Fréttablaðið - 30.09.2013, Page 18
FÓLK|HEIMILI
ÉLIVOGAR
Motturnar
eru hand-
unnar úr ís-
lenskri ull og
vöktu athygli
á hönnunar-
vikunni í
London og í
Peking nú í
september.
MYNDIR/ÉLI-
VOGAR
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Kolbeinn
Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Við fengum frábærar við-tökur,“ segir Sigrún Lára Shanko, önnur tveggja
hönnuða sem standa að teppa-
verksmiðjunni Élivogum, sem
framleiðir handunnin teppi á gólf
og veggi úr íslenskri ull. Élivogar
tóku þátt í sýningunni 100% De-
sign í London fyrr í mánuðinum.
Eftir sýninguna í London lá
leiðin beint til Kína á hönnunar-
vikuna í Peking sem lauk nú fyrir
helgina.
„Við fengum strax boð um að
taka þátt í Peking Design week,“
segir Sigrún. „Það þykir áhuga-
vert að teppin okkar eru unnin úr
íslenskri ull, náttúrlegum
trefjum og að framleiðslan
fari fram á Íslandi.“
Fyrirtækið stofnaði
Sigrún í samvinnu við
Sigríði Ólafsdóttur,
vöru- og textílhönnuð,
fyrir tveimur árum.
Munstrin sækja þær
til loftmynda af ís-
lensku landslagi,
ám og jöklum en þær frumsýndu
fyrstu teppin á HönnunarMars
2012. Síðan hefur boltinn ekki
stoppað.
„Við hittum tengilið 100%
Design á HönnunanMars í fyrra
og sýndum teppin í framhaldinu í
Helsinki. Eftir það var okkur boðið
að taka þátt í 100% Design London
strax í fyrrahaust en höfðum ekki
tök á því fyrr en núna. Þetta eru
ótrúlega spennandi viðtökur en
svo verðum við bara að sjá til
hvort þetta leiðir eitthvað meira
af sér, vonandi.“
Nánar má forvitnast um
hönnun og framleiðslu Élivoga á
Facebook og á www.elivogar.is.
■ heida@365.is
SÝNA Í LONDON OG PEKING
HÖNNUN Teppaverksmiðjan Élivogar tók þátt í hönnunarsýningum í London og Peking í september.
Élivogar framleiða handunnin teppi úr íslenskri ull.
LANDSLAG Munstrin eru sótt
í íslenskt landslag.
VEL TEKIÐ
Fyrstu teppin
voru sýnd á
Hönnunar-
Mars 2012
og vöktu
þá strax
athygli
útsendara
100%
Design í
London.
NÁTTÚRULEGT Teppin eru endurnýtan-
leg nánast að fullu en náttúrulegar trefjar
eru notaðar við framleiðsluna.
Hjartaheill og Neistinn biðla til landsmanna um að leggja fé til söfnunarinnar en það er hægt
með þrennum hætti: greiða valgreiðslu
í heimabanka, hringja í styrktarsíma
eða leggja beint inn á reikning söfnunar-
innar ef um hærri fjárhæðir er að ræða.
Hjarta- og æðasjúkdómar eru skæðustu
sjúkdómar veraldarinnar í dag og þeir
sem krefjast flestra mannslífa. Í hverj-
um mánuði eru framkvæmdar um 200
hjartaþræðingar og aðgerðir á Hjarta-
þræðingarstofu Landspítalans. Það eru
hátt í 2.400 aðgerðir á hverju ári.
MARGT SMÁTT GERIR EITT STÓRT
Valgreiðslan er að sögn Ásgeirs Þórs
Árnasonar, framkvæmdastjóra Hjarta-
heilla, ósköp hófleg, eða aðeins 1.000
kr. „Við höfum leitað til fjölskyldnanna
í landinu til þess að leggja okkur lið.
Stofnuð hefur verið valgreiðsla á hverja
fjölskyldu í landinu og að sjálfsögðu er
öllum í sjálfsvald sett hvort þeir vilja
styðja átakið eða ekki. Hverja fjölskyldu
munar kannski ekki svo mikið um 1.000
kr. en það safnast þegar saman kemur,“
segir Ásgeir.
ÞAÐ ER LÍFSNAUÐSYNLEGT AÐ
STYTTA BIÐTÍÐMANN
Núverandi tækjakostur spítalans
dugar engan veginn og af þeim þremur
tækjum sem hjartadeildin hefur yfir að
ráða er eitt þeirra fyrir löngu komið á
tíma. Gestur Þorgeirsson, yfirlæknir
á Hjartadeild Landspítalans, segir að
elsta hjartaþræðingartæki á Land-
spítalanum sé nú orðið 16 ára gamalt
og aðeins tímaspursmál hvenær það
gefur sig alveg. „Úti í heimi eru menn að
nota þessi tæki í 6-8 ár en okkur hefur
tekist að nýta þetta tæki í 16 ár. Það er
þó orðið vonlítið að fá varahluti í svona
gamalt tæki; enginn sem sinnir þessu
lengur. Það er því alveg nauðsynlegt að
endurnýja það sem fyrst. Verkefnin eru
fjölmörg og margvísleg, svo sem þræð-
ingar, kransæðavíkkanir og brennsluað-
gerðir á aukabrautum og hjartsláttar-
truflunum, auk þess sem nýlega er farið
að koma fyrir hjartalokum í þræðingu.
Til þess að ráða við verkefnin þarf þrjú
góð þræðingartæki. Með nýju tæki gefst
tækifæri til að stytta biðtímann í þessar
aðgerðir verulega.“
Allar nánari upplýsingar um söfn-
unin má fá á vefnum hjartaheill.is eða á
facebook.com/hjartaheill.
SAFNA FYRIR NÝJU
ÞRÆÐINGARTÆKI
HJARTAHEILL KYNNIR Hjartaheill og Neistinn hrundu um helgina af stað
átaki til söfnunar fyrir nýju hjartaþræðingartæki á hjartadeild Landsspítala. Í
dag eru 260 manns á biðlista eftir hjartaþræðingu sem er óviðunandi ástand.
HJARTAÞRÆÐIRNIR
Styrkjum hjartaþræðina
heitir verk eftir Einar
Guðmundsson, graf-
ískan hönnuð. Verkið
er tákn söfnunarinnar.
Á myndinni eru einnig
starfsmenn Hjartaheilla.
MYND/GVA
■ ÍSLENSK HÖNNUN
Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir
hönnuður flytur erindi á spjall-
fundinum Hönnuðir hittast, á
Bergsson Mathús á miðviku-
dag. Yfirskriftin er Þátttaka í
alþjóðlegum hönnunarhátíðum
og munu Ingibjörg Hanna og
hönnuðir Tulipop deila sinni
reynslu.
„Ef stefnan er sett á erlendan
markað er mikilvægt fyrir ís-
lenska hönnuði að taka þátt í er-
lendum sýningum til að komast
í samband við verslanir, dreif-
ingaraðila og blaðamenn og
ekki síst til að kynnast öðrum
hönnuðum,“ segir Ingibjörg
Hanna. „Slík þátttaka er þó stór
fjárfesting og því mikilvægt að
skoða vel hvar er best að sýna.“
Farið verður yfir hvernig
undirbúningi skuli háttað
og hvernig fá megi sem
mest út úr sýningum
erlendis.
Hönnunarmiðstöð
Íslands stendur fyrir
reglulegum spjallfundum
fyrsta miðvikudag í mán-
uði á Bergsson Mathús
í Templarasundi 3. Sjá
nánar á www.honn-
unarmidstod.is.
HÖNNUÐIR
HITTAST
Hnitmiðað og skemmtilegt nám fyrir þá sem vilja kynnast Íslandi í máli og myndum.
Námið er opið öllum þeim sem áhuga hafa á að læra hvernig standa skal að
leiðsögn erlendra og innlendra ferðamanna um Ísland.
-Flest stéttarfélög styrkja nemendur til náms.
-Nemendur geta að námi loknu gerst félagsmenn í Leiðsögufélaginu
Helstu námsgreinar:
- Helstu viðkomustaðir ferðamanna á Íslandi í máli og myndum.
- Mannleg samkipti, leiðsögutækni, hestar, fuglar og flóra. Framsaga.
- Saga landsins, jarðfræði, bókmenntir og listir, menningartengd ferðaþjónusta.
- Skipulagðar ferðir og afþreyingaferðir. Ritgerðaverkefni og margt fleira.
Leiðbeinendur eru þaulvanir leiðsögumenn og sérfræðingar hver á sínu sviði.
Boðið er uppá dag – og kvöldnám, auk þess er farið í fjölda vettvangsferða.
Umsögn:
Leiðsögunámið í Ferðamálaskóla Íslands bætti miklu við þekkingu mína á
landinu sem og sögu og menningu þjóðarinnar. Þessir þættir voru ofnir saman
á einkar áhugaverðan og skemmtilegan hátt og kryddað margs konar fróðleik
og frásögnum. Auk þess spannaði námið allt frá leiðsögutækni til laxveiðáa,
frá skyndihjálp til skógræktar og frá hvalafræðum til hverasvæða svo nokkuð sé
nefnt. Skipulag námsins var sveiganlegt en með ákveðnu aðhaldi stjórnenda sem
skapaði gott andrúmsloft í þessum alþjóðlega hópi nemanda. Þessum tíma var
mjög vel varið hvort sem maður hyggur á ferðaleiðsögn eða ekki.
LEIÐSÖGUNÁM
VIÐURKENNT STARFSNÁM AF ATVINNULÍFINU
Opið 8-22
Magnús Jónsson
fv. veðurstofustjóri