Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.04.2014, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 14.04.2014, Qupperneq 2
14. apríl 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 2 Kringlunni heyrnarstodin.is HEYRNARSTÖ‹IN SKATTUR Skattrannsóknarstjóri hefur fengið lista frá breskum yfirvöldum með nöfnum 10 Íslend- inga sem tengjast svokölluðum skattaskjólum. Nöfn Íslendinganna voru í leyniskjölum ICIJ, alþjóð- legs samstarfsvettvangs rann- sóknarblaðamanna. ICIJ birti í fyrra niðurstöður viðamesta rann- sóknarverkefnis síns sem er um skattaskjól en verkefnið er byggt á um 2,5 milljónum leyniskjala. „Yfirvöld í Bretlandi, Banda- ríkjunum og Ástralíu fengu aðgang að gögnunum og hafa verið að vinna úr þeim. Síðan hafa þau verið að senda upplýsingarnar áfram til annarra landa. Við erum að bíða eftir frekari gögnum sem Bretar hafa undir höndum um þessa tilteknu aðila sem eru á listanum sem okkur var sendur. Það fer svo eftir því hvað kemur út úr þeim hvernig okkar rann- sókn verður háttað,“ segir Bryn- dís Kristjánsdóttir skattrann- sóknarstjóri. Hún getur þess jafnframt að embættinu hafi nokkrum sinnum verið boðið að kaupa ýmis gögn frá útlöndum en því hafi verið hafnað. „Þetta hafa verið bæði stór og smá gögn. Í einu tilfellinu var nefndur listi með nöfnum hundraða Íslend- inga. Það er alveg klárt að það yrði fengur að fá slík gögn en það er spurning hvað má telja eðlilegt að ganga langt til að afla þeirra. En af þessu sýnist mér að draga megi þá ályktun að til séu ýmis gögn úti um allan heim.“ Að sögn Bryndísar er yfirleitt ekki vitað hverjir það eru sem bjóða gögnin til sölu. „Þeir leggja mikið upp úr nafnleynd. Sú leið hefur aldrei verið farin hjá okkur að kaupa slík gögn og það hefur einnig verið stefnan annars staðar á Norðurlöndum. Ýmis önnur lönd hafa hins vegar keypt slík gögn, til dæmis Þýskaland.“ Spurð um uppsett verð segir Bryndís að samræðurnar við selj- endur hafi aldrei komist á það stig að verð hafi komið til tals. ibs@frettabladid.is Listi yfir Íslendinga í skattaskjóli afhentur Bresk yfirvöld sendu skattrannsóknarstjóra nöfn 10 Íslendinga sem tengjast skatta- skjólum. Skattrannsóknarstjóra hefur verið boðið að kaupa gögn að utan með nöfnum hundraða Íslendinga. Slík gögn hafa aldrei verið keypt hér á landi. KVIKMYNDAGERÐ „Þessi sería verð- ur sú allra dýrasta í íslenskri sjón- varpssögu en kostnaður nálgast nú milljarðinn,“ segir Sigurjón Kjart- ansson, þróunarstjóri RVK Studios, framleiðslufyrirtækis Baltasars Kormáks. „Íslenskar sjónvarpsseríur hing- að til hafa kostað á bilinu 150 til tvö hundruð milljónir,“ útskýr- ir Sigurjón. Hann skrifar handrit íslensku sjónvarps- þáttanna Ófærð, sem heita á ensku Trapped, ásamt leikar- anum Ólafi Egilssyni, Jóhanni Ævari Grímssyni og Bret- anum Clive Bradley. „Þetta er tíu þátta sería og er hver þáttur klukkutími að lengd,“ segir Sigurjón. Serían var kynnt á kaupráðstefnunni MIPTV í Cannes í Frakklandi fyrir stuttu, einni stærstu ráðstefnu fyrir kaupendur og seljendur sjónvarps- efnis í heiminum. Leikstjórn seríunnar verður í höndum Baltasars Kormáks, sem nú er í tökum á stórmyndinni Eve- rest, en Daniel March og Klaus Zim- mermann hjá dreifingarfyrirtækinu Dynamic Television meðfram- leiða seríuna. Þá sér Dynamic Television einnig um alþjóð- lega dreifingu seríunnar. Stefna RVK Studios frá upp- hafi hefur verið að framleiða íslenskt sjónvarpsefni fyrir erlendan markað. „Við viljum sækja á stærri markað en við höfum verið að gera og þetta er fyrsta stóra verkefnið sem við komum á kopp- inn í sjónvarpi. Til að gera seríu sem getur keppt almennilega við aðrar skandinavískar seríur þarf miklu meiri pening. Til að fá þann pening þurfum við að forselja seríuna úti,“ segir Sigurjón. Stefnt er á að tökur á Ófærð hefj- ist í haust og að serían verði sýnd á RÚV á næsta ári. Sigurjón segir enn óvíst hvar þættirnir verða tekn- ir upp. - lkg Þættirnir Ófærð í leikstjórn Baltasars Kormáks fara í tökur í haust: Dýrasta sería Íslandssögunnar Aðalheiður, er rífandi gangur í peningagjöfum? „Þær mættu nú vera helmingi fleiri!“ Aðalheiður Frantzdóttir, framkvæmdastjóri Mæðrastyrksnefndar, tók við 30 þúsund króna peningagjöf frá Jóni Þór Ólafssyni, þingmanni Pírata, eftir að hann reif þrjá 10 þúsund króna seðla í ræðustól Alþingis á föstudag. ALÍSLENSK Sigurjón segir að Ófærð verði leikin á íslensku af íslenskum leikurum. Í NLÚXEMBORG Fjöldi skattaskjólsmála hefur tengst Lúxemborg. NORDICPHOTO/AFP Í einu tilfellinu var nefndur listi með nöfnum hundraða Íslendinga.“ Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri. SPÁNN, AP Strax í byrjun dymbilviku fara grímuklæddir menn með oddmjóa hvíta hatta á stjá á Spáni, og halda jafnan á þungum kertum sem kveikt er á ef myrkur er úti. Þeir ganga hægt um götur borga og bæja, og mæla ekki orð frá munni. Menn þessir minna óþægilega á félaga í Ku Klux Klan, samtökum bandarískra kynþáttahatara, en eiga annars ekkert sameiginlegt með þeim fordómaskjóðum. Tilgangurinn með gönguferðum þeirra er að sýna iðrun, en þó án þess að sýna andlit sitt eða upplýsa nánar um syndirnar. Fjölmargar aðrar skrúðgöngur eru jafnan haldnar á Spáni í dymbil- vikunni, af öllum stærðum og gerðum. - gb Dymbilvikan á Spáni einkennist af skrúðgöngum: Óhugnanlegir hattar á höfðum SÝNA IÐRUN Félagar í spænskri trúarreglu með sína oddmjóu hatta og stóru kerti. FRÉTTABLAÐIÐ FERÐAÞJÓNUSTA Áætlað er að farþeg- ar sem fara um Keflavíkurflugvöll verði orðnir fimm milljónir á ári á næstu fimm árum. Til að mæta gífurlegri fjölgun farþega er gert ráð fyrir að fjárfesta í mannvirkjum og tækjum á flug- vellinum fyrir níu milljarða króna á næstu tveimur árum. „Í fyrra fóru rúmlega 2,7 millj- ónir farþega um flugvöllinn og í ár erum við að gera ráð fyrir 3,3 millj- ónum. Síðan er verið að horfa til fjölgunar upp á 10 til 15 prósent árið þar á eftir en svo er erfitt að spá um hvað verður á næstu árum þar á eftir,“ segir Friðþór Eydal, upplýs- ingafulltrúi Isavia. Áætlanir gera ráð fyrir að farþegafjöldinn verði um fimm milljónir eftir um fimm ár, eða 15,6 sinnum íslenska þjóðin. Sautján flugfélög flugu til Íslands í fyrra. Farþegum um flugstöðina hefur fjölgað um 15 til 19 prósent á ári í um eða yfir áratug. Friðþór segir að gert sé ráð fyrir um 9 millj- arða króna fjárfestingu á næstu tveimur árum til að auka megi afköst flugvallarins. Eitt stærsta verkefnið nú í vor og sumar felst í því að reisa viðbyggingu við vest- urálmu suðurbyggingar flugstöðv- arinnar. Stækkun farangurskerf- is flugstöðvarinnar mun tvöfalda afkastagetuna í sumar. - hmp Uppbygging fyrir níu milljarða króna stendur fyrir dyrum á næstu tveimur árum á Keflavíkurflugvelli: Fimm milljónir farþega stefna á Leifsstöð KEFLAVÍKURFLUGVÖLLUR Viðbygging- ar rísa og innviðir verða styrktir á næstu tveimur árum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ➜ 2,7 milljónir farþega fóru um Keflavíkurflugvöll í fyrra og reiknað er með að þeir verði 3,3 milljónir á þessu ári. LÍBÍA, AP Abdullah al-Thani, bráðabirgðaforsætisráðherra í Líbíu, skýrði frá því í gær að hann ætli sér að hætta. Hann muni þó gegna embættinu áfram þangað til annar finnst í staðinn. Þingið hafði farið fram á að hann myndaði nýja stjórn, en hann neitaði að verða við því og ákvað að hætta frekar. Hann er annar forsætisráð- herrann á tveimur mánuðum sem segir af sér. Stjórnmálaástandið í landinu er harla flókið enn, þrem- ur árum eftir að Moammar Gad- dafí var steypt af stóli. - gb Forsætisráðherra hættir: Málin flækjast enn í Líbíu ÍÞRÓTTIR Sleðahundaklúbbur Íslands stóð fyrir sínum árlega páskagleðskap í gær þar sem ýmsir sleðahundamenn öttu kappi í Bláfjöllum. Um tuttugu manns tóku þátt í keppninni. Keppendur voru ýmist með tvo, þrjá eða fjóra hunda. Í gönguskíðakeppni er aðeins einn hundur. Einnig var efnt til barnakeppni í hátíðar- höldunum og vakti hún mikla lukku. Að sögn skipuleggjanda við- burðarins var veður frábært og færð góð. - kóh Hvuttar öttu kappi: Sleðahundar í Bláfjöllum SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.