Fréttablaðið - 30.09.2013, Qupperneq 34
KYNNING − AUGLÝSINGSjónvörp MÁNUDAGUR 30. SEPTEMBER 20132
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmenn auglýsinga: Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is, s.512-5447
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
OZ-appið var sett á markað í upphafi sumars og hefur fengið frábærar við-tökur. Það gefur notendum færi á að
horfa á beinar sjónvarpsútsendingar í snjall-
símum og spjaldtölvum auk þess sem hægt
er að safna eftirlætis sjónvarps efninu til að
horfa á síðar. Að sögn Steingríms Árna sonar
hjá OZ hafa á annan tug þúsunda Íslend-
inga nú þegar hlaðið því niður og ríkir mikil
ánægja með það. „Notendur OZ-appsins eru
á öllum aldri og nýta það til margvíslegra
nota. Nú stýra þeir sjálfir hvar og hvenær
þeir horfa á sjónvarpið. Þar sem er einungis
eitt sjónvarp á heimili er nú hægt að horfa á
aðra sjónvarpsstöð gegnum OZ-appið. Svo
er hægt að safna eftirlætis sjónvarpsefninu
saman og horfa á síðar, hvort sem um er að
ræða þætti, bíómyndir eða barnaefni. Engin
takmörk eru fyrir því hversu miklu efni má
safna og hægt er að taka upp á öllum sjón-
varpsrásum sam tímis.“ Hægt er nota OZ-
appið gegnum farnet (3G og 4G) og því lítið
mál að horfa á sjónvarp á kaffihúsi eða uppi
í sumar bústað.
Nýjungar framundan
Fyrstu mánuðina var OZ-appið eingöngu
í boði fyrir iPhone síma, iPad spjald tölvur
og iPod touch. Á næstunni verða ýmsar
nýjungar kynntar til sögunnar. „Android
snjallsímar hafa verið að sækja í sig veðrið
hérlendis og má segja að um 30% Íslendinga
hafi ekki getað notið OZ-upplifunarinnar til
þessa. Það er því einkar ánægjulegt að til-
kynna að OZ fyrir Android er í lokaprófun
og hefur teymið unnið hörðum höndum að
því að færa OZ-upplifunina yfir á nýtt stýri-
kerfi. Einnig munum við kynna endurbæt-
ur á næstu dögum í Apple App Store. Þar má
nefna mest umbeðnu viðbótina, sjálfa leit-
ina. Að auki höfum við einfaldað viðmótið
enn frekar og aukið alla snerpu.“
Að sögn Steingríms hefur OZ lagt gríðar-
mikla áherslu á gæði og náð góðum árangri
þar. „Þar ber helst að nefna tvennt; áður
óþekkt gæði yfir 3G og síðan 50 ramma á
sekúndu á sportstöðvum, í stað 25 ramma.
Nokkuð sem gerbreytir upplifun á sporti í
sjónvarpi.“
Tengt við Apple TV
Sú nýjung fylgir OZ-appinu fyrir sjón-
varpsáhorfendur að hægt er að spóla allt
að klukkutíma til baka í beinum útsending-
um. „Þetta er sérstaklega mikil bylting fyrir
íþróttaunnendur. Hægt er að skoða mörkin
aftur eða umdeild atvik til dæmis í beinni
útsendingum eða fara betur yfir stöðu mála
í hálfleik. Sumar beinar íþróttaútsending-
um eru líka á erfiðum tíma fyrir okkur Ís-
lendingar, til dæmis NBA-körfuboltinn sem
er oft sýndur um nætur. Þá er einfalt mál að
taka hann upp og horfa á leikinn yfir kaffi-
bollanum morguninn eftir.“
Séu notendur einnig með Apple TV er
hægt að tengja iPhone símann eða iPad-inn
við sjónvarpstækið og horfa þannig á sjón-
varpið. „Þá virkar tækið eins og fjarstýring,
hvort sem verið er að horfa á beina útsend-
ingu eða efni úr safninu.“ Hægt er að nálg-
ast appið á OZ.com.
Risastökk fyrir sjónvarpsáhorfendur
Nú geta sjónvarpsáhorfendur ráðið hvar og hvenær þeir horfa á sjónvarpið. OZ-Appið hefur fengið frábærar móttökur en með því er
hægt að horfa á beinar sjónvarpsútsendingar og safna sjónvarpsefni. Bráðlega verða hægt að nota OZ-appið fyrir Android snjallsíma.
OZ-appið hefur fengið frábærar viðtökur að sögn Stein-
gríms Árnasonar hjá OZ. MYND/ÚR EINKASAFNI
Áhorfendur gera kröfur um skarpa mynd í nútímasjónvarpi. Ís-
lenskar sjónvarpsstöðvar hafa komið til móts við þessar kröfur með
háskerpu útsendingum. Háskerpan fæst þó einungis í HD-flatskjá.
Háskerpuútsending er margföld myndupplausn þannig að gæði
myndefnis aukast til mikilla muna.
Bjarni Farestveit hjá Heimilistækjum segir að viðskiptavinir í
sjónvarpsleit geri miklar kröfur. „Full háskerpa skiptir miklu máli og
að hún sé 200 rið eða meira, smart TV er það sem margir eru að velta
fyrir sér dag. Fólk vill komast inn á netið í sjónvarpinu. Flestir vilja
hafa usb-tengi þannig að það sé hægt að taka mynd úr tölvunni og
horfa á hana í sjónvarpinu. Einnig skiptir máli að hafa þrívídd þótt
það sé kannski ekki notað mikið. Helmingur af sjónvarps tækjum
í dag er með þrívídd. Mjög margir vilja hafa möguleika á að setja
myndir úr tölvunni þráðlaust í sjónvarpið. Aðrir vilja hafa Skype eða
myndavél í sjónvarpinu þannig að fólk veltir mikið fyrir sér mögu-
leikum sjónvarpsins þegar það er í kauphugleiðingum. Sjónvarpið
er eiginlega orðið að tölvu líka og langflestir spyrja um þetta atriði,“
segir Bjarni.
Gömlu túbusjónvörpin eru algjörlega úrelt og bjóða ekki upp á þá
tækni sem nútíminn kýs að hafa. Þar utan eru myndgæðin ekkert í
líkingu við það sem þekkist nú. Langflestir eru með nettengt sjón-
varp.
Sjónvarp en líka tölva
Fólk gerir miklar kröfur um nýjustu tækni þegar það kaupir sjónvarp.
Shameless
Hunted
Amazing
Race
Graceland
X Factor
Krakkastöðin fylgir
með áskrift að Stöð 3
+ +Stöð
2.990 kr.
á mánuði.
FYLGIR
áskrift
að Stöð 2
7:00 | 11:00 | 15:00 8:00 | 12:00 | 16:00 9:00 | 13:00 | 17:00
Teiknimyndir kl 19:00Dagskrá
10:00 | 14:00 | 18:00
7:25 | 11:25 | 15:25 8:25 | 12:25 | 16:25 9:25 | 13:25 | 17:25 10:25 | 14:25 | 18:25
7:50 | 11:50 | 15:50
Lesnar sögur og skjámynd kl. 20:30 - 22:00
8:50 | 12:50 | 16:50 9:50 | 13:50 | 17:50 10:50 | 14:50 | 18:50
Bráðlega geta eigendur Android snjallsíma notað
OZ-appið.