátíðina til að kynna sér framboð
nýrra verka. Leikhópar gera sam-
starfssamning við leikhús í borg-
inni um sýningarrými en fjár-
magna þátttöku alfarið sjálfir.
VaVaVoom opnaði því svæði á
Karolina Fund. Þar er hægt að
styrkja hópinn með frjálsum fram-
lögum og fá margvíslegt góðgæti
tengt sýningunni sem þakkarvott
í staðinn, allt frá handskrifuðum
póstkortum frá hópnum í Edinborg
til handgerðra pop-up húsa úr sýn-
ingunni og tónlistar úr verkinu – en
hún hefur ekki verið fáanleg fram
til þessa.
- fsb
Nýjustu fréttir á
Edinborgarhátíðinni
VaVaVoom leikhópurinn er á leið á leiklistarhátíðina
í Edinborg þar sem hann mun sýna Nýjustu fréttir.
SLÓ Í GEGN
Sýningin
Nýjustu
fréttir vakti
einróma
hrifningu
íslenskra
gagnrýn-
enda og
var tilnefnd
til tvennra
Grímu-
verðlauna.
Maður er voðalega fljótur að kom-
ast að styrkleikum og veikleikum
sínum í svona skyndileikhúsi, og
þetta er áskorun. Maður þarf oft
að stíga út fyrir þægindarammann
og hefur ekki langan tíma til að
velta hlutunum fyrir sér,“ segir
Jenný Lára Arnórsdóttir, annar
skipuleggjandi handritasamkeppn-
innar Uppsprettu.
Jen ný og I ng i H ra fn
Hilmars son eru að setja upp
f y r r nefnt sk y nd i le i k hú s .
Upp spretta leitar nú logandi ljósi
að handritum að verkum sem
aldrei hafa verið flutt á sviði áður.
Þau mega vera mest átta blaðsíður
að lengd, eða átta blaðsíðna heil-
steypt atriði. Engar aðrar kröfur
eru gerðar. Síðan verða valin nokk-
ur handrit og þau sem verða valin,
verða sett upp á menningarnótt í
Reykjavík þann 24. ágúst næst-
komandi, sem skyndileikhús.
„Ég hef tvisvar tekið þátt í svona
pop-up leikhúsi áður, en þá sem
leikari. Þetta er mjög skemmti-
legt og það er ekki tími fyrir neitt
vesen,“ segir Jenný, létt í bragði.
Jenný og Ingi eru einnig að aug-
lýsa eftir leikstjórum.
„Um kvöldið, eða þremur
klukkutímum fyrir frumflutning,
fá leikstjórarnir svo að byrja að
vinna með leikurunum og það er
líka í fyrsta sinn sem leikararnir
vita hvaða verk þeir eru að fara
að vinna og með hverjum. Þrem-
ur tímum seinna er svo útkoman
sýnd,“ segir Jenný.
Það hefur lengi blundað í Jen-
nýju að setja upp leikhús af þessu
tagi.
„Ég og Ingi Hrafn, erum bæði
menntuð erlendis og það eru fá
tækifæri fyrir fólk eins og okkur
hérna á Íslandi,“ útskýrir Jenný.
„Þess vegna þarf maður oft að
setja eitthvað upp sjálfur og okkur
fannst þetta alveg tilvalið. Þarna
er auðvelt að ná fólki saman, þó
það sé kannski í annarri vinnu til
að framfleyta sér, því þetta er svo
stutt ferli. Að sama skapi er hægt
að fá mikið út úr svona sýningu,“
bætir Jenný við.
Þegar hefur verið mynduð nefnd
af reyndu leikhúsfólki sem mun
lesa handritin og velja svo úr þau
þrjú handrit sem þeim þykir best.
Leikstjórar og leikarar verða að
hafa lokið viðurkenndu leiklistar-
námi til að taka þátt. Allir sem eru
skrifandi eru hvattir til að senda
inn handrit, en skilafrestur renn-
ur út þann 5. ágúst næstkomandi.
olof@frettabladid.is
Ekki tími fyrir vesen
Ingi Hrafn Hilmarsson og Jenný Lára Arnórsdóttir standa fyrir handritasam-
keppninni Uppsprettu og setja upp skyndileikhús á menningarnótt í Reykjavík.
Ég hef tvisvar tekið
þátt í svona pop-up
leikhúsi áður, en þá sem
leikari. Þetta er mjög
skemmtilegt.
INGI HRAFN Setur upp skyndileikhús. JENNÝ LÁRA Skorar á skrifara.