Fréttablaðið - 30.09.2013, Blaðsíða 32
Meistaramánuður MÁNUDAGUR 30. SEPTEMBER 20136
Ég var að skrá mig!“ segir Vil-borg Arna Gissurar dóttir, ævintýrakona og pólfari,
glaðlega þegar blaðamaður nær
í skottið á henni úti í Noregi. Vil-
borg er í afar góðu formi en seg-
ist lengi hafa langað til að verða
betri hlaupari en ekki haft tíma
til að sinna því. „Ég hef tekið þátt
í Reykjavíkurmaraþoni og var að
hlaupa hálfmaraþon í Ósló án
þess þó að hafa æft mig mikið,“
segir Vilborg. Hún hefur það að
markmiði í meistaramánuðinum
að hlaupa þrisvar í viku. „Núna
veit ég að ég kemst vegalengdirn-
ar en langar að bæta tæknina og
reyna mig við tímamörk,“ segir
hún en hlaupin eru fjarri því að
vera eina markmið hennar í októ-
ber. „Annað markmið er að klifra
í Klifurhúsinu tvisvar í viku,“ upp-
lýsir hún, en eftir mánuð ætlar Vil-
borg að klífa hæsta tind Eyjaálfu í
Indónesíu en það er hluti af lang-
tímamarkmiði hennar að fara á
hæsta fjallstind í hverri heims-
álfu. „Ef allt gengur upp klára ég
tindana sjö á Everest í maí.“
Vilborg hefur góða reynslu af
því að setja sér markmið. „Lengi
framan af áttaði ég mig ekki á
mikilvægi markmiðasetningar
en síðan fattaði fegurðina í því að
setja sér markmið,“ segir Vilborg.
Hún telur það afar stefnumótandi
fyrir það sem fólk langar til að
gera. „Maður upplifir sigurtilfinn-
ingu við að ná einhverjum tiltekn-
um endapunkti,“ segir Vilborg og
tekur fram að stór og yfirþyrm-
andi markmið þurfi ekki að virð-
ast óyfirstíganleg. „Maður verður
að brjóta þau niður í smærri mark-
mið þannig að maður hafi alltaf
viðráðanlegt markmið í augsýn,“
segir hún. Mikilvægt sé síðan að
fagna hverjum sigri.
Hún segir ekki slæmt að gera
mistök. „Við gerum öll mistök en
í raun eru þau ekki mistök nema
maður læri ekki af þeim. Maður
má ekki refsa sér svo mikið að
maður hætti heldur halda áfram
og finna hvernig maður getur gert
betur næst.“ Vilborg segir mark-
miðasetningu algert töfratæki
fyrir sig. „Fyrir vikið verð ég mjög
einbeitt í því sem ég er að gera og
forgangsraða betur. Ég þrái mark-
miðin svo heitt að ég læt lítið
freistast.“
Markmið eru fögur
Vilborg Arna Gissurardóttir pólfari vill verða betri hlaupakona og æfir
klifur í meistaramánuðinum. Hún segir fegurð felast í að setja sér markmið.
Vilborg Arna Gissurardóttir ætlar að synda og klifra í meistaramánuðinum.
MYND/PÁLÍNA ÓSK HRAUNDAL
SKIPULAGIÐ Í SÍMANN
Fjölmörg smáforrit (app) eru til sem hjálpa símnotendum við að
skipuleggja tíma sinn. Eitt þeirra heitir Any.do og milljónir símnotenda
nota það um allan heim. Smáforritið, sem er afar einfalt í notkun og
smekklega hannað, fæst bæði fyrir Android- og iPhone-síma. Það er til
margra hluta nytsamlegt og kemur að mestu leyti í stað allra gulu minnis-
miðanna, minnisbókanna
og innkaupalistanna.
Með því má skipu-
leggja ýmsa viðburði
í einkalífi og vinnu,
til dæmis fundi,
innkaupalista
og afmælis-
áminningar.
Einnig er
hægt að
taka upp
raddskilaboð
og þá skrifar
forritið upp
það sem
notandinn
segir. Þegar
lokið er við
verkefnið eða
atburðinn er
hann strikaður
út með fingr-
inum og merkist
sem frágengið. Til að
þurrka út frágengin
atriði dugir að hrista símann
og þá hverfa þau. Any.do gerir þér
einnig kleift að deila verkefnum með öðrum
símnotendum, til dæmis maka eða vinahópi.
Þannig getur par sett upp innkaupalistann saman
og vinir skipulagt viðburði. Notendur smáforritsins geta
svo sótt viðbót við Chrome-vafrann sem gerir þeim kleift að
skrá inn minnispunkta við tölvuna sem fara beint í síma viðkom-
andi. Sama fyrirtæki og setti Any.do á markað hefur einnig hannað
smáforrit fyrir dagatal sem heitir einfaldlega Cal. Það tengist beint við
Any.do og setur upp daga símaeigandans á skemmtilegan hátt.
Meistaramánuðurinn gjör-breytti lífi mínu,“ segir Elísabet Ólafsdóttir, vef-
umsjónarkona hjá Ríkisútvarpinu.
Elísabet var atvinnulaus þegar
hún fyrst tók þátt í meistara mánuði
árið 2011 og fékk draumastarfið á
síðasta degi mánaðarins.
„Ég hafði verið í atvinnuleit eftir
fæðingarorlof og gerði allt sem
í mínu valdi stóð til að uppfylla
markmið mín en eitt af þeim var að
fá vinnu áður en meistara mánuður
var úti. Þann 31. október, síðasta
dag mánaðarins, bauðst mér svo
draumastarfið en bókstaflega allir
sem mig þekkja höfðu haft samband
þegar sú atvinnuauglýsing birtist
svo hún færi ekki fram hjá mér.
Þannig var það kannski meistara-
leg tilviljun að ég endaði í drauma-
starfinu á RÚV síðasta meistaradag-
inn og kannski ekki.“
Elísabet segist þegar hafa verið
byrjuð að taka til í sjálfri sér þegar
hún ákvað að taka þátt í meistara-
mánuði.
„Ég fann að taktík meistara-
mánaðarins hentaði mér því það
skiptir sköpum að skrifa niður
markmið sín. Að vita hvað maður
vill er nefnilega hálf leiðin, hvort
sem fólk kallar það að biðja,
„secret-a“ eða annað. Markmiðin
þurfa þó að vera raunhæf og mikil-
vægt að ætla sér ekki um of,“ segir
Elísabet, sem kveðst vera meistari
að upplagi. Því hafi markmið henn-
ar verið ólík markmiðum flestra
sem taka þátt í meistaramánuði til
að bæta lífsstílinn.
„Ég er svo heppin að vera A-
manneskja að eðlisfari. Ég reyki
hvorki né drekk og vakna skæl-
brosandi klukkan hálfsjö á morgn-
ana yfir því að kominn sé nýr dagur
með fjölskyldunni. Það er dásam-
legt að líða þannig, jafnvel þótt það
hljómi svolítið væmið,“ segir Elísa-
bet brosmild.
Í fyrra setti hún sér meistara-
mark mið um að vera frábær
mamma, leika við barnið sitt, baka
og vera húsfrú, og í ár ætlar hún að
lesa inn á hljóðbækur og fleira sem
setið hefur á hakanum.
„Meistaramánuður snýst um
að gera mann hamingjusaman og
ánægðan með sjálfan sig. Markmið
eru svo jafn ólík og fólkið er margt.
Mánuðurinn snýst um að skoða
hvar einstaklingurinn stendur, hvað
hann vill og hvort hann geti náð
þangað. Mér þótti uppörvandi að
fylgjast með meistaramánuðinum
á Facebook og sjá venjulegt fólk etja
kappi við drauma sína, hvort sem
það var að bjóða í kaffi og baka tvær
sortir, hlaupa maraþon eða horfa á
gott sjónvarp með poppi og kók.“
Elísabet er mörgum kunn undir
viðurnefninu Beta rokk en segist nú
vera kölluð Beta beikon.
„Reyndar kom matur aldrei við
sögu í meistaramánuði mínum
því ég var löngu byrjuð að taka til í
sjálfri mér og komin í 12 spora kerfi
matarfíkla með afbragðs árangri.
Svo lengi sem ég sleppi Snickers og
fæ mitt beikon og egg hefur verið
áreynslulítið að losna við fjörutíu
kíló á fjórum árum.“
Meistaraleg
tilviljun
Betu beikon
Elísabet Ólafsdóttir fékk draum sinn uppfylltan
þegar hún tók fyrst þátt í meistaramánuði með
háleit og skýr markmið. Hún segir
meistara mánuðinn snúast um að gera fólk
hamingjusamt og ánægt með sjálft sig og að
markmiðin geti snúist um smákökubakstur til
maraþonhlaups og allt þar á milli.
Elísabet Ólafsdóttir er ein af þeim heppnu og fékk draumastarf hjá RÚV í meistaramánuði. MYND/GVA