Fréttablaðið - 30.09.2013, Page 14
30. september 2013 MÁNUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is HELGAREFNI: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is DÆGURMÁL: Sara McMahon sara@frettabladid.is
VÍSIR: Kristján Hjálmarsson, kristjan@visir.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
FRÁ DEGI
TIL DAGS
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000
eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á
landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
ISSN 1670-3871
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is
Landspítalinn er aðalsjúkrahús landsins og
háskólasjúkrahús. Mikið álag er á starfs-
fólkinu enda hafa rekstrargjöldin lækkað
frá hruni úr um 50 milljörðum króna árið
2008 í um 40 milljarða 2012. Laun eru
stærsti útgjaldaliður spítalans, sem þýðir
að færra starfsfólk ber uppi þjónustuna.
Samt eru 95% sjúklinganna ánægð með
þjónustuna og traust á stofnuninni er með
því mesta sem gerist enda vinnur starfs-
fólkið að því sameiginlega markmiði að
tryggja öryggi og vellíðan sjúklinga.
Blikur á lofti!
Það gengur ágætlega að manna flestar
deildir sjúkrahússins með sérfræðingum
en nú eru blikur á lofi. Starfsfólkið er orðið
langeygt eftir bættum kjörum. Starfs-
aðstæður skipta máli ekki síður en launin.
Margir af þeim sérfræðingum sem snúa
heim að loknu námi kunna vart á þau tæki
sem notuð eru á Landspítalanum því þeir
lærðu á nýrri tækjakost. Æ fleiri setja
þetta fyrir sig. Á þessu ári og tveimur
næstu á að verja einum milljarði árlega í
tækjakaup. En gömlu byggingarnar henta
illa fyrir nýjasta tækjakostinn.
Húsakosturinn
Landspítalinn er á sextán stöðum í um
100 húsum. Óhagræðið er augljóst og
stjórnendur sjúkrahússins leggja áherslu
á að nálægð milli deilda auki öryggi sjúk-
linga. Gamla Landspítalabyggingin var
byggð árið 1930 og flestar hinna bygging-
anna fyrir 1970. Það segir sig sjálft að þær
voru ekki hannaðar fyrir nútíma sjúkra-
húsrekstur. Þjóðin er að eldast og því
mun álag á spítalann aukast mjög á næstu
árum. Endurnýjun á húsakosti sjúkra-
hússins er mikilvæg til að mæta nútíma-
tækni og þörfum. Sjúkrahúsið er hjarta
heilbrigðis kerfisins sem styður alla aðra
heilbrigðisþjónustu í landinu. Fram-
kvæmdin kostar um 60 milljarða eða um
150% af rekstrarkostnaði sjúkrahússins á
ári. Hún sparar einnig tæpa þrjá milljarða
í rekstri árlega með sameiningu starfsem-
innar á einn stað.
Sýnum sama stórhug og þegar fyrstu
byggingar spítalans risu á erfiðum tímum
um 1930. Stöndum við áform fyrri ríkis-
stjórnar, verjum heilbrigðiskerfið okkar
og byggjum upp nútíma húsakost fyrir
Landspítalann.
Hjarta heilbrigðiskerfi sins
HEILBRIGÐIS-
MÁL
Sigríður
Ingibjörg
Ingadóttir
þingkona Sam-
fylkingarinnar og
formaður velferðar-
nefndar Alþingis
E
itt af því sem síðasta ríkisstjórn vann íslenzku atvinnu-
lífi helzt til ógagns var hvernig ráðherrar hennar og
þingmenn stjórnarmeirihlutans margir hverjir virtust
leggja sig fram um að fæla erlenda fjárfesta frá land-
inu. Það var gert með því að flækja skatta- og reglu-
umhverfið, amast við fjárfestingum ef starfsemi viðkomandi
fyrirtækja var stjórnmálamönnunum ekki að skapi og með því að
hóta að breyta reglunum eftir á
eða þjóðnýta fyrirtæki eins og í
Magma-málinu. Hafði sú ríkis-
stjórn þó á stefnuskrá sinni að
auka erlenda fjárfestingu.
Núverandi ríkisstjórn hefur
slíkt markmið hvergi á blaði; í
stjórnarsáttmálanum er bara
talað um að það þurfi að auka
fjárfestingu. Og ýmislegt bendir til að nýja stjórnin hafi ekki
meiri áhuga á að laða að landinu erlent fjármagn en sú gamla.
Ríkisstjórnin hefur lagt umsóknina um aðild að ESB á hilluna
og þar með í raun lýst því yfir að við munum búa áfram við krón-
una og höftin, svo og stórfelldar takmarkanir á erlendri fjárfest-
ingu í einni arðbærustu atvinnugrein landsins, sjávarútveginum.
Forsætisráðherrann hefur lýst því yfir að hann taki ekki mark
á ráðleggingum „útlendra skammstafana“ – það er sérfræðingum
alþjóðastofnana á borð við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og Efnahags-
og framfarastofnunina – um tilhögun efnahagsmála.
Hin þokukenndu áform ríkisstjórnarinnar um róttækustu
skuldaniðurfellingar í heimi hafa ekki stuðlað að því að draga úr
óvissunni í íslenzku efnahagslífi. Það er einmitt óvissan sem er
eitur í beinum alþjóðlegra fjárfesta.
Í tengslum við hin óljósu plön ríkisstjórnarinnar er ítrekað
gefið í skyn að erlendir kröfuhafar í þrotabú gömlu bankanna –
alþjóðlegir fjárfestar – verði píndir dálítið duglega svo að ríkið
eigi fyrir skuldaniðurfellingunum.
Ekkert af þessu skapar jákvætt umhverfi sem heillar fjárfesta.
Forsætisráðherrann fór reyndar á fund til London í daginn og
bað fjárfesta sem hann sátu um að koma með peningana sína til
Íslands. Það var jákvætt merki.
Hins vegar leið ekki á löngu þar til forsætisráðherrann var
spurður út í áhyggjur Samtaka iðnaðarins af flótta tækni- og
þekkingarfyrirtækja úr landi og hann notaði tækifærið til að
koma því skýrt á framfæri að erlendir fjárfestar væru annars
flokks. Erlend fjárfesting væri nauðsynleg í bland við innlenda en
hún væri eins og dýr, erlend lántaka sem væri auðvitað óæskileg
þegar landið skuldaði mikið í erlendri mynt.
Þetta er í fyrsta lagi misskilningur á því hvernig erlend fjár-
festing virkar. Þegar um sprotafyrirtæki er að ræða er hún oft
lífsnauðsynleg vegna þess að henni fylgir sérþekking sem fyrir-
tækin þurfa á að halda. Slík fjárfesting skilur að sjálfsögðu eftir
verðmæti á Íslandi og ef útlendu fjárfestarnir sjá góð tækifæri
endurfjárfesta þeir arðinn hér. Í öðru lagi gerir forsætis-
ráðherrann með þessu lítið úr fjárfestingum íslenzkra fyrirtækja
erlendis. Eru það bara svona græðgisfjárfestingar sem ekkert
skilja eftir í löndunum sem um ræðir? Í þriðja lagi eru þetta enn
ein skilaboðin til erlendra fjárfesta um að þeir skuli halda sig
fjarri. Var það örugglega það sem við þurftum núna?
Hvernig gengur að fá innspýtingu í atvinnulífið?
Annars flokks
erlendir fjárfestar
Biskupinn og Graham-feðgar
Þrátt fyrir að fáir velkist í vafa um
að staða og ímynd þjóðkirkjunnar
hafi batnað stórum eftir að Agnes
M. Sigurðardóttir tók við embætti
biskups Íslands er hún ekki alfarið
laus við vandræðalegheit. Þjóð-
kirkjan, eða nokkrar sóknir
innan hennar hið minnsta,
var formlegur þátttakandi
í Hátíð vonar um helgina
þar sem Grahamfeðgar
fóru fremstir í flokki með
ráðum og dáð.
Snúinn bókstafur
Eins og margoft
hefur komið fram
eru Graham-feðgar
hluti af gríðar-
fjölmennri kreðsu
heittrúarfólks sem lætur einskis
ófreistað við að koma í veg fyrir að
ákveðinn hluti samfélagsins njóti
sjálfsagðra mannréttinda. (Það er
ekki rétt að kalla þá bókstafstrúar-
menn því að bókin þeirra er svo
uppfull af innri mótsögnum að það
væri að æra óstöðugan að reyna að
fylgja því öllu upp á punkt og prik,
auk þess sem mikill skortur yrði
brátt á augum og tönnum.)
Graham hver
Þrátt fyrir að biskup hafi
sannarlega leitt
byltingu í við-
horfum innan
kirkjunnar til
hinseginfólks
og kvittað
fyrir þá
stefnu í samtali við Franklin
Graham, tók hún og fleiri þjónar
kirkju allra landsmanna engu að
síður þátt í hátíðinni sem Graham-
feðgar fóru fyrir. Það er ekki trúlegt
að starfsfólk Biskupsstofu hafi ekki
vitað fyrir fram fyrir hvað þeir
stæðu og því var fráleitt að
ganga til liðs við þá í þess-
ari uppákomu. Og já... þið
sem rifuð upp regnboga-
gangbrautina við Laugar-
dalshöll, til hamingju
með víðsýnina og
gangi ykkur vel að
útskýra það fyrir
hverjum þeim
sem þið ávarpið
áður en þið farið
í háttinn.
thorgils@frettabladid.is
➜ Margir af þeim sérfræðingum
sem snúa heim að loknu námi
kunna vart á þau tæki sem notuð
eru á Landspítalanum því þeir
lærðu á nýrri tækjakost.
Alveg mátulegur
Heimilis
GRJÓNAGRAUTUR
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA