Fréttablaðið - 30.09.2013, Qupperneq 29
AUGLÝSING: VITABIOTICS KYNNIR
Sjá nánar á visir.is/lifid
www.facebook.com/vitabioticsvitamin
Allir geta fundið vítamín við sitt hæfi innan Vitabiotics-línunnar. Vítamínin eru hugsuð á þann veg
að fólk geti tekið eina vítamíntöflu sem inniheldur allt sem viðkomandi þarf á að halda. Allar töfl-
urnar eru með sama steinefna- og fjölvítamíngrunninn, þannig að allir fá nauðsynleg grunnvítamín
sem líkaminn þarfnast, en hver og ein tegund inniheldur svo alls kyns aukavítamín og bætiefni
sem henta þörfum markhópsins hverju sinni. Til dæmis eru til töflur fyrir konur og karla á öllum
aldri, heilann og minnið, íþróttafólk, ófrískar konur, börn, konur á breytingaskeiði og svo mætti
lengi telja.
Vitabiotics-vítamínin eru þau mest seldu á Bretlandi. Þá hefur fyrirtækið tvisvar sinnum hlotið kon-
unglegu verðlaunin „The Queen“s Awards for Enterprise“ í Bretlandi. Einstök vítamín frá Vitabiotics
hafa einnig hlotið ýmis verðlaun, til dæmis frá Boots-keðjunni í Bretlandi.
Vitabiotics-vítamínin fást í flestum apótekum sem og völdum dagvöruverslunum eins og Krónunni,
Hagkaupum og Fjarðarkaupum.
HVAÐA VÍTAMÍN HENTAR ÞÉR?
ALLT Í EINNI TÖFLU
DIETRIM
Í dag eru í boði á markaðnum margar tegundir svokall-
aðra brennslutaflna, sumar jafnvel ekki hollar heilsu fólks
þegar til lengri tíma er litið. Með Dietrim er farin ögn raun-
særri og heilbrigðari leið í áttina að markmiðunum og er
vítamínið þróað til þess að hjálpa fólki við að halda heil-
brigðum efnaskiptum í líkamanum, samhliða heilbrigðu
mataræði og hreyfingu. Dietrim er þróað af leiðandi nær-
ingarfræðingum og hefur verið vandlega sett fram til þess
að vinna sem best samhliða náttúrulegu efnaskiptaferli
líkamans.
WELLWOMAN
Við konur erum að vonum mjög frábrugðnar karlpeningn-
um á marga vegu. Því veltir maður fyrir sér hvers vegna
við ættum að taka nákvæmlega sömu vítamínblönduna
og karlmenn. Wellwoman-vítamínið er blanda af vítamín-
um og steinefnum í magni og samsetningu, sem er sér-
staklega þróuð til þess að henta hinni uppteknu nútíma-
konu sem er alltaf á ferðinni. Þessi háþróaða vítamín-
blanda hjálpar þér m.a. að viðhalda heilbrigði húðarinnar,
réttri orkulosun og sterku ónæmiskerfi og inniheldur að
auki náttljósa- og stjörnublóms-olíur sem hafa góð áhrif
á jafnvægi hormóna í tíðahringnum.
WELLWOMAN 50+
Wellwoman 50+ formúlan inniheldur meðal annars
andoxunarefni, D3-vítamín og lúteín til þess að styðja
við lykilþætti í heilsu kvenna sem komnar eru yfir fimm-
tugt. Þessu lykilþættir í heilsu kvenna snúa einna helst að
hjartavernd, heilastarfsemi og sjón. Vítamínin innihalda að
auki öll nauðsynleg vítamín til þess að viðhalda heilbrigð-
um og athafnasömum lífsstíl.
WELLWOMAN SPORT&FITNESS
Næringarþarfir líkamans aukast til muna þegar við hreyf-
um okkur. Wellwoman Sport&fitness töflurnar innihalda
góða samsetningu af mikilvægum næringarefnum sem
hjálpa okkur að vernda okkar hefðbundnu næringu svo
hún nýtist sem best í kringum æfingar. Mikilvæg samsetn-
ing af L-Carnitine og alfa-lípó-sýru getur einnig stutt við
líkamlega getu og efnaskipti vöðva líkamans. Vítamínið er
einnig gott fyrir þá sem vilja viðhalda alhliða góðri heilsu,
þrótti og orkulosun og getur jafnvel gert þér auðveldara
að vakna á morgnana.
PERFECTIL PLATINUM
Perfectil Platinum er sérsniðið til þess að fága, næra og
vernda húðina gegn ummerkjum öldrunar með því að
veita kraftmikla og öfluga samsetningu af líffræðilega
virkum innihaldsefnum. Þar með talið er hágæða colla-
gen, sólberjafræjaolía ásamt fleiru. Hagstæð næringar-
samsetning fyrir húðina er gríðarlega mikilvæg og þjón-
ar jafnvel meiri tilgangi en flest dýr rakakrem þar sem
árangurinn næst í gegnum blóðflæðið og þar með frá
dýpsta og mikilvægasta hluta húðarinnar. Auk þess inni-
heldur Perfectil efni sem eru talin nauðsynleg fyrir hár-
sekkina og frumuvöxt, ásamt jurtakrafti sem stuðlar að
heilbrigðu útliti.
... á hreyfingu
... alltaf á ferðinni
... falleg húð, hár og neglur
... á besta aldri
... línurnar í lag