Fréttablaðið - 04.12.2013, Side 1
MENNTAMÁL Illugi Gunnarsson,
mennta- og menningarmálaráð-
herra, segir niðurstöðu alþjóð-
legrar könnunar (PISA) um náms-
stöðu grunnskólanemenda í 10.
bekk áfall fyrir þjóðina. Könnunin
sýnir að nálægt því einn af hverj-
um þremur fimmtán ára strákum
les sér ekki til gagns. Staða krakk-
anna víða á landsbyggðinni er í
frjálsu falli.
„Þetta er ekki einangraður vandi
þeirra krakka sem eru að mælast
svona illa. Þetta er vandamál sam-
félagsins alls,“ segir Illugi. „Við
getum ekki með nokkru móti kom-
ist undan því að horfa með mjög
krítískum hætti á skólakerfið
okkar. Fyrsta sem við verðum að
gera er að horfast í augu við þessa
staðreynd og viðurkenna vand-
ann. Við verðum að skoða kenn-
aramenntunina, og inntak hennar.
Við verðum að meta skólagögnin
almennt og hvernig við prófum og
mælum – hvernig við fylgjumst
með. Við verðum að skoða kennslu-
aðferðirnar – til dæmis með lest-
urinn.“
Júlíus K. Björnsson, forstöðu-
maður Námsmatsstofnunar, sem
framkvæmdi rannsóknina fyrir
hönd menntamálayfirvalda,
segir að ekki megi draga úr því
að íslenskum skólabörnum líður
vel í skólanum; þau séu ánægð og
sjálfsörugg. En hann dregur ekki
úr alvöru málsins.
„Ég hef bara upplifað það tvisv-
ar að sjá tölur sem ég trúði ekki
í fyrstu. Það var fyrst árið 2003
þegar gífurlegur kynjamunur
kom fram í stærðfræði, en þá
stóðu stelpurnar sig miklu betur.
Þetta er í hitt skiptið þegar mun-
urinn á landsbyggðinni og höfuð-
borgarsvæðinu er orðinn þetta
mikill. Síðustu tólf ár hefur þessi
munur gengið úr hófi fram. Fallið
á sumum svæðum jafngildir heilu
skólaári,“ segir Júlíus.
Kennarasamband Íslands sendi
frá sér tilkynningu í gær. Þar
segir að niðurstöðurnar sýni að
ekki sé hægt að krefjast sífellt
meiri sparnaðar og aðhalds án
þess að það komi niður á skóla-
kerfinu. „Ljóst er að sparnaðurinn
er nú farinn að bitna á einstökum
nemendum jafnt sem skólakerfinu
í heild sinni,“ skrifar Þórður Árni
Hjaltested, formaður Kennara-
sambandsins.
- shá / sjá síðu 6
S agt er allt sé stórt í T
Af Texasostborg-ara með frönsk-um gegn fram-vísun þessa miða. Aðeins 1.290 kr. fyrir tvo. Gildir til 31.12.2013. www.texasborg-arar.is.
s: 517 3130
2
FYRIR
1
TVEGGJA KÍLÓA TEXASBORGARI!TEXASBORGARAR KYNNA Þeir sem þora að taka áskoruninni geta glímt við
tveggja kílóa hamborgara á Texasborgurum við Grandagarð.
BESTA FLUGFÉLAGIÐEtihad-flugfélagið, sem er ríkisrekið flugfélag
í Arabísku furstadæmunum, var valið besta flugfélag í heimi í árlegri veislu
World Travel Awards sem haldin var í Doha í Katar um síðustu helgi. Þetta er
fimmta árið í röð sem félagið fær þessi verðlaun.
RISABORGARI Hann er engin smásmíði, tveggja kílóa borgarinn á Texasborgurum.
MYND/DANÍEL
Útsala hafin af yfirhöfnum, tilvalið í jólagjöfina hennar. Nú er kalt í veðri og gott að hlýja sér í yfirhöfnum frá okkur. Sjáðu úrvalið á www.facebook.com/Parisartizkan
Skipholti 29b • S. 551 0770
www.visir.is Sími: 512 5000 |
Miðvikudagur 4. DESEMBER 2013 | 26. tölublað | 9. árgangur
F Y R S TA
F L O K K S
Þ JÓNUSTA
Síminn gagnstefnir Vodafone
Síminn hefur gagnstefnt Vodafone fyrir sambæri-legan meintan ólögmætan verðþýsting og Vodafone stefndi Símanum fyrir í nóvemberbyrjun. „Brotin fólust í ofrukkun á lúkningargjöldum,“ segir í til-kynningu Vodafone til Kauphallar. Félagið krafði Símann vegna þessa um endurgreiðslu 913 milljóna króna auk vaxta. Síminn krefur nú Vodafone á móti um 2,5 milljarða króna. „Sá grundvallarmunur er á stefnum Símans og Vodafone, að stefna Vodafone á hendur Símanum fær stoð í niðurstöðu Samkeppn-iseftirlitsins og áfrýjunarnefndar samkeppnismála,en kröfugerð Símans á hendur Vodafone gerir það ekki,“ segir Vodafone. Síminn hefur farið fram á að málin verði sameinuð fyrir dómi. - óká
Ýktar fréttir af láti BlackBerry
Settur forstjóri farsímafram-
leiðandans BlackBerry segir að
fregnir af andláti fyrirtækisins
hafi verið „stórlega ýktar“. Í bréfi sem John Chen, forstjóri fyrir-
tækisins, sendi viðskiptavinum
segir hann að BlackBerry leiti nú
aftur í rætur sínar. Áhersla verð
á ný lögð á framleiðslu handtækja sem henti viðskiptalífinu. Chen
var áður forstjóri Sybase, en var
sóttur yfir til BlackBerry, til þess að gegna starfi for tjóra og stjórnarformanns eftir að ekkert varð úr viðræðum um sölu fyrirtækisins. Í bréfinu sagði hann fyrirtækið meðvitað um að BlackBerry
JOHN S. CHEN
➜ Viðtal við Hannes
Karlsson, stjórnar-
formann Sambands
íslenskra samvinnu-
félaga (SÍS).
➜ Félagið hélt aðalfund í
nóvember og stjórnin
fundar reglulega.
➜ Félagsmenn meta nú
stöðuna og vilja fjölga
verkefnum SÍS.
síða 4
SAMBANDIÐ LIFIR ENN
SJÓNVARPSVÍSIR
BROT AF ÞVÍ BESTA
ÚR JÓLADAGSKRÁNNI
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Miðvikudagur
12
3 SÉRBLÖÐ
Sjónvarpsvísir | Markaður | Fólk
Sími: 512 5000
4. desember 2013
285. tölublað 13. árgangur
SKOÐUN Steinunn Ólína skrifar um
karlmannlegt höfuðlag útvarpsstjóra
og illskiljanleg einkaskilaboð. 13
MENNING Hljómsveitin Sísí Ey spilar
á tónlistarhátíðinni Sónar í Stokk-
hólmi á næsta ári. 30
SPORT Landsliðsmarkvörðurinn
Hannes Þór Halldórsson er farinn frá
KR til Noregs. 26 Sími: 661 7000 // www.kaupumgull.is
3. HÆÐ Í KRINGLUNNI (Hjá Læknastöðinni)
Gylfaflöt 7
112 Reykjavík
587-8700
www.krumma.is
■ Frammistaða íslenskra nemenda versnar verulega frá 2009 og sé horft
til allra PISA-mælinga frá upphafi, þá hefur nemendum hrakað sem
nemur um hálfu skólaári á síðasta áratug.
■ Ísland ásamt Svíþjóð er með lökustu frammistöðu allra Norðurlandanna.
■ Verulegur munur er á höfuðborgarsvæði og landsbyggð í öllum greinum
og hefur afturförin orðið mest á landsbyggðinni þó svo höfuðborgar-
svæðið hafi einnig látið undan síga.
■ Piltum hefur farið verulega aftur í lesskilningi og stærðfræðilæsi, og eru
nú um 30% þeirra á tveimur neðstu þrepum lesskilnings og um 20% á
neðstu þrepum stærðfræðilæsis.
■ Frammistaða íslenskra nemenda í náttúrufræðilæsi er sú lakasta af
öllum Norðurlöndunum.
Niðurstöður fyrir Ísland í hnotskurn
Ráðherra segir PISA áfall og
vill grandskoða skólakerfið
Menntamálaráðherra segir niðurstöðu PISA-könnunar vandamál samfélagsins alls. Kennarasambandið kennir
niðurskurði til menntamála um. Forstöðumaður trúði vart tölunum yfir þróunina á landsbyggðinni.
TÍSKA Ilmhönnuðurinn Andrea
Maack er nýkomin frá Moskvu,
en vörur hennar hafa slegið ræki-
lega í gegn í Rússlandi. Rússnesk-
ir fjölmiðlar sýndu Andreu og
vörum hennar talsverðan áhuga.
„Við héldum móttökur í
þremur risastórum verslunum,
meðal annars versluninni Tsum
í Moskvu sem er einn voldug-
asti verslunarrisinn þar í borg,“
segir Andrea, en Tsum er stærsta
deildaskipta sérvöruverslun í
Austur-Evrópu, með yfir þúsund
þekkt tískumerki á sínum snær-
um, meðal annars merki á borð
við Harry Winston, Rolex, Dior,
Chanel og svo mætti lengi telja.
- ósk sjá nánar/bls 30
Fengu inni í stórverslunum:
Rússar vilja ís-
lensk ilmvötn
LÖGREGLUMÁL Gunnar Kristján Jónasson, bróð-
ir Sævars Rafns sem lést í átökum við lögreglu í
fyrrinótt, segist hugsa til þeirra sem lentu í kúlna-
hríðinni. Hann geti ekki séð að lögregla hafi getað
brugðist við með öðrum hætti en hún gerði.
„Satt best að segja átti maður von á því að fá
fréttir af þessum manni á hinn veginn, að hann
hefði orðið einhverjum að bana,“ segir Gunnar
Kristján.
Vettvangsrannsókn á íbúð Sævars í Árbæ og á
stigagangi fjölbýlishússins stóð allan daginn í gær
og er hvergi nærri lokið. Lögregla býst jafnvel við
að rannsókn geti staðið út þessa viku.
Hrannar Jónsson, formaður Geðverndar, gagn-
rýnir hins vegar viðbrögð lögreglu. Ráðist hafi
verið til atlögu þegar ekki stafaði lengur hætta af
manninum.
- fb / sjá síðu 4
Bróðir Sævars Rafns Jónassonar um skotbardagann þar sem Sævar lést:
Lögregla gat ekkert annað gert
VERKSUMMERKI RANNSÖKUÐ Greinileg för eftir haglabyssuskot sjást á veggjum og hurð nágranna í stigagangi fjölbýlishúss í
Árbæ þar sem maður lést í skotbardaga við lögreglu í fyrrinótt. Lögregla rannsakaði vettvang í gær og gæti rannsóknin staðið út
þessa viku. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
MARKAÐURINN
FRÉTTIR
Framkvæmdir trufla Kaupmenn
segja framkvæmdir á Hverfisgötu
trufla jólaverslun. Þeim mun ekki
ljúka fyrr en eftir jól. 2
Víða pottur brotinn Á vefsíðum
margra íslenskra fyrirtækja eru
lykilorð notenda ekki dulkóðuð og
því hætta á því að þau lendi í röngum
höndum. 8
Hækka frístundastyrk Borgarstjórn
ákvað í gær að hækka styrki til barna
vegna frístundastarfs. 10
Hátækni komin í fang
Landsbankans
Landsbankinn hefur keypt allt hlutafé
í tæknifyrirtækinu Hátækni. Fyrir-
tækið hefur glímt við rekstrarvanda
síðustu misseri.
Bolungarvík -9° NA 7
Akureyri -8° N 7
Egilsstaðir -8° NV 8
Kirkjubæjarkl. -4° NV 8
Reykjavík -4° NV 5
FROST Á FRÓNI Yfirleitt norðan
8-13 m/s en 10-18 A-lands og við
SA-ströndina síðdegis. Él N-til en léttir
til syðra. Frost 0-12 stig, kaldast inn til
landsins. 4