Fréttablaðið - 30.09.2013, Blaðsíða 10
30. september 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 10
·
·
· ·
ÍTALÍA, AP Ítalskir fjölmiðlar segja Silvio
Berlusconi „snarruglaðan“ að hafa dreg-
ið fimm ráðherra sína út úr ríkisstjórn
Enricos Lettos forsætisráðherra.
Ríkisstjórnin er nú í uppnámi, en Ítalía
má illa við slíkri óvissu þegar glíma þarf
við brýnan efnahagsvanda.
Berlusconi virðist hins vegar hafa
ákveðið að hætta stjórnarsamstarfinu í
von um að efnt verði til þingkosninga sem
allra fyrst.
Ekki er þó víst að honum verði kápan úr
því klæðinu, því þrír af fimm ráðherrum
flokksins hafa gefið í skyn að hugsanlega
muni þeir halda áfram að styðja stjórn
Lettos, þrátt fyrir að gegna ekki lengur
ráðherraembætti.
Einn þeirra sagðist ætla að meta stöð-
una eftir að Letta flytur ræðu á þingi
síðar í vikunni, en að ræðunni lokinni má
búast við að greidd verði atkvæði um van-
traust til stjórnarinnar.
Tilefni brotthvarfs ráðherranna úr
stjórninni er væntanlegt bann við frekari
setu Berlusconis sjálfs á ítalska þinginu.
Dómstólar hafa dæmt hann í fangelsi og
fjögurra ára bann við því að gegna opin-
beru embætti, þar á meðal þingsetu. - gb
Stjórnarmeirihlutinn á Ítalíu í uppnámi eftir að ráðherrar úr flokki Berlusconis segja sig úr stjórninni:
Berlusconi vill kosningar sem allra fyrst
SILVIO BERLUSCONI Fjölmiðlar á Ítalíu brugðust ókvæða við og
segja Berlusconi snar ruglaðan. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
GRIKKLAND Sjötti þingmaðurinn
úr flokki grískra nýnasista, Gull-
inni dögun, gaf sig fram við lög-
reglu í gær. Hann mætti sjálfur
á aðallögreglustöðina í Aþenu og
hafði tekið leigubíl.
Þetta var Christos Pappas,
varaformaður flokksins. „Við
munum snúa aftur. Lengi lifi
Gullin dögun,“ sagði hann áður
en honum var fylgt inn á lög-
reglustöðina.
F o r m a ð u r i n n N i k o l a o s
Michalo liakos var handtekinn á
laugar dag ásamt fjórum öðrum
þingmönnum. Þeir eru Ilias
Kasidiaris, talsmaður flokks-
ins, og Ilias Panajiotaros, Nicos
Michos og Joannis Lagos.
Þeir eru allir sakaðir um aðild
að glæpasamtökum, en sumir eru
einnig sakaðir um líkamsárásir
og peningaþvætti.
Alls situr því þriðjungur þing-
manna flokksins í varðhaldi,
en flokkurinn náði 18 mönnum
inn á þing í kosningunum á síð-
asta ári. Að auki hefur á annan
tug starfsmanna flokksins verið
hand tekinn.
Í kjölfar kreppunnar í Grikk-
landi jókst fylgi flokksins tölu-
vert, en hann hefur barist fyrir
því að innflytjendur og hælis-
leitendur verði reknir úr landi.
Grikkland eigi að vera fyrir
Grikki eina.
Flokksmenn hafa fylgt þessu
stefnumáli sínu eftir af mikilli
hörku, margir farið um götur
með hótunum og ofbeldi og aðfar-
irnar minnt ískyggilega mikið á
þýska nasista á fyrri hluta síð-
ustu aldar.
Upp úr sauð fyrir fáeinum
vikum þegar rapparinn Pavlos
Fyssas var myrtur og maður
tengdur Gullinni dögun játaði á
sig morðið. Fyssas hafði gagn-
rýnt flokkinn opinskátt í textum
sínum.
Frumvarp verður lagt fram á
gríska þinginu í dag, þar sem lagt
er til að Gullin dögun missi fjár-
stuðning úr ríkissjóði.
Mennirnir verða svo leiddir
fyrir dómara á morgun eða mið-
vikudag, þar sem þeir fá tæki-
færi til að bregðast við ákærum.
Haralambos Vourliotis, vara-
saksóknari Hæstaréttar Grikk-
lands, sendi frá sér níu blaðsíðna
skýrslu að lokinni rannsókn á
33 ofbeldisbrotum, sem tengd
hafa verið flokknum. Í skýrsl-
unni segir hann að Gullin dögun
sé rekin eins og glæpasamtök.
Meðal brota sem nefnd eru í
skýrslunni eru tíu morð og morð-
tilraunir ásamt fjárkúgun og
peninga þvætti.
Þetta er í fyrsta sinn síðan 1974
sem þingmenn eru handteknir á
Grikklandi, en þá var grísku her-
foringjastjórninni steypt af stóli
eftir að hafa stjórnað landinu í
sjö ár.
gudsteinn@frettabladid.is
Gaf sig fram
við lögreglu
Yfirvöld á Grikklandi hafa handtekið sex af þing-
mönnum Gullinnar dögunar og saka þá um aðild að
glæpasamtökum. Einn gaf sig fram sjálfur í gær.
NEW YORK, AP Íranar eru reiðu-
búnir til viðræðna um kjarnorku-
áætlun sína en eru þó ekki til í
að gefa það eftir að fá að halda
áfram að auðga úran.
Þetta segir Javad Zarif, utan-
ríkisráðherra Írans, sem nú er
staddur í New York á allsherjar-
þingi Sameinuðu þjóoðanna.
Hann segir Írana krefjast þess
að gegn tilslökunum þeirra verði
alþjóðlegum refsiaðgerðum hætt,
en þær hafa íþyngt írönsku sam-
félagi mjög á síðustu árum. - gb
Íranar tilbúnir í viðræður:
Vilja losna við
refsiaðgerðir
LEIÐTOGINN HANDTEKINN Nikolaos Michaloliakos í lögreglufylgd á laugardaginn.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Flokkurinn var stofnaður árið 1985 en náði ekki miklu fylgi fyrr en í
kosningum árið 2012, þegar hann náði í fyrsta sinn mönnum á þing. Það
ár voru tvennar kosningar, fyrst í maí og aftur í júní. Í maíkosningunum
fékk hann 440 þúsund atkvæði og 21 þingmann en í júní 426 þúsund
atkvæði og 18 þingmenn. Merki flokksins minnir mjög á merki þýskra
nasista. Leiðtogi flokksins, hinn 55 ára gamli Nikolaos Michaloliakos,
hefur nokkrum sinnum áður verið handtekinn, meðal annars fyrir aðild að
hægrisinnuðum þjóðernisöfgasamtökum.
Gullin dögun