Fréttablaðið - 04.12.2013, Page 40
4. desember 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 24
Við byrjum alla morgna á því að syngja, ég mæli eindregið með þessu fyrir alla vinnustaði. Ég legg sérstaklega til að þetta verði tekið upp á
Alþingi. Þetta hjálpar okkur sér-
staklega mikið í undirbúningi
fyrir jólamarkaðinn,“ segir Óskar
Albertsson, talsmaður vinnustof-
unnar Ásgarðs. Á laugardaginn
halda starfsmenn Ásgarðs árlegan
jólamarkað sem hefur notið mik-
illa vinsælda undanfarin ár. „Þessi
markaður hefur gríðarlega mikla
þýðingu fyrir okkur. Við erum
sjálfseignarstofnun og ágóðinn af
jólamarkaðinum fer að miklu leyti
í reksturinn okkar.“
Vörurnar á jólamarkaðinum
hafa slegið í gegn undanfarin ár að
sögn Óskars. „Þetta eru náttúru-
lega frábærar jólagjafir. Til dæmis
eru leikfangavörubílarnir okkar
ótrúlega vinsælir. Við framleiðum
líka leðurtöskur, símahulstur úr
leðri, koparskálar, fullt af leik-
föngum og fleira og fleira,“ útskýr-
ir Óskar af áhuga. Hann segir und-
irbúninginn fyrir jólamarkaðinn
hafa gengið óvenjuvel þetta árið.
„Við spýttum í lófana og bættum
í úrvalið okkar. Við eigum líka
meira til af vinsælum vörum og
ætlum að kynna ýmsar nýjungar í
vöruvali,“ bætir Óskar við en vill
ekki fara nákvæmlega út í hverjar
nýjungarnar verða: „Fólk verður
bara að mæta á staðinn og sjá nýj-
ungarnar. Þá getur fólk líka kíkt
á jólahlaðborðið okkar, en helstu
bakarar landsins og Mjólkursam-
salan hafa styrkt okkur. Þarna
verða til sölu ýmis sætindi og heitt
súkkulaði, ég legg áherslu á súkk-
ulaði, þetta er ekki kakó.“
Óskar segir mikla gleði ríkja á
vinnustofunni, þakkar það söngn-
um alveg sérstaklega. En eitt má
laga: Kynjahlutfallið. „Starfsmenn-
irnir okkar eru að langstærstum
hluta karlmenn. Við höfum hugsað
mikið um þetta og viljum bjóða
konur alveg sérstaklega velkomn-
ar hingað.“
Jólamarkaður handverkstæðis-
ins Ásgarðs er frá 12 til 17. Mark-
aðurinn er haldinn á Álafossvegi
22 í Mosfellsbæ.
kjartan@frettabladid.is
Alþingismenn ættu að byrja
sérhvern dag á söngstund
Handverkstæðið Ásgarður heldur árlegan jólamarkað á laugardaginn. Til sölu er handverk eft ir starfsmenn
Ásgarðs og sætindi frá helstu bökurum landsins. Frábærar jólagjafi r segir talsmaður vinnustofunnar.
MIKIÐ ÚRVAL Á jólamarkaðinum er margt til sölu, handverk sem framleitt er af starfsmönnum Ásgarðs. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
➜ Ásgarður er verndaður
vinnustaður í Mosfellsbæ.
Starfsmenn eru um 40 talsins
Leiðbeinendur eru sjö
Ásgarður heldur árlegan jólamark-
að fyrsta laugardag í desember.
Leikkonan Amy Adams prýðir for-
síðu janúarheftis Vanity Fair og
talar um samband sitt við unnust-
ann Darren Le Gallo.
„Ég er ekki ólétt. Ég ætla ekki að
gifta mig á næstunni,“ segir Amy í
viðtalinu en þau Darren hafa verið
trúlofuð síðan árið 2008. „Hann
er yndislegur og fallegur og gefur
mér eitthvað sérstakt, sem ég gæti
aldrei gefið af mér, bara með því
að vera hann sjálfur,“ bætir Amy
við, greinilega enn þá yfir sig ást-
fangin. - lkg
Ætlar ekki að
gift a sig strax
LIGGUR EKKI Á Amy er ekkert að flýta sér.
Save the Children á Íslandi
„MÉR finnst Bjarni Ben bara ljótur,“
sagði ónefnd vinkona mín um daginn.
Þá var hún ekki að tala um persónuleika
hans, enda þekkir hún manninn ekki, held-
ur var hún að vísa í útlit hans. Þetta var
auk þess sagt í hita ákveðins augnabliks
og ég efast um að hún hafi meint þetta af
öllu hjarta. Ég er nú ekki fullkomin en ég
reyni samt að forðast niðrandi umræður
um útlit fólks eða holdafar. Ég svaraði
því: „Æ, hvaða rugl er í þér.“ En þetta
vakti mig samt til umhugsunar.
ÞAÐ er nefnilega eitthvað sem mér
finnst alveg ótrúlega skrítið við útlit
Bjarna Ben. Og Sigmundar Davíðs.
Stundum brosi ég í kampinn þegar ég
sé fréttamyndir af þeim. Stundum fer
ég hreinlega að hlæja. Bara við að sjá
myndirnar. Ég hafði ekkert velt þessu
sérstaklega fyrir mér en svo áttaði ég
mig á því hvað þetta er fáránlegt.
ÞESSIR menn eru alls ekkert
furðulegir í útliti. Samt er ég
flissandi núna bara við tilhugs-
unina um þá. Og svo skildi ég
það. Þetta er skopmyndateikn-
urunum að kenna. Ég er orðin svo vön því
að sjá skopmyndir af þessum stjórnmála-
mönnum með ýkt andlitseinkenni að mér
finnst þær orðnar raunverulegri en menn-
irnir sjálfir. Bjarni Ben er með höku sem
ætti að setja snjóvél á og opna fyrir skíða-
mönnum. Sigmundur Davíð er með upp-
blásið höfuð og krónískan sorgarsvip. Auð-
vitað veit ég að þetta er ekki raunin en ég
bara trúi þessu samt. Óvart.
VÆGAST sagt sjokkerandi hvað heilinn
er auðsveipur.
ÞETTA vakti mig svo til umhugsunar um
hversu mikið af rugli manni finnst eðlilegt
bara vegna þess að það dynur á manni í
síbylju. Ég þori ekki einu sinni að byrja að
sigta út vitleysuna.
EN ég held með skopmyndateiknurum.
Og þeir halda með þjóðinni. Þeim tekst
að benda á fáránleikann í samfélaginu og
fá alla með sér í lið. Því húmor er besta
bragðið.
OG ég treysti þeim til að sigta út vit-
leysuna.
Útlitið ekki slæmt, heldur fyndið
BAKÞANKAR
Höllu Þórlaugar
Óskarsdóttur
ÁLFABAKKA
AKUREYRI
EGILSHÖLL
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
EMPIREROLLING STONE
GQ
DEADLINE HOLLYWOOD
ENTERTAINMENT WEEKLY
VAR ÍSLENSKUR ÞINGMAÐUR Í INNSTA HRING WIKILEAKS?
MÖGNUÐ MYND SEM VAR TEKIN AÐ HLUTA TIL Á ÍSLANDI
VARIETY
HUNGER GAMES 2 6, 7, 9, 10
PHILOMENA 5:50, 8
CARRIE 10:10
FURÐUFUGLAR 2D 5
S.B. - FBL
“ÞAÐ BESTA SEM HEFUR KOMIÐ
FRÁ HOLLYWOOD Í LANGAN TÍMA”
S.B. - FBL
NÁNAR Á MIÐI.IS
PRINCE AVALANCHE
THE HUNGER GAMES 2
THE HUNGER GAMES 2 LÚXUS
THE COUNCELOR
CAPTAIN PHILIPS
FURÐUFUGLAR 2D
TÚRBÓ 2D ÍSL.TAL
THE PAST
NORTHWEST
THE HUNGER GAMES 2
PHILOMENA
CAPTAIN PHILIPS
HROSS Í OSS
THE HUNGER GAMES 2
NORTHWEST
KL. 5.50 - 8
KL. 4 - 5 - 6 - 8 - 9
KL. 8
KL. 8 - 10.30
KL. 10.10
KL. 3.30
KL. 3.30
KL. 6 - 9 - 10
KL. 6 - 8
Miðasala á: og
KL. 5.15 - 10.15
KL. 10.45
KL. 6 - 8 - 9
KL. 5.45 - 8
KL. 8
KL. 6
PARADÍS: VON
“IT COULD BE HIS BEST FILM
SO FAR” - THE GUARDIAN
THE BROKEN
CIRCLE BREAKDOWN
BESTA LEIKKONA Í
AÐALHLUTVERKI
TRIBECA 2013
SJÁ SÝNINGATÍMA Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas