Fréttablaðið - 30.09.2013, Blaðsíða 36
KYNNING − AUGLÝSINGSjónvörp MÁNUDAGUR 30. SEPTEMBER 20134
1930-1940
Sjónvarpið var formlega kynnt til sög-
unnar á heimssýningunni í London árið
1939. Áður höfðu stöðvar á borð við NBC
og CBS þó verið með útsendingar í nokkur
ár. Sjónvarpstæki voru stærðarinnar tæki
með litlum tólf tommu skjá. Í Bandaríkj-
unum kostuðu slík tæki milli 400 og 500
dollara en meðalárslaun á þeim tíma voru
um 1.300 dollarar.
Á dagskrá: Þáttagerð var af skornum
skammti. Sýnt var frá kosningum, box-
leikjum og sagðar fréttir.
Þekktustu sjónvarps-
upptökur þessara
ára voru
frá ól-
ympíu-
leikun-
um í
Berl-
ín árið
1936.
Tækninni hefur fleygt fram
Saga sjónvarpstækja er ekki ýkja löng, en fyrsta sjónvarpið var formlega kynnt til sögunnar árið 1939. Þróun tækjanna var fremur
hæg fyrstu áratugina en hin síðustu ár hefur tækninni fleygt óðfluga fram.
1940-1950
Heimsstyrjöldin síðari setti nokkurt strik
í reikninginn þegar kom að þróun sjón-
varps. Meira púðri var varið í stríðsrekst-
ur og þróun samskipta- og ratsjártækni.
Þróunin stóð þó ekki alveg í stað því
tæknin á bakvið litasjónvarpið var kynnt
til leiks á fyrri hluta áratugarins. Það var
einnig á svipuðum tíma sem sjónvarps-
auglýsingar urðu til.
Meðan á stríðinu stóð var sjónvarpið
notað til að miðla upplýsingum og smyrja
áróðursvélina. Á eftirstríðsárunum varð
sprenging í sölu sjónvarpstækja í Banda-
ríkjunum. Tvær tegundir voru algengar.
Annars vegar sjónvörp sem byggð voru
inn í skáp og hinsveg-
ar tæki sem hægt var
að tilla ofan á önnur
húsgögn.
Á dagskrá: Sjón-
varpsstjörnur á
borð við Milton
Berle, Ed Sullivan
og Howdy Doody
stíga fram í dags-
ljósið.
1950-1960
Sjötti áratugurinn hefur af
sumum verið kallaður gullöld
sjónvarpsins. Almenningur hafði
meira á milli handanna og fjár-
festi í heimilistækjum. Við lok
1951 voru til að mynda átta millj-
ón sjónvarpstæki í Bandaríkj-
unum. Litasjónvarpið var þróað
áfram og fjarstýringin fund-
in upp. Fæstir áttu þó slík tækni-
undur.
Auglýsingar og kostaðir þætt-
ir urðu æ algengari. Sápu óperur
voru til dæmis nefndar eftir
þvottaefni sem kostuðu síðdegis-
þættina í sjónvarpinu.
Við lok áratugarins kost-
aði svart/hvítt sjónvarp um 200
dollara og litasjónvarp með 21
tommu skjá næstum 500 dollara.
Sjónvörp voru við lok áratugarins
á nærri 90 prósent bandarískra
heimila.
Á dagskrá: I Love Lucy, The
Honeymooners, Father Knows
Best, Leave It to Beaver og the
Lone Ranger.
1960-1970
Sjónvörp urðu ódýrari og
ekki eins fyrirferðarmik-
il og áður. Við lok áratug-
arins er talið að um 200
milljónir sjónvarpstækja
hafi verið til í heiminum
öllum.
Á dagskrá: Fréttir í sjón-
varpi voru vinsælar og
fylgst var með myndum af
morðinu á Kennedy, geim-
skotum og stríðinu í Víet-
nam. Teiknimyndirnar um
Flintstones voru vinsælar en
aðrir vinsælir þættir voru The Andy Griffith
Show, My Three Sons, Bewitched, „Batman og Star Trek.
1970-1980
Fyrsta gervihnattaútsendingin var árið 1972. Framleiðsla stóru svart/
hvítu sjónvarpstækjanna dróst mjög saman. Á áttunda áratugnum kom
fram á sjónvarpssviðið vídeótæknin sem gerði fólki í fyrsta sinn kleift að
taka upp þætti úr sjónvarpinu.
Á dagskrá: All in the Family, Saturday Night Live, Happy Days, The
Brady Bunch og Sesame Street.
1980-1990
Sjónvarpstækin þróuðust lítið á níunda
áratugnum. Hinsvegar varð ör þróun í
fylgihlutum. Þó vídeótækið hafi verið
kynnt til leiks á áttunda áratugnum varð
það ekki vinsælt fyrr en á þeim níunda.
Þá varð gríðarleg sprenging í leikjatölv-
um sem hægt var að tengja við sjónvarp,
til dæmis Nintendo. Fjarstýringar urðu
þarfaþing á hverju heimili.
Á dagskrá: Gamanþættir urðu gríðar-
vinsælir. Þættir á borð við Roseanne, The
Cosby Show, Cheers, Family Ties og Married
with Children. Þá voru teiknimyndaþætt-
irnir Simpsons frumsýndir árið 1989.
1990-2000
Tækninni fleygði fram á tíunda áratugn-
um sérstaklega með tilkomu internetsins.
Sjónvarpstækni á borð við Plasma og LCD
var í þróun á þessum árum. Venjuleg túbu-
sjónvörp voru enn algengustu sjónvarps-
tækin en ýmis ný tækni var fáanleg í þeim.
Til dæmis að vera með mynd í mynd, texta-
varp og tímastillingar. Þá stækkuðu tækin
mikið á þessum árum. Árið 1996 var einn
milljarður sjónvarpstækja í veröldinni.
Fyrsta Plasma-sjónvarpstækið kom á
markað árið 1997 og LCD-sjónvörp voru
einnig í boði en kostuðu afar mikið. Hás-
kerpusjónvörp komu á markað árið 1998 og
á þessum tíma gátu sjónvörp farið að taka
við stafrænum útsendingum í stað analog-
sendinga.
Fyrsta stafræna upptökutækið, DVR,
kom á markað árið 1999 svo fólk gat tekið
upp sjónvarpsþætti og geymt á hörðum
disk.
Á dagskrá: Vinsælir þættir voru
Friends, Seinfeld, Twin Peaks og The
Simpsons. Kapalstöðvar
urðu fyrirferðar-
meiri og fram-
leiddu þætti á
borð við The
Sopranos og Sex
in the City.
2000-
DVD spilarar tóku við af vídeótækjun-
um. Raunar var DVD-tæknin kynnt ára-
tug áður en náði ekki vinsældum fyrr. Í
upphafi áratugarins voru DVD-spilarar á
7 prósent heimila en við lok hans á yfir 80
prósent heimila í Bandaríkjunum.
Flatskjáir hófu innreið sína. Framfarir í
LCD- og Plasma-tækni urðu til þess fram-
leiðsla slíkra sjónvarpa jókst og verðið
lækkaði. TiVo varð vinsælt í Bandaríkjun-
um. Þannig gat fólk gert hlé á þáttum eða
geymt þætti til að horfa á
seinna. Slík
tækni hefur
hafið inn-
reið sína á Ís-
landi und-
anfarin ár
með tilkomu
VOD, Leigu
Vodafone og
Tímaflakks.
Útsending-
ar urðu staf-
rænar. DVD
og Blu-ray kepptust
um vídeómarkaðinn líkt og VCR og
Betamax 30 árum
fyrr.
Internetið og sjónvarpið tengdust nán-
ari böndum. Ólöglegt niðurhal á þáttum
varð vandamál sem enn er óleyst. Apple
setti á markað Apple TV árið 2007. Með því
má þráðlaust tengja saman tölvu og sjón-
varp og nýta þannig sjónvarpsskjáinn til
að sýna það sem gert er í tölvunni. Svip-
uð tækni hefur komið frá öðrum fyrirtækj-
um á borð við Microsoft og
Pana sonic.
Nýjasta æðið er síðan þrí-
víddarsjónvarp. Enn eru slík
tæki mjög dýr en margir telja
að slík tæki muni verða vin-
sæl í framtíðinni.
Á dagskrá: Raunveru-
leikaþættir verða gríðarlega
vinsælir til dæmis American
Idol og Survivor. Aðrir vin-
sælir þættir eru Friends og
CSI.