Fréttablaðið - 30.09.2013, Page 13
MÁNUDAGUR 30. september 2013 | FRÉTTIR | 13
Ársreikningaskrá RSK
skorar á stjórnarmenn
fyrirtækja sem ekki hafa
skilað ársreikningum fyrir árið
2012 að gera það nú þegar.
Samkvæmt lögum
er skilafrestur liðinn.
Skil á ársreikningi
Skorað er á stjórn félaga að senda nú þegar
til ársreikningaskrár RSK ársreikning félagsins
og samstæðureikning, ef það á við, vegna
reikningsársins 2012.
Áskorun þessi tekur einnig til skila á eldri
ársreikningum hafi þeim ekki verið skilað.
Stjórn ber ábyrgð
Stjórnarmenn bera ábyrgð á því að ársreikningi
sé skilað til ársreikningaskrár.
Viðurlög
Vanskil á ársreikningum geta varðað sektum
frá 250 til 500 þúsund króna.
Ert þú í skilum?
Unnt er að sjá hvaða fyrirtæki eru í vanskilum
á heimasíðu ríkisskattstjóra
http://www.rsk.is/fyrirtaekjaskra/
arsreikningaskra/felog-i-vanskilum/
Athugaðu hvort þitt fyrirtæki er í vanskilum
og skilaðu strax ef svo skyldi vera.
Nánari upplýsingar á www.rsk.is
442 1000
Þjónustuver 9:30-15:30rsk@rsk.is
SJÁVARÚTVEGUR Bæjarráð Akur-
eyrar ætlar að sækja um sérstakar
aflaheimildir til Byggðastofnunar
vegna Hríseyjar.
Í bókun bæjarráðsins segir að
Alþingi hafi samþykkti 25. júní
að Byggðastofnun ráðstafi næstu
fimm fiskveiðiár aflaheimildum
til að „styðja byggðarlög í alvarleg-
um og bráðum vanda vegna sam-
dráttar í sjávarútvegi“.
Kveðst bæjarráðið harma þá
ákvörðun Byggðastofnunar að
taka ekki tillit til Hríseyjar og
Grímseyjar viðð nýtingu þessara
aflaheimilda. Hrísey og Grímsey
standi frammi fyrir miklum vanda,
til dæmis fólksfækkun vegna sam-
dráttar og skorts á aflaheimildum.
„Byggðalögin eru fámenn,
atvinnutækifærin fá og byggist
búseta þar að stórum eða öllum
hluta á sjávarútvegi. Hrísey og
Grímsey eru sem slíkar sérstök
atvinnusvæði þótt þær og Akur-
eyrarbær hafi sameinast í eitt
sveitarfélag þar sem ekki er auð-
velt eða mögulegt fyrir íbúa að
sækja vinnu út fyrir svæðið,“ segir
bæjar ráðið. - gar
Bæjarráð Akureyrar harmar að vera ekki með í úthlutun Byggðastofnunar á aflaheimildum:
Segja Hrísey og Grímsey í miklum vanda
GRÍMSEY
Hrísey og
Grímsey, sem
eru nú hluti
sveitarfélags-
ins Akur-
eyrar, standa
frammi fyrir
alvarlegum
vanda segir
bæjarráðið.
FRÉTTABLAÐIÐ/
BJÖRN ÞÓR
SVEITARSTJÓRNIR Bæjarstjórn
Akraness hefur falið Regínu
Ásvaldsdóttur bæjarstjóra að
taka upp sameiningarviðræður
við sveitarstjórnir Hvalfjarðar-
sveitar, Skorradalshrepps og
Borgarbyggðar.
„Í greinargerð sem fylgdi til-
lögunni kemur fram að á aðal-
fundi Samtaka sveitarfélaga á
Vesturlandi, sem haldinn var
nú í september, hafi innanríkis-
ráðherra greint frá því að sam-
eining sveitarfélaga á Íslandi
yrði ekki þvinguð heldur yrði það
alfarið að vera í höndum sveitar-
félaganna sjálfra að hafa frum-
kvæði að slíkum viðræðum,“
segir í frétt á vef Akranessbæjar.
- gar
Sveitarfélög á Vesturlandi:
Hefja viðræður
um sameiningu
ENGLAND Yfirlögregluþjónn á
Englandi kallar eftir því að
vímuefni í A-klassa verði gerð
lögleg og vímuefnastefna lands-
ins verði endurskoðuð. Frá þessu
greinir á vef The Guardian.
Yfirlögregluþjónninn, Mike
Barton, starfar í Durham og
er einn af reyndustu baráttu-
mönnum Englendinga gegn
glæpum. Hann hefur lagt til
að heilbrigðis yfirvöld gætu
séð fíklum fyrir vímuefnum.
Það myndi þýða að fíkniefna-
salar gætu ekki lengur einokað
markaðinn og glæpagengi myndu
verða af þeim tekjum sem sala á
eiturlyfjum sér þeim nú fyrir.
Hann segist þó ekki vera tals-
maður þess að sala fíkniefna
eigi að vera frjáls. „Það sem ég
er að segja er að fíkniefnum ætti
að vera stjórnað.“ - nej
Enskur yfirlögregluþjónn:
Vill að fíkniefni
verði lögleidd
KJARNORKUVOPN Gunnar Bragi
Sveinsson utanríkisráðherra sat
ráðstefnu um samninginn um
allsherjarbann við tilraunum
með kjarnorkuvopn. Alls hafa
183 ríki undirritað samninginn,
Ísland þar á meðal. Þar af hafa
36 ríki sem búa yfir kjarnorku-
getu undirritað samninginn.
Ráðstefnan var haldin var til
að fleiri ríki gerðust aðilar að
samningnum, að því er segir í
frétt utanríkisráðuneytsins. Enn
þurfa átta ríki að gerast aðilar að
samningnum til þess að hann öðl-
ist gildi þar sem hann kveður á
um að öll ríki með kjarnorkugetu
gerist aðilar. Markmið samnings-
ins er að binda endi á kjarnorku-
vopnatilraunir.
- hrs
Ráðherra á ráðstefnu:
Ræddu bann á
kjarnavopnum
AKRANESS Skoða sameiningu við
næstu nágranna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
GUNNAR BRAGI SVEINSSON Sat Ráð-
stefnu um bann við tilraunum með
kjarnorkuvopn.