Fréttablaðið - 14.04.2014, Síða 42

Fréttablaðið - 14.04.2014, Síða 42
14. apríl 2014 MÁNUDAGUR| SPORT | 22 KÖRFUBOLTI Deildarmeistarar KR tryggðu sér sæti í úrslitaeinvígi Dominos- deildar karla í gær. KR vann þá útisigur, 89-90, á Stjörn- unni í fjórða leik liðanna. KR vann einvígið, 3-1. Mikil spenna var í leiknum. KR alltaf skrefi á undan og á lokamínútunni náði Stjarnan að anda í hálsmálið á þeim. Nokkrum sekúndum fyrir leikslok tók Martin Hermannsson tvö vítaskot þar sem KR var einu stigi yfir. Hann klúðraði báðum skotunum en KR náði frákastinu og hélt boltanum þar til yfir lauk. KR mætir annaðhvort Grindavík eða Njarðvík en þau eigast við í kvöld. Með sigri getur Grindavík tryggt sér sæti í úrslitunum gegn KR. Vinni Njarðvík verður oddaleikur í þeirri rimmu. - hbg KR í úrslit eft ir háspennuleik í Ásgarði SUND Fínn árangur náðist á Íslands- mótinu í sundi í 50 metra laug um helgina. Alls féllu níu Íslandsmet og ellefu aldursflokkamet á mótinu. Jóhanna Gerða Gústafsdóttir, Ægi, bætti í gær eigið Íslandsmet í 400 metra fjórsundi kvenna þegar hún synti á tímanum 4:53,24 mínútum. Hrafnhildur Lúthersdóttir vann alls fimm gullverðlaun á mótinu og síðasta gullið kom í 50 metra bringusundi. Hún var aðeins 44/100 úr sekúndu frá Íslandsmeti sínu í greininni. Eygló Ósk Gústafsdóttir, Ægi, var nálægt eigin Íslandsmeti í 100 metra baksundi eða aðeins 38/100 úr sekúndu, þegar hún synti á 1:01,46 mínútu og varð Íslandsmeistari. Hrafnhildur Lúthersdóttir fékk Sigurðarbikarinn fyrir Íslandsmetið sem hún setti í 100 metra bringu- sundi á mótinu. Þann bikar fær sá sundmaður sem nær bestum árangri samkvæmt opinberri stigatöflu Al- þjóða sundsambandsins, FINA. Eygló Ósk Gústafsdóttir fékk aftur á móti Ásgeirsbikarinn, einnig kallaður Forsetabikarinn, fyrir tíma sinn í 100 metra baksundi er hún tók fyrsta sprett í boðsundi og jafnaði Íslandsmet sitt sem hún setti í Danmörku fyrir rúmu ári. Ásgeirsbikarinn veitir forseti Íslands, til minningar um Ásgeir Ás- geirsson, fyrrverandi forseta Íslands, þeim einstaklingi sem á besta afrek á ÍM50 hverju sinni. - hbg Níu Íslandsmet féllu í Laugardalslaug Í STUÐI Hrafnhildur í lauginni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI SPORT ÚRSLIT DOMINOS-DEILD KARLA STJARNAN - KR 89-90 Stjarnan: Matthew James Hairston 30/18 frák, Marvin Valdimarsson 19, Fannar Helgason 12, Justin Shouse 11/8 stoð, Dagur Kár Jónsson 10, Jón Sverrisson 4, Sigurður Dagur Sturluson 3. KR: Martin Hermannsson 23 Darri Hilmarsson 15, Brynjar Þór Björnsson 15, Pavel Ermolinskij 13, Ingvaldur Hafsteinsson 10, Helgi Már Magnússon 8 Demond Watt Jr. 6 KR vann einvígið, 3-1. ENSKA ÚRVALSDEILDIN SWANSEA - CHELSEA 0-1 0-1 Demba Ba (68.). LIVERPOOL - MAN. CITY 3-2 1-0 Raheem Sterling (6.), 2-0 Martin Skrtel (26.), 2-1 David Silva (57.), 2-2 Glen Johnson, sjm (62.), 3-2 Philippe Coutinho (78.). CRYSTAL PALACE - ASTON VILLA 1-0 1-0 Jason Puncheon (76.). FULHAM - NORWICH 1-0 1-0 Hugo Rodallega (40.). SOUTHAMPTON - CARDIFF 0-1 0-1 Cala (65.). STOKE CITY - NEWCASTLE 1-0 1-0 Erik Pieters (42.). SUNDERLAND - EVERTON 0-1 0-1 Wes Brown, sjm (75.). WBA - TOTTENHAM 3-3 1-0 Matej Vydra (1.), 2-0 Chris Brunt (4.), 3-0 Stephane Sessegnon (31.), 3-1 Jonas Olsson, sjm (34.), 3-2 Harry Kane (70.), 3-3 Christian Eriksen (90.+4). STAÐA EFSTU OG NEÐSTU LIÐA Liverpool 34 24 5 5 93-42 77 Chelsea 34 23 6 5 66-24 75 Man. City 32 22 4 6 86-32 70 Everton 33 19 9 5 53-31 66 Arsenal 33 19 7 7 56-40 64 ------------------------------------------------------------------------- Norwich 34 8 8 18 26-53 32 Fulham 34 9 3 22 34-74 30 Cardiff 34 7 8 19 30-64 29 Sunderland 32 6 7 19 29-54 25 ENSKA BIKARKEPPNIN HULL CITY - SHEFF. UTD 5-3 0-1 Jose Baxter (19.), 1-1 Yannick Sagbo (42.), 1-2 Steven Scougall (44.), 2-2 Matty Fryatt (49.), 3-2 Tom Huddlestone (53.), 4-2 Stephen Quinn (67.), 4-3 J. Murphy (90.), 5-3 D. Meyler (90.+3). WIGAN - ARSENAL 4-2 (1-1) 1-0 Jordi Gomez, víti (63.), 1-1 Per Mertesacker (82.). Arsenal vann í vítakeppni og mætir Hull í úrslitum. HANDBOLTI „Þetta var svakalegt. Ég er alveg búinn. Þetta var aðeins of mikið,“ segir Dagur Sigurðsson, þjálfari Füchse Berlin, en lið hans lagði Flensburg, 22-21, í úrslita- leik þýsku bikarkeppninnar í gær. Þetta er fyrsti stóri titillinn í sögu félagsins. „Þetta er mögnuð stund fyrir okkur hjá félaginu. Það sem hefur verið að gerast á síðustu fimm árum hjá okkur er magnað. Þetta er viðurkenning á því starfi og það brosa allir allan hringinn núna. Þetta er án efa stærsta stundin á þjálfaraferli mínum,“ segir Dagur stoltur. „Ef maður kíkir á hvaða lið hafa unnið þennan titil þá er það meira og minna bara Kiel síðustu ár og svo Flensburg og Hamburg ein- staka sinnum. Það er því stórt að vinna þennan titil í baráttu við þessi stóru lið.“ - hbg Mín stærsta stund sem þjálfari Dagur Sigurðsson gerði lið Füchse Berlin að þýskum bikarmeisturum í gær. ÁFANGI Dagur hampar bikarnum stoltur í leikslok. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY FÓTBOLTI Eyðimerkurgöngu Liver- pool gæti verið lokið. Eftir að hafa ekki unnið Englandsmeistaratitil- inn í 24 ár er Liverpool komið í lyk- ilstöðu í baráttunni um bikarinn. Sigurinn á Man. City í gær þýðir einfaldlega að liðið verður meist- ari ef það vinnur síðustu fjóra leiki sína á tímabilinu. Liverpool á eftir að spila við Crystal Palace, Norwich, New- castle og Chelsea. Leikurinn gegn Chelsea er 27. apríl næstkomandi og fer fram á Anfield. Sá leikur gæti ráðið endanlega úrslitum í deildinni. „Þessi sigur skiptir svo rosalega miklu máli,“ sagði Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, en hann felldi tár af gleði eftir leikinn í gær. Engu að síður reyndi hann að vera með báða fætur á jörðinni. „Þetta eru lengstu 90 mínútur sem ég hef spilað á ferlinum. Mér fannst klukkan ganga í öfuga átt um tíma í leiknum. Við eigum fjóra bikarúrslitaleiki eftir. Fólk sagði að þetta væri stærsti leikurinn. Ég er ósammála því. Næsti leikur er alltaf sá stærsti. Við erum ekki búnir að vinna neitt og verðum að passa að fara ekki fram úr okkur.“ Það var ekki að sjá á Liverpool í upphafi leiks að liðið réði ekki við pressuna. Liverpool átti fyrri hálf- leikinn en gaf eftir í þeim síðari. „Við höfum verið settir undir pressu í hverjum einasta leik en gæðin í okkar leik eru ótrúleg. Þetta var stórkostlegt hjá okkur í dag og við ráðum greinilega við pressuna,“ sagði Brendan Rodgers, stjóri Liverpool. „Þetta var algjörlega einstök frammistaða. Heimurinn að horfa og mikil pressa á okkur. Við sýnd- um karakter. Við erum komnir á þann stað sem við ætlum að vera á. Þetta lið sendi út skýr og sterk skilaboð í þessum leik.“ henry@frettabladid.is Ráða eigin örlögum Liverpool tók risaskref í átt að enska meistaratitlinum í gær er liðið lagði Man. City á Anfi eld. Vinni Liverpool fj óra síðustu leiki sína verður liðið meistari. ALVÖRUFÖGNUÐUR Leikmenn Liverpool tryllast af gleði eftir að Coutinho skoraði sigurmarkið í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY FÓTBOLTI Íslendingar gera það gott í fyrstu umferðunum í norska boltanum og þá sérstak- lega tveir Selfyssingar. Jón Daði Böðvarsson og Viðar Örn Kjartansson skoruðu báðir fyrir lið sín um helgina. Þeir eru báðir búnir að skora þrjú mörk í fyrstu þrem umferðum norsku úrvalsdeildarinnar og eru marka- hæstir í deildinni. Björn Bergmann Sigurðarson fer einnig vel af stað hjá Molde en hann skoraði í 2-0 sigri liðsins í dag. - hbg Sjóðheitir Selfyssingar BYRJAR VEL Viðar Örn skoraði úr víti í uppbótartíma um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR FÓTBOLTI Kolbeinn Sigþórsson og félagar í Ajax eru komnir með níu fingur á hollenska meistara- titilinn. Ajax lagði Den Haag, 3-2, í gær og er með sex stiga forskot þegar aðeins tvær umferðir eru eftir. Liðinu dugar því eitt stig í síðustu tveimur leikjum sínum til þess að tryggja sér titilinn. Ajax er einnig í bikarúrslitum og spilar úrslitaleikinn þar um páskana. Það eru því miklar líkur á því að Kolbeinn verði tvöfaldur meistari á þessari leiktíð. Kolbeinn spilaði í 84 mínútur í gær en náði ekki að komast á blað. - hbg Einu stigi frá titlinum

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.