Fréttablaðið - 30.07.2013, Síða 42
30. júlí 2013 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 26
Mörkin: 1-0 Kristinn Freyr Sigurðsson (15.), 1-1
Ármann Smári Björnsson (17.), 1-2 Garðar Gunn-
laugsson (22.), 2-2 Arnar Sveinn Geirsson (24.),
2-3 Jóhannes Karl Guðjónsson (32.), 3-3 Daniel
Craig Racchi (43.), 4-3 Kristinn Freyr Sigurðsson
(45.), 5-3 Kristinn Freyr Sigurðsson (75.), 5-4
Garðar Gunnlaugsson (89.), 6-4 Daniel Craig
Racchi (92.).
Valur (4-3-3): Fjalar Þorgeirsson 2 - Jónas Þór
Næs 7, Magnús Már Lúðvíksson 4, Stefán Ragnar
Guðlaugsson 3, Bjarni Ólafur Eirkísson 4 - Haukur
Páll Sigurðsson 6, Iain James Williamson - (´13
Andri Fannar Stefánsson 6), Daniel Craig Racchi
8 - Arnar Sveinn Geirsson 7 (´85 Matthías Guð-
mundsson -), Kristinn Freyr Sigurðsson 8* (´88
Sigurður Egill Lárusson -), Indriði Áki Þorláksson 6.
ÍA (4-4-2): Páll Gísli Jónsson 2, Andri Geir
Alexandersson 3, Thomas Sörensen 2, Kári
Ársælsson 1, Joakim Wrele 3 - Andri Adolphsson 5,
Jóhannes Karl Guðjónsson 6, Arnar Már Guðjóns-
son 5, Hafþór Ægir Vilhjálmsson 6 (´46 Einar Logi
Einarsson 4) - Garðar Bergmann Gunnlaugsson 7,
Ármann Smári Björnsson 6.
Skot (á mark): 16-8 (8-6) Horn: 2-8
Varin skot: Fjalar 2 - Páll 2
6-4
Vodavone-völl.
Áhorf: óuppg.
Guðmundur
Ársæll (4)
FÓTBOLTI Knattspyrnumaðurinn
Aron Jóhannsson, leikmaður AZ,
tilkynnti í gær að hann ætlaði sér
að leika með bandaríska lands-
liðinu í framtíðinni en ekki með
hinu íslenska. Leikmaðurinn fædd-
ist í Bandaríkjunum og bjó fyrstu
þrjú ár ævi sinnar þar. Aron hefur
leikið fyrir U-21 landslið Íslands
en aldrei tekið þátt í A-landsliðs-
verkefni og því er hann gjald-
gengur í bandaríska landsliðið.
„Þetta eru vissulega mikil von-
brigði,“ segir Lars Lagerbäck,
landsliðsþjálfari Íslands, í sam-
tali við Fréttablaðið í gær.
„Ég ræddi við hann fyrir nokkr-
um dögum og þá hafði hann ekki
tekið endanlega ákvörðun. Undan-
farna mánuði hef ég oft talað við
Aron um framtíð hans hjá íslenska
landsliðinu og ákvörðun hans kom
mér nokkuð á óvart. Þetta voru
bæði mikil vonbrigði fyrir mig
persónulega og einnig fyrir lands-
liðið í heild sinni.“
Aron sendi frá sér tilkynningu
í gær þar sem hann meðal annars
þakkaði landsliðsþjálfara Íslands
fyrir stuðninginn.
„Ég hef ákveðið að gefa kost á
mér í landslið Bandaríkjanna í
knattspyrnu. Val mitt hefur staðið
á milli þess að spila með íslenska
landsliðinu eða því bandaríska þar
sem ég er með tvöfalt ríkisfang.
Ákvörðunin var ekki auðveld eða
tekin í flýti enda stóð valið á milli
tveggja góðra landsliða,“ skrifaði
Aron í yfirlýsingu sinni.
Að sögn Lars Lagerbäck var ein
aðalástæða Arons fyrir valinu sú
að hann ætti betri möguleika á því
að komast í bandaríska landsliðið
en hið íslenska.
„Ég reyndi að fá hann til að
skipta um skoðun en núna liggur
þetta fyrir og því verð ég að sjálf-
sögðu að virða hans ákvörðun.“
Aron hefur lengi vel verið talinn
einn efnilegasti knattspyrnumaður
okkar Íslendinga en leikmaðurinn
er uppalinn hjá Fjölni í Grafar-
voginum.
„Það er leiðinlegt að missa svona
ungan og efnilegan leikmann til
annarrar þjóðar, en þetta er staðan
í alþjóðasamfélaginu í dag og lítið
sem ég get gert í því núna.“
Lars hefur aftur á móti ekki
miklar áhyggjur af framherja-
stöðunni hjá íslenska landsliðinu
en hlutirnir geta alltaf breyst fljót-
lega.
„Kolbeinn [Sigþórsson] og
Alfreð [Finnbogason] hafa reynst
liðinu vel og framtíðin er björt.
Aftur á móti geta menn alltaf
meiðst eða einhverjir utanað-
komandi þættir haft áhrif og þá
er gott að hafa breiðan hóp. Það er
því mikill missir í leikmanni eins
og Aroni.“
„Ég tel að samkeppnin sé alveg
eins hörð í bandaríska lands liðinu
og hún er í því íslenska og því
þarf Aron að halda vel á
spöðunum.“
Bandaríska landsliðið
mætir Bosníu í vináttuleik
14. ágúst og það er spurn-
ing hvort Jürgen Klins-
mann, landsliðsþjálf-
ari Bandaríkjanna, velji
íslenska framherjann í hóp-
inn, hann er í það minnsta
löglegur með liðinu. Klins-
mann hefur verið í
sambandi við
Aron undan-
farna mán-
uði og telst
l ík legt að
hann taki
þátt í leikn-
um gegn
Bosníu í
ágúst.
stefanp@
fréttabladid.is
Ég reyndi að sannfæra hann
Aron Jóhannsson tók þá ákvörðun í gær að gefa kost á sér í bandaríska landsliðið í knattspyrnu og í leiðinni
útilokar hann að leika nokkurn tímann með íslenska landsliðinu. Landsliðsþjálfarinn ósáttur við ákvörðuna.
MIKILL MISSIR íslenska landsliðið í
knattspyrnu mun ekki geta notfært
sér hæfileika Arons Jóhannssonar, en
leikmaðurinn hefur valið að leika fyrir
bandaríska landsliðið.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI „Ég ber mikla virðingu
fyrir FH og leikmenn mínir vita það.
Auðvitað eru meiri gæði í okkar liði
en í fótbolta er það oft hungrið sem
skilur að. Við verðum að vera tilbúnir
að selja okkur dýrt,“ sagði Nenad
Bjelica, þjálfari Austria Vín, á blaða-
mannafundi í gær.
Fyrri leiks liðanna í 3. umferð for-
keppni Meistaradeildar Evrópu í Vín
er beðið með mikilli eftirvæntingu
enda mikið í húfi. Sigurvegarinn í
einvíginu tryggir sér sæti í umspili
um sæti í riðlakeppni Meistara-
deildar auk þess sem öruggt sæti
í riðlakeppni Evrópudeildar væri
tryggt.
Um 5.500 miðar höfðu verið
seldir á leikinn síðdegis í gær en
um tíu þúsund miðar eru í boði.
Dómari leiksins er skoskur og heitir
Bobby Madden. Flautað verður til
leiks klukkan 16 að íslenskum tíma.
Leikurinn verður í beinni textalýsingu
á Vísi. - ktd
Selja sig dýrt
gegn FH-ingum
FÓTBOLTI Íslandsmeistarar FH mæta
Austria Vín í kvöld í fyrri leik liðanna
í 3. umferð forkeppni Meistaradeildar
Evrópu, en leikurinn fer fram í Vín.
„Það er búið að ræða mikið um
fjárhagslega hlið þessara leikja og
afgreiða það mál innan hópsins,“
segir Heimir Guðjónsson, þjálfari FH,
í samtali við Fréttablaðið í gær.
„Menn einbeita sér bara að
fótboltanum og engu öðru, en svona
hlutir geta auðvitað truflað einbeit-
ingu leikmanna og við urðum að
bregðast við.“
FH tryggir sér rúmlega 500
milljónir íslenskra króna ef liðið slær
Austria Vín út úr Meistaradeildinni.
„Hér eru allar aðstæður til fyrir-
myndar. Völlurinn er frábær sem og
hótelið sem við erum á en hitinn er
reyndar töluvert mikill og verður von-
andi minni þegar leikurinn fer fram.
Við ætlum að liggja til baka og beita
skyndisóknum. Þetta er gríðarlega
sterkt lið og við þurfum að eiga
tvo óaðfinnanlega leiki til að eiga
möguleika.“
Austria Vín tapaði 5-1 fyrir
Salzburg í austurrísku deildinni um
helgina.
„Þeir hafa eflaust hvílt nokkra leik-
menn um helgina.“ - sáp
Við höfum afgreitt allt tal um peninga
EVRÓPUÆVINTÝRI FH leikur fyrri
leikinn við Austria Vín í kvöld. MYND/STEFÁN
SPORT
FÓTBOLTI „Það er mikilvægt
fyrir okkur að ná í stig. Það
væri slæmt að tapa leiknum
því þá myndum við hleypa
ÍBV inn í mótið,“ segir
Þorlákur Árnason, þjálfari
kvennaliðs Stjörnunnar.
Toppliðið úr
Garðabæ sækir ÍBV
heim í 10. umferð
Pepsi-deildar kvenna.
„Við þurfum að
stöðva Shaneku Gor-
don og Vesnu (Smiljkovic). Öll
lið hugsa það. Ef við stoppum
þeirra sterku sóknarmenn
eigum við alltaf möguleika,“ segir
Þorlákur, sem endurheimtir Hörpu
Þorsteinsdóttur, markahæsta leik-
mann deildarinnar, úr leikbanni.
„Það vita allir að við höfum
gríðarlegt magn af góðum
varnarmönnum og miðju-
mönnum en ekki marga
fram á við,“ segir Þorlákur.
Eyjakonur sakna Bryndísar
Jóhannesdóttur, markahæsta
leikmanns síns í efstu deild frá
upphafi, en Bryndís tekur út leik-
bann.
Leikurinn hefst klukkan 18 og er í
beinni á Stöð 2 Sport og Vísi. - ktd
Þurfum að stöðva Shaneku og Vesnu
Árgerð 2009, 211 hestafla bensínvél, sjálf-
skiptur, fjórhjóladrifinn, ekinn 84 þús. km.
Aksturstölva, Xenon aðalljós, leðuráklæði, loftkæling,
álfelgur, hiti í sætum, hraðastillir, þjófavörn,
dráttarbeisli o.fl.
Gæða-
bíll
ASKJA NOTAÐIR BÍLAR Kletthálsi 2 · 110 Reykjavík · Sími 590 2160 · www.notadir.is Opið virka daga kl. 10-18
Tilboðsverð 5.890.000 kr.
*M.v. 3.500.000 innborgun eða uppítökubíl að sambærilegu verðmæti og bílasamning
ERGO í 60 mánuði. 9,7% óverðtryggðir vextir. Árleg hlutfallstala kostnaðar 12,2%.
Afborgun 52.900 kr.*
AUDI Q5 QUATTRO
Verð 6.290.000 kr.