Fréttablaðið - 30.09.2013, Qupperneq 37
KYNNING − AUGLÝSING Sjónvörp30. SEPTEMBER 2013 MÁNUDAGUR 5
Þetta hefur verið ótrúlega viðburðaríkt ár hjá okkur í Vodafone. Við höfum verið að að bæta við vöruframboð okkar og
aðgengi á öllum vígstöðvum það sem af er ári.
Fyrr á árinu háskerpuvæddum við Leiguna
okkar og bættum verulega við vöruframboð-
ið, tugir nýrra sjónvarpsstöðva komu í dreif-
ingu, samhliða því að hefja Ljósnetsvæðingu
sjónvarpsins okkar. Nú í lok sumars fór svo
Tímaflakkið í loftið og hafa viðtökurnar verið
framar björtustu vonum,“ segir Jens Sigurðs-
son, vörustjóri sjónvarps hjá Vodafone.
Þú stjórnar sjónvarpinu
Tímaflakkið er algjör bylting fyrir sjónvarps-
áhorfendur. Nú er hægt að endurræsa dag-
skrárlið og horfa frá byrjun allt að sólar-
hring aftur í tímann. Þetta er hægt að gera
hvort heldur sem atburðurinn er enn í út-
sendingu eða liðinn. „Ég er sjálfur með þrjú
börn á heimilinu og við hjónin erum mjög oft
í þeirri stöðu að þegar börnin eru komin í ró
eru þeir dagskrárliðir sem okkur langar að
horfa á ýmist nýhafnir eða búnir í sýningu.
Áður þurfti að bíða eftir að þátturinn kæmi
inn í frelsið til að horfa á hann, sem gat tekið
nokkrar klukkustundir. Núna getum við ein-
faldlega horft á þáttinn þegar við höfum tíma
og ýtt á pásu ef okkur langar að poppa eða
stíga upp úr sófanum af öðrum ástæðum.“
Láttu viðmótið minna þig á atburði
„Við höfum líka bætt við áminningarnar
okkar, þannig að nú getur þú látið við mótið
minna þig á dagskrárliði, einu sinni, daglega
eða vikulega og þannig missir þú aldrei af
uppáhaldsefninu þínu. Ef þú missir af því þá
bara Tímaflakkar þú því,“ segir Jens.
Leigan í örum vexti
Leiga Vodafone hefur tekið stórt stökk á þessu
ári en þar geta notendur leigt sér þúsund-
ir kvikmynda og sjónvarpsþátta í sófanum
heima. Notkun á þessari þjónustu hefur vaxið
gífurlega á síðustu árum að sögn Jens. „Á
sama höfum við verið að auka við vörufram-
boðið jafnt og þétt og hefur það nærri tvöfald-
ast á síðasta ári. Nú erum við með samninga
við öll stærstu kvikmyndaver í heimi sem og
innlenda rétthafa á efni sem telur nú rúmlega
4.000 titla,“ segir Jens og bendir á að Leigan
hafi tekið enn eitt stökkið fyrr á árinu þegar
nýjar stórmyndir fóru að koma í háskerpu.
Áhyggjulausir foreldrar
Foreldrar geta skilgreint út frá aldurs-
takmörkunum hvers konar efni má leigja. „Við
erum mjög hreykin af því sem hefur áunnist
á síðasta ári og sem foreldri er ég sérstaklega
stoltur af þeim öryggis- og aðgengismálum
sem við höfum innleitt,“ segir Jens en hægt
er að verja allt efni með PIN-númeri og vera
áhyggjulaus gagnvart notkun barnanna.
Dreifing og útbreiðsla stóreykst
Sjónvarpskerfi Vodafone er í örum vexti bæði
í landi og lofti. „Við hófum útbreiðslu Ljósnets
Vodafone nú í vor en með ljósnets tengingu
færðu meiri hraða en með hefðbundinni net-
tengingu. Því getum við boðið fleirum upp á
sjónvarpið okkar í háskerpu og fleiri mynd-
lykla. Það er þó ekki eina breytingin því
Vodafone og Skjárinn gerðu með sér samning
fyrr á árinu sem tryggir allt stöðva framboð
þeirra á okkar kerfum. Viðskiptavinir Voda-
fone geta nú náð öllum þeim stöðvum sem
eru í dreifingu hér á landi.“
Í vor undirrituðu Vodafone og RÚV samn-
ing um uppbyggingu nýs dreifikerfis í lofti
sem mun ná til 99,8% landsmanna og allra
helstu sumarhúsasvæða. „Við munum á
næstu 18 mánuðum byggja upp Digital Ís-
land-dreifikerfið okkar í lofti og veita stafrænt
sjónvarp á ný svæði og auka stöðvaframboðið
víðs vegar um landið,“ segir Jens.
Þarf ekki að slást um fjarstýringuna
Með auknum nethraða er hægt að bjóða upp á
fleiri myndlykla á hvert heimili. „Við bjóðum
frá tveimur til sjö myndlykla á heimili en
það fer eftir nettengingu heimilisins. Einn-
ig höfum við boðið internetviðskiptavinum
okkar Digital Ísland-myndlykil án endur-
gjalds sem hægt er að nota í aukaherberginu
eða taka með sér í sumarbústaðinn. Þannig
leysum við ólíkar þarfir og smekk fjölskyld-
unnar.“
Framtíðin
Vodafone lætur ekki þar við sitja og næsta
skref í bættri þjónustu er þegar komið af
stað. „Á næstu misserum stefnum við að því
að bjóða sjónvarpsþjónustur okkar yfir enn
fleiri dreifileiðir,“ upplýsir Jens.
Viðburðaríkt ár hjá Vodafone
Sjónvarpsþjónusta Vodafone hefur vaxið og dafnað á síðastliðnu ári. Leigan er í örum vexti og fyrr á þessu ári kom háskerpan þar
inn. Fjöldi nýrra sjónvarpsstöðva kom í dreifingu, Tímaflakkið var tekið í notkun, sem eykur á þægindi áhorfandans og
ljósnetsvæðing Vodafone-sjónvarps hófst.
Jens Sigurðsson hjá Vodafone segir árið hafa verið viðburðaríkt.