Fréttablaðið - 30.07.2013, Side 38
30. júlí 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 22
Breska fyrirsætan Cara Delevingne er ein sú allra heitasta í brans-
anum í dag. Cara, sem er tvítug og er af breskum aðalsættum, hefur
helst vakið athygli fyrir áberandi augnumgjörð sína. Þykkar, drama-
tískar augabrúnir hennar þykja til mikillar prýði og munu konur
um heim allan vera að safna til að líkjast henni.
Cara er mikið partídýr og sést iðulega úti á lífinu í félagsskap
stjarna á borð við Rihönnu, Ritu Ora og Georgiu Jagger.
HVERSDAGSLEG OG SÆT Á
Glastonbury.
GRETTIN Cara gerir mikið að því að gretta sig framan í myndavélarnar þegar ljósmyndarar
sitja fyrir henni. NORDICPHOTOS/GETTY
FLOTT Í kokkteilboði í svartri
buxnadragt.
SMART Á göngu í New
York.
EFNILEG
FYRIRSÆTA
Cara
Delevingne
er efnileg
fyrirsæta.
Seiðandi augu
Delevingne
Cara Delevingne er ein vinsælasta fyrirsæta heims í dag.
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 2013
Tónlist
20.30 Hulda Jónsdóttir fiðluleikari frumflytur Vögguvísu fyrir
fiðlu verk eftir Viktor Orra Árnason í Listasafni Sigurjóns Ólafs-
sonar. Einnig leikur hún Ciaccona úr Partítu í d moll eftir Johann
Sebastian Bach, Tempo di Ciaccona úr sónötu fyrir einleiksfiðlu
eftir Béla Bartók, tvær af 24 Kaprísum Niccolò Paganini og Sónötu
fyrir einleiksfiðlu óp. 27 nr. 4 - sem kennd er við Fritz Kreisler - eftir
Eugène Ysaÿe.
Leiðsögn
19.15 Hreggviður Norðdahl jarðfræðingur mun leiða skemmtilega
og fróðlega þriðjudagsgöngu í Viðey og leiða gesti í allan sannleik
um jarðfræði og jarðmyndanir í Viðey. Ókeypis er í gönguna en
gjaldið í ferjuna er 1100 fyrir fullorðna en 550 fyrir börn 7 til 15 ára.
20.00 Í kvöld kl. 20-22 í Hotel Reykjavik Centrum, Forsetasal, er
boðað til fundar með þeim sem hafa áhuga á því að kennsla í heim-
speki og siðfræði verði aukin til muna í íslensku skólakerfi. Allt
áhugafólk um þessi mál er hvatt til að koma á fundinn til stuðnings
þessu málefni. Fundarstjóri verður stjórnarmaður í stjórn Félags
heimspekikennara, Sævar Finnbogason.
20.30 Í kvöld á jazzkvöldi KEX Hostel kemur fram söngvarinn Þór
Breiðfjörð. Dagskráin byggir á þekktum jazzlögum sem gerð hafa
verið fræg í meðförum krúnera á borð við Bing Crosby og fleiri.
Hljófæraleikar eru Vigni Þór Stefánsson á píanó, Steinar Sigurðarson
á saxófón, Birgir Bragason á kontrabassa og Þorvaldur Halldórsson á
trommur. Aðgangur ókeypis.
Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is
og einnig er hægt að skrá þá inni á visir.is.
Leikkonan Lindsay Lohan er útskrifuð úr meðferð
og hefur bókað farmiða til Evrópu, aðra leið. Hún
mun þó snúa til baka til Bandaríkjanna von bráðar
þar sem upptökur á heimildarmyndaröð um líf
hennar hefjast í haust.
Vinir og ættingjar leikkonunnar vonast til að
hún haldi sig frá vandræðum í þetta skipti en hún
hefur hingað til átt erfitt með að fóta sig á beinu
brautinni.
Nú mun leikkonan hafa skrifað lista með nöfnum
fólks sem hefur haft vond áhrif á hana og hennar
lífsstíl í gegnum tíðina. Um sextíu nöfn eru á listan-
um samkvæmt erlendum slúðurfréttum, þannig að
ekki hefur verið skortur á vondum áhrifavöldum.
Lohan á bókað fl ug
aðra leið til Evrópu
ÚT SKRIFUÐ
Lindsay
Lohan er
útskrifuð
úr meðferð
og er á leið
til Evrópu
til að
slappa af.
NORDICPHO-
TOS/GETTY