Fréttablaðið - 30.09.2013, Page 44
Meistaramánuður MÁNUDAGUR 30. SEPTEMBER 201310
Þorsteinn Kári er umsjónar-maður sjónvarpsþáttarins Meistaramánuður sem frum-
sýndur var á Stöð 2 síðastliðinn
fimmtudag. „Ég vinn þessa þætti
með Karen Kjartansdóttur frétta-
manni en þeir verða sex talsins. Við
fáum sérfræðinga til að ræða um
ýmis atriði varðandi sjálfsskoðun,
skipulagningu og markmiðasetn-
ingu. Við spyrjum til dæmis hvað
þarf að tileinka sér til að setja sér
skýrari og betri markmið. Einnig
ætlum við að fylgjast með þátttak-
endum í Meistaramánuði. Vonandi
fáum við skemmtilegar reynslusög-
ur,“ svarar Þorsteinn þegar hann er
spurður út í þættina.
Meðal viðmælenda í fyrsta þætt-
inum voru tvær ungar og hugrakk-
ar stúlkur, önnur glímir við geð-
hvörf en hin hjartasjúkdóm. „Við
spurðum þær hvernig þær nýta
sér Meistaramánuðinn með því
að setja sér ákveðin markmið. Þá
er rætt við fólk um þau takmörk að
verða betri manneskjur og ná betri
takti í lífinu,“ segir Þorsteinn.
Þorsteinn og vinur hans, Magnús
Berg Magnússon, voru í námi á
sama tíma í Kaupmannahöfn. Þeir
ræddu oft um hvernig þeir gætu
breytt lífi sínu til betri vegar til
að ná meiri einbeitingu í námi, til
dæmis með því að borða hollari
mat, vakna fyrr á morgnana, sleppa
áfengisdrykkju um helgar og þess
háttar. „Einn daginn tókum við þá
ákvörðun að gera eitthvað róttækt
í málunum og skora hvor á annan í
einn mánuð. Við ákváðum að vakna
klukkan hálfsex á morgnana og fara
út að hlaupa en ég hafði ekki hreyft
mig lengi á þessum tíma. Tappinn
var settur í flöskuna og við breytt-
um mataræðinu til betri vegar. Á
nokkrum dögum fundum við mik-
inn mun á okkur. Maður mætti út-
hvíldur, hress, kátur og orkumikill
í skólann. Það var ótrúlegt hversu
miklu við komum í verk fyrir há-
degi. Þegar maður fer að reyna á
sig, ögra sér og gera kröfur til sín
verður það smátt og smátt auðvelt
og kemst upp í vana. Það sem er
svo áhugavert við þetta er að þess-
ir þrjátíu dagar duga til að breyta
lífsviðhorfinu til betri vegar,“ segir
Þorsteinn.
Hann segist hafa verið mikill
b-maður og þess vegna sé það
skemmtilegt hversu vel honum
tókst að stilla líkamsklukku sína
upp á nýtt. „Ef maður er skipulagð-
ur og heiðarlegur við sjálfan sig er
ótrúlegt hversu hægt er að áorka á
stuttum tíma. Ég er mun betur á
mig kominn líkamlega en ég var
þótt ég hafi aldrei hugsað þetta
sem megrun. Með aukinni hreyf-
ingu og betra mataræði kemur hitt
af sjálfu sér.“
Meistaramánuður snýst þó ekk-
ert endilega um hreyfingu eða
mataræði heldur alls kyns áskor-
anir. „Það er ákveðið hópefli sem
fer í gang í Meistaramánuðinum
en markmiðin geta verið mismun-
andi; lesa fleiri bækur, læra að elda,
nota tannþráð á hverjum degi, fara í
myndlistarnám eða bara láta gamla
drauma rætast.“
Við fáum
sérfræðinga til
að ræða um ýmis atriði
varðandi sjáfsskoðun,
skipulagningu og
markmiðssetningu.
Markmið geta breytt lífsgæðum
Þorsteinn Kári Jónsson, einn upphafsmanna Meistaramánaðar, breytti lífi sínu til frambúðar árið 2008 þegar hann setti sér
markmið í einn mánuð. Nú taka fleiri þúsund manns þátt í Meistaramánuði.
Þorsteinn Kári Jónsson, einn upphafsmanna Meistaramánaðar, ákvað að taka sig í gegn og setti sér ákveðin markmið sem hann hefur
fylgt. Hann stýrir nýjum þáttum um Meistaramánuð á Stöð 2. MYND/PJETUR
SPURT OG SVARAÐ
En kostar þetta ekki alltof mikinn pening?
Meistaramánuðurinn á ekki að þurfa að kosta krónu með gati. Í fyrsta
skipti sem Meistaramánuðurinn var haldinn tóku aðeins sárafátækir
háskólanemar þátt og nutu þess að gera ódýru og einföldu hlutina
saman. Hvort sem það er að fara út að skokka, læra að hnýta flugur,
elda meira með fólkinu sem manni þykir gott að vera með eða að
hætta að keyra í vinnuna verður hver og einn að finna sér markmið við
sitt hæfi. Það á jafnt við um fjárhag, aldur, staðsetningu og alla aðra
hluti sem marka lífsstíl þinn.
Ég get ekki vaknað snemma á morgnana, hvað á ég að gera?
Flestum ef ekki öllum þykir erfitt að vakna þreyttir á morgnana, enda
er þetta einn af þessum hlutum sem fólk þarf að venja sig á. Gott ráð
til þess að koma sér upp úr morgunmyglunni fljótt og örugglega er að
hugsa ekki um það að fara á fætur sem fyrstu athöfn dagsins heldur að
vakna alltaf og byrja á því að fá sér stórt vatnsglas. Bæði þarf líkaminn
oft vatn eftir átta tíma svefn og einnig er ágætt að sleppa því hreinlega
að snúsa eða að velta deginum fyrir sér og byrja hann tafarlaust á ein-
hverju sem gerir þér gott.’
Byrjaðu hægt og leitaðu góðra ráða hjá fagfólki, kunn-
ingjum þínum eða hreinlega með því að kynna þér
þetta á netinu. Sumar líkamsræktarstöðvar eru með
byrjendanámskeið til dæmis. Það gæti verið
tilvalin byrjun. Inn á Facebook-síðu Meistara-
mánaðarins munum við setja inn tengla á
hlaupa- og sundæfingaplön og jafnvel eitt-
hvað fleira sem gæti
hjálpað.
App sem
þú þarft
Nýtt í spjaldtölvuna og snjallsímann
Nú er komið app fyrir Fréttablaðið:
Fáðu Fréttablaðið ókeypis í spjaldtölvuna og snjall-
símann með nýja Fréttablaðsappinu. Nú er hægt að
nálgast Fréttablaðið hvar sem er, á hverjum morgni.
Sláðu inn Fréttablaðið á Google Play, Windows
store eða í App store og náðu í appið.