Fréttablaðið - 30.07.2013, Síða 46

Fréttablaðið - 30.07.2013, Síða 46
30. júlí 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 30 „Ég drekk mest af vatni, en engiferölið frá Himnesku er líka í uppáhaldi.“ Katla Ásgeirsdóttir plötusnúður. DRYKKURINN Þegar blaðamann bar að garði á Erps stöðum var einkar líflegt um að litast, en fyrir utan var rúta full af ferðamönnum sem fóru klyfj- aðir vörum frá býlinu. „Ég held að það hafi komið hérna um það bil fimmtán þúsund manns í fyrra, yfir sumartímann, þannig að þetta er hellings traffík,“ segir Helga Guð- mundsdóttir bóndi. „Meira að segja kýrnar eru orðnar vanar heimsóknunum því á vet- urna tökum við líka á móti skólafólki.“ Ábú- endur á Erpsstöðum eru hjónin Þorgrímur Einar Guðbjartsson, frá Kvennahóli á Fells- strönd í Dalasýslu og Helga Elínborg Guð- mundsdóttir, frá Kvennabrekku í Miðdölum í Dalasýslu. Þau eiga fimm börn, sem öll taka virkan þátt í búskapnum. „Við erum hér með 60 mjólkurkýr í lausagöngufjósi, en svo erum við líka með hænur, kindur, hesta, kanínur, naggrísi og svín, svo eitthvað sé nefnt,“ segir Helga. Á Erpsstöðum er einnig rekið rjómabú þar sem þau hjónin framleiða lífrænt ræktaðan ís, osta og skyrkonfekt, sem var þróað og hann- að í samvinnu við námskeið á vegum Lista- háskóla Íslands og hefur vakið mikla lukku. „Grapevine gaf okkur og skyrkonfektinu verðlaun í fyrra fyrir vöru ársins, og varan var svo kynnt á HönnunarMars í fyrra,“ segir Helga og bætir við: „Þetta gengur ágætlega hjá okkur.“ olof@frettabladid.is Gestrisinn bóndi á Erpsstöðum í Dölum Helga Guðmundsdóttir er bóndi á Erpsstöðum í Dölum og rekur þar kúabú ásamt eiginmanni sínum. SVEITASÆLA Helga Guð- mundsdóttir bóndi ásamt dóttur sinni Hólmfríði Tönju og svínunum sem eru nýjustu meðlimir fjöl- skyldunnar á Erpsstöðum. MYND/ÓLÖF „Það er mikil spenna í gangi og ég er alveg haugstressaður,“ segir leikstjórinn Baltasar Kormák- ur, sem staddur er í New York við frumsýningu nýjustu kvikmyndar sinnar 2 Guns. Myndin skartar stórleikurunum Denzel Washing- ton og Mark Wahlberg í aðalhlut- verkum, en Wahlberg fór einn- ig með hlutverk í Contraband sem Baltasar leikstýrði í fyrra. Blaðamaður náði tali af leikstjór- anum fyrir frumsýninguna í gær en þá hafði hann lokið við fjöldann allan af viðtölum ásamt aðalleikur- um myndarinnar. „Þetta er búið að vera algjört maraþon í dag. Pressan verður auð- vitað alltaf meiri og meiri með þess- um stóru verkefnum og það er búið að veggfóðra borgina með plaköt- um og öðru.“ Spurður að því hvern- ig það sé að vinna með reynslubolt- um eins og Denzel Washington og Mark Wahlberg segir Baltasar það hafa verið skemmtilegt en krefjandi. „Denzel er ekk- ert lamb að leika sér við en á móti kemur að hann er alveg frábær leikari. Mark þekki ég orðið vel og við erum orðnir góðir vinir svo það er aðeins auðveldara og þægi- legra, bara eins og þegar ég vinn með íslensk- u m v i n u m mínum.“ Frumsýning- in fór fram í New York þa r sem aðalleikar- arnir eru b á ð i r í verkefn- um á aust- urströnd- inni. Baltas- ar bauð allri fjölskyldunni með sér út og var tilhlökkun- in mikil. „Hér erum við öll, það þarf rútur til að flytja okkur á milli. Ég ákvað að taka alla krakkana með en þetta er fyrsta stóra frumsýningin erlend- is sem þau fá að upplifa og þau eru rosalega spennt.“ Baltasar hefur í nógu að snú- ast en fram undan eru tökur á næstu stórmynd, Everest, og hefst undirbúningur fyrir hana í ágúst. Margir þekkt- ir leikarar hafa verið orð- aðir við myndina, nú síðast þeir Josh Brolin, Jake Gyl- lenhaal, John Hawkes og Jason Clark. Samningaviðræður við leikarana eru í gangi um þessar mundir. „Það er ekki búið að stað- festa þetta alveg en þetta er á síð- ustu metrunum. Tökurnar eiga svo að hefjast í lok október en þetta er að sjálfsögðu allt- af háð breytingum. Þetta lítur hins vegar mjög vel út,“ sagði leik- stjórinn að lokum. kristjana@frettabladid.is Segir Denzel ekkert lamb að leika sér við Baltasar Kormákur var viðstaddur frumsýningu nýjustu myndar sinnar, 2 Guns, í New York í gær. Leikstjórinn bauð allri fj ölskyldunni með sér á rauða dregilinn. Mark þekki ég orðið vel og við erum orðnir góðir vinir svo það er aðeins auðveldara og þægi- legra, bara eins og þegar ég vinn með íslenskum vinum mínum. SPENNTUR EN STRESSAÐUR Balt- asar Kormákur frumsýndi stórmynd- ina 2 Guns í gærkvöld en myndin skartar þeim Denzel Washington og Mark Wahlberg í aðalhlutverkum. GETTY/NORDICPHOTOS í sundlaugum Kópavogs Njóttu lífsins kopavogur.is Sund er dásamleg líkamsrækt, hvort sem þú vilt ná þér í holla hreyfingu, slökun og vellíðan í þægilegu umhverfi eða bara busla og skemmta þér! Sundlaug Kópavogs og Sundlaugin Versölum bjóða frábæra aðstöðu, vatnsrennibrautir og heita potta. Komdu í sund! IP A R\ TB PI PA R\ T W A W A • SÍ A SÍ S Í • 13 19 0 2 9 0 2 31 9 0 2 1 31 9 13 19 13 19 13 19 13 19 13 191 Opið: virka daga: 06.30–22.00 um helgar: 08.00–20.00 Sundlaug Kópavogs Borgarholtsbraut 17–19 Sími 570 0470 Sundlaugin Versölum Versölum 3 Sími 570 0480 lÍs en ku ALPARNIR s Trekking (Petrol og Khaki) Kuldaþol -20 Fyrir líkamsstærð 190 eða 175cm Þyngd 190/1 70, kg o g 17 5/1,65 kg Verð kr. 13.995,- Tjaldasalur - verið velkomin Kúlutjöld - fjölskyldutjöld - göngu tjöld Savana Junior (blár og rauður) Kuldaþol -15°C Fyrir líkamsstærð 150 cm Þyngd 0,95 kg VERÐ 11.995,- Savana (blár) Kuldaþol -15°C Fyrir líkamsstærð 195cm Þyngd 1,45 kg Verð kr. 13.995,- Micra (grænn og blár) Kuldaþol -14°C Fyrir líkamsstærð 195 eða 185cm Þyngd 195/1,0 kg og 185/0,95 kg Verð kr. 16.995,- Stakir stólar kr. 5.995.- Stök borð kr. 5.995.- FAXAFENI 8, 108 REYKJAVÍK SÍMI 534 2727 L A PARNIR@ALPARNIR.IS WWW.ALPARNIR.IS 15.000 til 20.000 kr. afsláttur af hústjöldum + kaupauki borð og stólar í setti að verðmæti 19.995 fylgja með. FYRSTIR KOMA FYRSTIR FÁ Save the Children á Íslandi „Elvis lifir, ég trúi því. Þess vegna segi ég að uppákoman verði dag- inn sem hann fór en ekki á dánar- degi hans,“ segir Jósef Ólason, formaður aðdáendaklúbbs Elvis Presley sem stendur fyrir minn- ingarsamkomu honum til heiðurs þann 16. ágúst næstkomandi. Að sögn Jósefs eru um 2.000 manns skráðir á Facebook-síðu aðdáendaklúbbsins en heildar- fjöldi meðlima er allt að fjög- ur þúsund manns. „Það er mikill fjöldi skráður í klúbbinn enda allir velkomnir. Eina krafan er að hafa áhuga á Elvis og kunna að meta hann og tónlistina hans.“ Samkoman verður haldin í Hvíta riddaranum í Mosfellsbæ og hvet- ur Jósef alla Elvis-aðdáendur landsins til að mæta. „Við viljum sjá sem flesta og það væri gaman ef fólk mætti í búningi eða með greiðslu í hans anda eða eitthvað slíkt. Það er þó engin sérstök krafa um klæðnað, fólk mætir bara eins og það vill. Það er númer eitt, tvö og þrjú að koma saman og minnast kóngsins.“ Sjálfur mun Jósef stíga á svið í fullum Elvis-skrúða og taka nokk- ur lög en einnig verða sýnd mynd- bönd af skjávarpa af tónleikum kóngsins. „Það verður líka opinn hljóðnemi fyrir þá sem hafa áhuga á að vera með atriði en kynnir kvöldsins, Magnús Korntop, er einnig mikill Elvis-aðdáandi og mun halda uppi góðri stemningu.“ - hó Minnast kóngsins á dánardaginn Aðdáendaklúbbur Elvis Presley stendur fyrir samkomu til heiðurs kónginum. KÓNGURINN Jósef „Elvis“ Ólason er formaður aðdáendaklúbbs Elvis Presley á íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.