Fréttablaðið - 30.09.2013, Side 70
30. september 2013 MÁNUDAGUR| MENNING | 30
„Uppáhaldsmánudagslagið mitt
er Get Lucky með Daft Punk ft.
Pharrell Williams. Það er eitthvað
svo mikil gleði yfir þessu lagi að ég
dett aldrei í neinn mánudagsblús.“
Guðrún(gúrý) Finnbogadóttir fatahönnuður í
Kaupmannahöfn.
MÁNUDAGSLAGIÐ
„Það eru til rosalega margar tón-
listarhátíðir og þær mega margar
hverjar vinna hlutina af meiri fag-
mennsku,“ segir Tómas Young,
starfsmaður ÚTÓN.
Mikill meirihluti forsvars-
manna íslenskra tónlistarhátíða
getur hugsað sér samstarfsvett-
vang fyrir hátíðirnar, meðal ann-
ars með því að sækja sameiginlega
um styrki til að kynna hátíðirnar
með öflugri hætti innanlands og
alþjóðlega.
Þetta kemur fram í niður-
stöðum nýrrar skýrslu um stöðu
íslenskra tónlistarhátíða sem
var unnin af Tómasi. Um var að
ræða samstarfs verkefni ÚTÓN og
Ferðamálastofu.
Heimasíður tónlistarhátíðanna
voru skoðaðar í þeim tilgangi að
sjá hversu vel þær eru settar fram.
Niðurstöður voru þær að margar
hátíðir er vel með á nótunum en
aðrar heimasíður voru illa uppfærð-
ar og vantaði mikið af upplýsingum.
„Það sést augljóslega hvaða hátíðir
eru unnar í sjálfboðastarfi eða sem
hliðarverkefni,“ segir Tómas. - fb
Íslenskar hátíðir starfi saman
Tómas Young hjá ÚTÓN gerði skýrslu um stöðu íslenskra tónlistarhátíða.
TÓMAS YOUNG Tómas gerði skýrslu
um stöðu tónlistarhátíða á Íslandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Ég hrífst af öllu sem kemur blóð-
inu á hreyfingu og er með mótor,“
segir fjölmiðlakonan Sigríður
Elva Vilhjálmsdóttir sem kemur
til með að stýra sjónvarpsþátt-
unum Á fullu gazi ásamt Finni
Thorlacius. Þættirnir hefja göngu
sína í nóvember og eru í anda Top
Gear.
Að sögn Sigríðar Elvu eiga
þættirnir að höfða jafnt til þeirra
sem eru með króníska bíladellu
og hinna er vilja aðeins gott sjón-
varpsefni. „Finnur, sem er maður-
inn með sérfræðiþekkinguna,
hafði gengið með hugmyndina í
nokkurn tíma. Yfirmenn mína
á Stöð 2 rámaði eitthvað í að ég
væri með tækjadellu og því var ég
fengin sem meðstjórnandi,“ segir
hún.
Sigríður Elva eignaðist sitt
fyrsta barn í apríl og tekur þætt-
ina upp í miðju fæðingarorlofi.
„Dóttirin mætir með í smink og
myndatökur og verður líklega á
hliðarlínunni á meðan á tökum
stendur, enda er hún enn á brjósti
og því ekki hægt að skilja hana
eftir heima. Tökur hefjast eftir
tvær vikur og ég hlakka til að
komast aðeins af heimilinu og
leika mér að tryllitækjum eftir
fimm mánuði í brjóstaþoku,“ segir
hún og hlær.
Aðspurð kveðst Sigríður Elva
ekki keyra um á glæsikerru, þótt
hana dreymi um að eignast slíka.
„Ég keyri um á sjö ára gömlum
Toyota Aygo sem er með vél á við
garðsláttuvél. Ég átti áður Hondu
CRX á „low profile-dekkjum“ og
með tvöfalt púst sem vakti öfund
flestra unglingspilta. Því miður
varð ég að skipta á þeim bíl og
yfirbyggðu sláttuvélinni.“
Spurð út í draumabílinn segir
hún að hana langi helst að eignast
stökkbreyttan ofurjeppa. „Svo ég
gæti farið um hálendið. Mig hefur
reyndar líka alltaf dreymt um að
eignast skriðdreka, en það væru
ópraktísk kaup þegar maður býr á
Laugaveginum.“ sara@frettabladid.is
Dreymir um að
eignast skriðdreka
Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir er annar stjórnenda bílaþáttarins Á fullu gazi.
MEÐ TÆKJADELLU Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir stýrir þættinum Á fullu gazi með Finni Thorlacius. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
„Þetta voru mjög heit og mikil við-
brögð, sem komu mér eiginlega á
óvart. Ég get ekki verið annað en
þakklátur. Útlendingar skilja mig,“
segir Benedikt Erlingsson, leikstjóri
Hross í oss.
Kvikmyndin var frumsýnd á
hátíðinni San Sebastian á Spáni á
mánudaginn við góðar undirtektir.
Benedikt var þar staddur en þurfti
að fljúga snemma heim ásamt leik-
aranum Ingvari E. Sigurðssyni
vegna æfinga fyrir leikritið Jeppi
á fjalli.
Enska blaðið The Guardian gefur
myndinni, sem kallast á engilsax-
nesku Of Horses and Men, mjög
góða dóma. „Sum atriðin eru ótrú-
lega opinská og hreint ótrúleg.
Kvikmyndir sem sýna manni hluti
sem maður hefur aldrei séð áður
eru ekki á hverju strái. Samt tekst
henni að vera viðkvæmnisleg, falleg
og fyndin,“ sagði gagnrýnandinn.
Hross í oss hefur verið boðið á
aðalkeppnina á alþjóðlegu kvik-
myndahátíðinni í Tókýó, sem er ein
sú stærsta í Asíu. Einnig verður hún
opnunarmynd Lübeck-hátíðarinnar
í Þýskalandi í nóvember og verður
sýnd á kvikmyndahátíðinni í Gauta-
borg í janúar.
Þar fyrir utan verður Hross í
oss framlag Íslands til Óskarsverð-
launanna sem verða afhent á næsta
ári. „Ég er afskaplega þakklátur
öðrum kvikmyndagerðarmönnum
fyrir að hafa valið okkur. Ég ætla
að reyna að standa mig vel.“ - fb
Útlendingarnir skilja Benedikt Erlingsson
Gagnrýnandi enska dagblaðsins The Guardian gefur kvikmyndinni Hross í oss afb ragðsgóða dóma.
ÁNÆGÐUR LEIKSTJÓRI
Benedikt Erlingsson á frumsýningu
Hross í oss hér á landi ásamt merinni
Brák frá Arnbjörgum, Sigríði Maríu og
Juan Camilo Roman Estarda.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
* BIO pokinn er
framleiddur úr
maíssterkju og
eyðist upp í
náttúrunni.
Oddi – Höfðabakka 7, 110 Reykjavík, sími 515 5000, www.oddi.is
Hafðu samband við sölumenn Odda
í síma 515 5000
Bleiki pokinn
- til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands
NÝTT
BIO poki*
Allur ágóði af sölu BLEIKA POKANS
rennur til Krabbameinsfélags Íslands.
Fiskikóngurinn
Sogavegi 3 • www.fiskikongurinn.is
BÝÐUR BJARKA HJÁLMARSSON SJÚKRAÞJÁLFARA
VELKOMINN TIL LIÐS VIÐ STOFUNA
Á STOFUNNI STARFA FYRIR:
➜ Hross í oss hefur verið
tekin til sýninga í Frakklandi,
á Spáni og á
Norðurlöndunum.
➜ Tómas telur að auðveldlega
sé hægt að fjölga
tónlistarhátíðum á Íslandi.