Fréttablaðið - 19.04.2014, Síða 54
19. apríl 2014 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 38TÍMAMÓT
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýju við andlát
og útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
STEINUNNAR ÞÓRLEIFSDÓTTUR
Njarðarvöllum 6, Reykjanesbæ,
frá Efri-Hólum, Núpasveit.
Einnig sendum við kærar kveðjur öllum þeim sem geyma í
hugskoti sínu ljúfar minningar um hana. Sérstakar þakkir til
starfsfólks heimahjúkrunar og D-deildar Heilbrigðisstofnunar
Suðurnesja fyrir góða umönnun.
Hulda Bjarnadóttir Jóhann Geirdal
Guðjón Þórhallsson Guðveig Sigurðardóttir
Lárus B. Þórhallsson Hrönn Gestsdóttir
Magnea Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
KRISTJÁN B. EINARSSON
(SILLI)
frá Vogum,
lést á Hrafnistu í Reykjavík þriðjudaginn
15. apríl sl. Útför hans fer fram frá
Kálfatjarnarkirkju miðvikudaginn 23. apríl kl. 15.00.
Þórdís A. Sigurjónsdóttir
Hrefna Kristjánsdóttir Magnús Hafsteinsson
Kristín Þóra Kristjánsdóttir
Einar Birgir Kristjánsson Árný Eiríksdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær bróðir okkar, mágur og frændi,
GUÐBRANDUR JÓN HERBERTSSON
frá Lækjarbakka, Tálknafirði,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 22. apríl kl. 13. Blóm og
kransar afþökkuð, en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Björgunarsveitina
Tálkna á Tálknafirði.
Olga Herbertsdóttir Ásgeir Kristinsson
Sævar Herbertsson Dagný Bjarkadóttir
Einar Herbertsson Freyja Benediktsdóttir
Ómar Herbertsson Margrét Hermannsdóttir
og systkinabörn.
551 3485 • udo.is
Óli Pétur
út fararstjóri
Jóhanna Erla
guðfræðingur
út fararþjónusta
Davíð
út fararstjóri
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við
andlát og útför eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
GEIRS ÞORSTEINSSONAR
húsasmíðameistara.
Eygerður Bjarnadóttir
Þorsteinn Geirsson Ragnheiður Gunnarsdóttir
Örn Geirsson Steinunn Hreinsdóttir
Kristín Sigríður Geirsdóttir Ársæll Þorleifsson
barnabörn og barnabarnabörn.
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
ðurh 5, Rv 5 1 00 t n
Sverrir
Einarsson
Kristín
Ingólfsdóttir
Hinrik
Valsson
Okkar ástkæra
RAGNHEIÐUR JÓNSDÓTTIR
frá Skörðum,
til heimilis að Óðinsgötu 32b í Reykjavík,
lést á Landspítalanum fimmtudaginn 10. apríl.
Hún verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í
Reykjavík þann 22. apríl kl. 13.00.
Sigurður B. Markússon
og aðstandendur hinna látnu.
Elsku hjartans sonur okkar, bróðir og faðir,
ÓTTAR ÖRN VILHJÁLMSSON
Reynigrund 9, Akranesi,
lést föstudaginn 11. apríl. Útförin fer fram frá
Akraneskirkju miðvikudaginn 23. apríl
kl. 14.00. Þökkum öllum þann gríðarlega
hlýhug og stuðning sem fjölskyldunni hefur
verið sýndur á þessum erfiðu tímum.
Vilhjálmur Birgisson Þórhildur Þórisdóttir
Allan F. Vilhjálmsson, Hafþór Æ. Vilhjálmsson,
Vilhjálmur R. Vilhjálmsson, Þórir Gunnar Jónasson,
Róbert Óttarsson, Bríet Óttarsdóttir.
MERKISATBURÐIR
1689 - Amalíuborg í Kaupmannahöfn brann eftir óperusýningu. 170 manns fórust í
brunanum.
1770 - Brúðkaup Loðvíks 16. Frakkakonungs og Marie Antoin ette í Vínarborg.
1770 - James Cook skipstjóri sá strönd Ástralíu.
1887 - Landsbanki Íslands var sameinaður Sparisjóði Reykjavíkur.
1923 - Alþýðubókasafn Reykjavíkur, sem síðar var nefnt Borgarbókasafn Reykjavíkur,
tók til starfa.
1954 - Fermingarbörn í Akureyrarkirkju voru klædd hvítum kyrtlum sem var nýjung á
Íslandi.
1956 - Rainier III, fursti af Mónakó, giftist bandarísku leikkonunni Grace Kelly.
1971 - Charles Manson var dæmdur til dauða fyrir hlutdeild í morðinu á Sharon Tate.
Siglingaklúbburinn Þytur var stofn-
aður þennan mánaðardag árið 1975 af
hafnfirskum áhugamönnum um siglingar
og er í eigu félaga í klúbbnum. Aðdrag-
andinn að stofnun klúbbsins var sá að
árið 1971 hafði sjóskátaklúbbur á vegum
skátafélagsins Hraunbúa tekið til starfa,
auk þess sem æskulýðsráð Hafnarfjarðar
stofnaði siglingaklúbb fyrir unglinga á
sama tíma. Þessir klúbbar urðu síðan
uppistaðan í Siglingaklúbbnum Þyt sem
starfar í dag sem alhliða siglingaklúbbur
fyrir alla aldurshópa. Fyrsta sumar
klúbbsins fór starfsemi fram við slæmar
aðstæður í Hafnarfjarðarhöfn en að ósk
bæjaryfirvalda í Hafnarfirði og Garðabæ
var komið upp sameiginlegri aðstöðu fyrir
Þyt og Siglingaklúbbinn Vog í Garðabæ.
Sú aðstaða var sett upp í Arnarvogi og
snerist starfsemi fyrstu árin að mestu
leyti um framkvæmdir í Arnarvogi og
lögðu klúbbfélagar fram mikla vinnu við
bátasmíðar og viðgerðir á bátum. Þau
sumur sem Þytur starfaði í Arnarvogi var
haldið uppi öflugu barnastarfi bæði fyrir
félagsmenn og æskulýðshópa. Einnig var
efnt til siglingasýninga sem vöktu mikla
lukku meðal bæjarbúa. Á 20 ára afmæli
félagsins árið 1995 fékk félagið vilyrði
frá bæjaryfirvöldum um lóð sunnan við
Drafnarslipp og hófust framkvæmdir þar
vorið 1998. Þar var byggt 350 fermetra
húsnæði sem gegnir bæði hlutverki
bátaskýlis og félagsaðstöðu.
ÞETTA GERÐIST: 19. APRÍL 1975
Gróskumikill siglingaklúbbur settur á fót
UNGUR SJÓMAÐUR Ungmennanámskeið
Þyts eru vel sótt. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Í dag klukkan þrjú verður opnuð sýn-
ing í Ásgarði í Kjós sem nefnist ein-
faldlega Leiklist í Kjós. Á sýningunni
er fjallað um Loft Guðmundsson rit-
höfund og alnafna hans sem starf-
aði sem ljósmyndari. Listamennirn-
ir voru báðir fæddir í Kjós og komu
mikið að leiklist og kvikmyndagerð.
„Þeir tengjast báðir kvikmynda-
sögunni en rithöfundurinn Loft-
ur samdi leikritið Hreppstjórinn
á Hraunhamri, sem varð í kjölfar-
ið fyrsta verkefni Leikklúbbs Kjós-
verja,“ segir Ólafur J. Engilbertsson,
menningarmiðlari Sögumiðlunar sem
setur upp sýninguna. „Leikklúbbur-
inn var stofnaður árið 1978, sama ár
og rithöfundurinn lést, en það verð-
ur meðal annars fjallað um upp-
færslu þess leikrits á sýningunni.“
Ásamt Sögumiðlun koma fjölmargir
aðilar að sýningunni, meðal annars
Kjósarhreppur, Kjósarstofa, Kvik-
myndasafn Íslands og Leikminjasafn
Íslands en það er Sigþrúður Jóhann-
esdóttir sem átti hugmyndina að sýn-
ingunni. „Hún var formaður Leik-
klúbbs Kjósverja og hefur varðveitt
ljósmyndir og gögn frá starfi leik-
klúbbsins,“ segir Ólafur en klúbb-
urinn starfaði frá árinu 1978 til árs-
ins 1984. „Það var síðan í samstarfi
við Kjósarhrepp sem við ákváðum
að setja sýninguna upp í því formi að
tengja þessa tvo menn við verkefnið,“
segir Ólafur. „Þeir voru báðir frum-
kvöðlar í leikstarfi að vissu leyti og
þó þeir hafi ekki verið búsettir mikið
í Kjós þá höfðu þeir mikil áhrif á
leikstarfið hér.“ Í tilefni af opnun-
inni verður sýnd kvikmyndin Síðasti
bærinn í dalnum sem Óskar Gísla-
son gerði eftir kvikmyndasögu Lofts
Guðmundssonar rithöfundar og Þor-
leifs Þorleifssonar.
Alnafnar heiðraðir í Kjós
Menningarminjar sem varðveittar hafa verið um leikstarf Kjósverja verða til sýnis í dag í
Kjós. Meðal annars verða skoðuð áhrif Loft s Guðmundssonar og alnafna hans á leikstarfi ð.
ÁHRIFAMIKILL RITHÖFUNDUR
Loftur Guðmundsson hafði mikil áhrif á leik-
starfið í Kjós en hann skrifaði meðal annars
leikverkið Hreppstjórinn á Hraunhamri.