Fréttablaðið - 26.04.2014, Side 2
26. apríl 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2FRÉTTIR 2➜12
SKOÐUN 16
HELGIN 18➜41
SPORT 54
MENNING 78
HVER ER ÞESSI STRÁKUR? 54
Ágúst Elí Björgvinsson hefur slegið í gegn í marki FH-inga í
úrslitakeppninni í handbolta. Hann var lítt þekktur fyrir síðustu leiki.
NORÐANMENN Í BETRI MÁLUM 54
Fréttablaðið heldur áfram að spá um gengi liða í Pepsi-deild karla.
Þór verður ekki í neinni fallhættu í sumar að mati blaðsins.
SEGLAGERÐIN ÆGIR
Þar sem ferðalagið byrjar
FERÐAVAGNAR
Kolbeinn Árnason, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ, gagnrýndi
harðlega hvernig staðið var
að gerð nýs veiðigjaldafrum-
varps. Ekkert hafi verið gert til
að greina hvað sjávarútvegurinn
gæti borið í gjöld.
Jón Þór Birgisson, Jónsi í Sigur
Rós, semur ásamt Alex Somers
tónlistina í nýrri bandarískri
þáttaröð sem kallast Manhattan.
Vilborg Arna Gissurardóttir
hætti við að reyna við tind
Everest-fj alls. Sextán leiðsögu-
menn fórust í snjófl óði sem
féll við fj allið og í kjölfarið
ákváðu margir fj allgöngu-
menn að snúa heim.
Ingunn Ásdísardóttir hlaut
Íslensku þýðingarverðlaunin
fyrir þýðingu sína á Ó– Sögur
um djöfulskap eft ir Færey-
inginn Carl Jóhan Jensen.
FIMM Í FRÉTTUM ODDVITALEIT OG EVEREST-FARI
MENNING Róðukrossinn sem Sig-
urður Pálmason, eigandi Safn-
aramiðstöðvarinnar, hengdi upp í
verslun sinni í gær er talinn vera
frá 13. til 15. öld, að hans sögn. Sá
sem vill eignast gripinn, sem er
80 cm að hæð og 55 cm á breidd,
þarf að greiða fyrir hann 4,8
milljónir króna.
„Þessi kross er úr Reykjakirkju
í Tungusveit sem ég held að hafi
verið lögð niður á 19. öld en kirkj-
an var í einkaeigu. Krossinn, sem
hugsanlega var búinn að vera í
kirkju frá því fyrir siðaskipti,
komst í eigu íslenskrar fjölskyldu
þegar kirkjan var lögð niður og
sama fjölskylda hefur varðveitt
hann hingað til. Nú vill fjölskyld-
an hins vegar selja krossinn,“
segir Sigurður og bætir því við að
hann sé í mjög góðu ástandi.
„Ég hef ekki áður fengið svona
þjóðlegan merkisgrip til sölu,“
leggur hann áherslu á.
Sigurður segir starfsmann frá
Minjastofnun hafa komið í versl-
unina til sín í gær í þeim erinda-
gjörðum að vekja athygli á því að
ekki megi flytja eða selja forn-
gripi úr landi. „Mér var kunnugt
um það að ekki mætti selja kross-
inn úr landi og í gær var mér tjáð
að Þjóðminjasafnið hefði for-
kaupsrétt að krossinum.“
Anna Lísa Rúnarsdóttir, sviðs-
stjóri rannsókna- og varðveislu-
sviðs á Þjóðminjasafninu og
settur þjóðminjavörður, kvaðst í
gær enn ekki hafa skoðað kross-
inn. „Í lögum um Þjóðminjasafn
er ákvæði um friðun kirkjugripa
og við erum með skrá sem gerð
var fyrir mörgum árum yfir frið-
aða kirkjugripi.
Þjóðminjasafnið
hefur forkaups-
rétt að kirkju-
gripum úr einka-
eigu.“
Að sögn Önnu
Lísu mun Þjóð-
minjasafnið
fara yfir viðeig-
andi gögn og meta stöðuna. „Það
veltur á þeim upplýsingum sem
við finnum um hvaðan þetta er
fengið hvað þetta tekur langan
tíma. Mögulega gæti þetta legið
mjög ljóst fyrir. Miðað við mynd-
ina sem ég hef séð af krossinum er
ástæða til að skoða málið nánar.“
ibs@frettabladid.is
Róðukross til sölu á
nær fimm milljónir
Safnaramiðstöðin hefur auglýst til sölu kross sem talinn er vera nokkurra hundraða
ára gamall. Krossinn hefur verið í eigu sömu fjölskyldu frá 19. öld, að sögn eiganda
verslunarinnar. Settur þjóðminjavörður segir Þjóðminjasafnið hafa forkaupsrétt.
ANNA LÍSA RÚN-
ARSDÓTTIR
➜ Það kom framsóknarmönnum í opna skjöldu að Guðni Ágústsson skyldi ekki taka
fyrsta sætið á framboðslista þeirra í borgarstjórnarkosningunum. Þeir leita nú að oddvita.
ÚKRAÍNA, AP Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rúss-
lands, segir að aðskilnaðarsinnar í austanverðri
Úkraínu muni ekki afvopnast og láta byggingar af
hendi nema „stjórnin í Kænugarði taki til við að fram-
fylgja Genfarsamkomulaginu, rými hið smánarlega
Maidan-torg og frelsi þær
byggingar sem menn hafa
ólöglega lagt hald á.“
Genfarsamkomulagið,
sem Bandaríkin, Evrópu-
sambandið, Rússar og
Úkraínumenn gerðu með
sér í síðustu viku, felur í sér að allar byggingar sem
menn hafa ólöglega lagt hald á í Úkraínu verði rýmdar
og vopnaðir hópar leggi niður vopn sín.
Samkvæmt Lavrov felst í þessu ekki aðeins að
aðskilnaðarsinnar hliðhollir Rússlandi verði að afvopn-
ast og rýma byggingar í austanverðu landinu, heldur að
Úkraínustjórn verði einnig – og helst fyrst – að koma
Vesturlandasinnum, sem enn hafast við í tjöldum á
Maidantorgi í Kænugarði, burt af torginu og rýma
jafnframt þær byggingar, sem Vesturlanda sinnar hafa
enn á sínu valdi í Kænugarði. - gb
Lavrov segir Rússlandssinna í austurhluta Úkraínu nú bíða átekta:
Rýma þarf Maidan-torgið fyrst
VOPNAÐIR AÐSKILNAÐARSINNAR Hér er staðinn vörður
um vegatálma í Slovjansk. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
➜ Utanríkisráðherra
Rússa kallar eftir því að
Úkraínumenn virði
Genfarsamkomulagið.
NOKKUR HUNDRUÐ ÁRA Sigurður Pálmason, eigandi Safnaramiðstöðvarinnar, við
róðukrossinn sem hann hefur nú til sölu. Krossinn er úr Reykjakirkju í Tungusveit.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Krossinn, sem hugsanlega var búinn að vera í kirkju
frá því fyrir siðaskipti, komst í eigu íslenskrar fjölskyldu
þegar kirkjan var lögð niður og sama fjölskylda hefur
varðveitt hann hingað til.
Sigurður Pálmason, eigandi Safnaramiðstöðvarinnar.
LÍFIÐ 48➜60
DÝPRI OG FRJÓRRI UMRÆÐA 16
Þorsteinn Pálsson um aukinn áhuga á upplýstri umræðu um
álitaefni sem tengjast aðildarumsókn að ESB.
FATAHÖNNUÐIR FRAMTÍÐARINNAR
LÉTU LJÓS SITT SKÍNA 48
Útskrift arsýning fatahönnunarnema við Listaháskóla Íslands fór fram með pompi
og prakt á sumardaginn fyrsta í Hafnarhúsinu.
100 ÁHRIFAMESTU Í TIME
MAGAZINE 52
Time Magazine gefur út listann í 11.
sinn, en konur hafa aldrei verið fl eiri
en í ár.
RANNSAKA ALDAGAMALT
MORÐMÁL 60
Leikhópurinn Kriðpleir rannsakar
mál Jóns Hreggviðssonar, sem var
dæmdur fyrir morð fyrir rúmlega 300
árum. Niðurstöðurnar verða kynntar í
nóvember.
ÞJÓÐLEG ÞEMU Í KASSANUM 78
Sesselja G. Magnúsdóttir skrifar um
Skrattann úr sauðarleggnum.
ENDURUNNINN BACH 78
Nordic aff ect fl ytur verk Bachs í endurskrift
Hróðmars Sigurbjörnssonar.
HLJÓÐMYNDIR ÓLÍKRA
FYRIRBÆRA 78
Áshildur Haraldsdóttir og Helga Bryndís Magnús-
dóttir frumfl ytja verk íslenskra tónskálda.
HÖNNUÐIR FRAMTÍÐARINNAR 18
Útskrift arsýning Listaháskóla Íslands hefst í dag í
Hafnarhúsinu.
ERU ÍSLENDINGAR HERÚLAR? 32
Flækjusaga Illuga Jökulssonar.
STRUMPARNIR ELDAST VEL 38
Fróðleiksmoli dagsins fj allar um teiknimyndasöguna
vinsælu.
LÍKLEGT AÐ LÖG VERÐI SETT Á VERKFALL FLUGVALLAR-
STARFSMANNA 4
Ýmis rök eru sögð lúta að því að fl ugsamgöngur til og frá landinu varði almannaheill og
því megi banna verkfall með lögum.
ÍSLENDINGASÖGURNAR ÞÝDDAR 6
Heildarútgáfur Íslendingasagnanna koma út á norsku, dönsku og sænsku eft ir helgina.
ÞINGI FRESTAÐ TVISVAR 8
Brösuglega hefur gengið fyrir Framsóknar-
fl okkinn í Reykjavík að koma saman
framboðslista.
BEYGJAN VAR OF KRÖPP 12
Enn er leitað að líkum um borð í
suðurkóresku ferjunni Sewol, sem
sökk í síðustu viku.
Fréttir 2 - 12