Fréttablaðið - 26.04.2014, Síða 16

Fréttablaðið - 26.04.2014, Síða 16
26. apríl 2014 LAUGARDAGURSKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Álfrún Pálsdóttir alfrun@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is DÆGURMÁL: Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason, kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 SPOTTIÐ AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR Aðalfundur Aðalfundur Sjálfsbjargar félags fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu, verður haldinn þriðjudaginn 29.apríl 2013, kl 19:30 í félagsheimili Sjálfsbjargar, Hátúni 12. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf Önnur mál Þeir félagsmenn einir hafa kosningarét t sem hafa greit t félagsgjaldið fyrir árið 2013. Félagsmenn eru hvattir til að mæta á fundinn. Stjórnin T illaga utanríkisráðherra um að slíta aðildarvið-ræðunum við Evrópu-sambandið hefur með margvíslegu móti virkað á annan veg en hann ætlaði. Sjálfur hefur hann til að mynda viðurkennt að hafa gert mistök með því að gera sér ekki grein fyrir þeirri kröft- ugu andstöðu mikils meirihluta þjóðarinnar sem birst hefur síð- ustu vikur. Svo er annað að hann vill ekki draga neinn lærdóm af þeim mistökum. En hitt er ekki síður athyglis- vert að tillagan hefur vakið upp alveg nýjan áhuga á upplýstri umræðu um öll þau álitaefni sem aðildarumsókninni tengjast og kosti hennar og galla. Um nokk- urn tíma hefur umræðan verið föst í tiltölulega einföldum frös- um. Og eins og úttekt á frétta- flutningi Ríkis- útvarpsins sýndi hafa and- stæðingar aðild- ar verið ráðandi í umræðunni. Einfaldur hræðsluáróður hefur verið uppistaðan í rök- semdafærslunni. Engu er hins vegar líkara en að tillagan um viðræðuslit hafi leyst úr læðingi mikinn áhuga á dýpri skoðun málsins. Sú spurn- ing hefur orðið áleitnari hvað við blasir ef Evrópuleiðinni er lokað. Efasemdir um að unnt verði að tryggja til frambúðar stöðugleika án hafta eru meiri en áður. Þetta er breytt pólitískt landslag. Fyrir tveimur mánuðum gat ríkisstjórn- in verið hæfilega áhyggjulaus vegna spurninga af þessu tagi. Nú kemst hún ekki hjá því að taka þær með í reikninginn. Það er gott. En hitt er verra að hún er málefnalega illa undirbúin. Það skýrir hversu ómarkviss og fálm- kennd viðbrögð hennar hafa verið við uppreisn almennings. Skýrslur hagfræðistofnunar og alþjóðastofnunar Háskóla Íslands bæta úr sárum skorti á þekking- arundirstöðu fyrir málefnalega rökræðu. Þó að utanríkisráðherr- ann hafni þekkingarframlaginu og bindi sjálfan sig fastan við siglutré hræðsluáróðursins bend- ir flest til að þunginn í málefna- legri umræðu muni aukast. Málið verður stærra í næstu kosningum en ella hefði orðið. Dýpri og frjórri umræða Þó að skýrslurnar tvær séu góð umræðubót fer því fjarri að öll álitamál hafi verið brotin til mergjar. Tvær áhugaverðar spurning- ar vakna vegna sjávarútvegsins. Önnur lýtur að samningum við þriðju ríki um fiskveiðiheimild- ir úr deilistofnum innan og utan lögsögu. Þar er meginreglan sú að Evrópusambandið semur fyrir hönd aðildarríkjanna. Enn hefur hins vegar engin djúp greining farið fram á því hvernig kaup- in gerast á eyrinni innan banda- lagsins að þessu leyti. Við höfum langa reynslu af því að Evrópusambandið er harð- drægt fyrir hönd aðildarríkjanna. En hvernig koma þau ár sinni fyrir borð inn á við? Makríllinn er dæmi um stofn þar sem ætla má að betra hefði verið að semja áður en til mögulegrar inngöngu kæmi. En er hugsanlegt að í öðrum til- vikum gæti verið sterkara að hafa sambandið allt að baki Íslandi, til dæmis gegn Norðmönnum og Rúss- um? Þetta þarf að skoða betur. Einnig þarf að skoða hversu miklar takmarkanir á erlendri fjárfestingu í sjávarútvegi eru æskilegar. Morgunblaðið var til að mynda frá upphafi andvígt fjár- festingafyrirvaranum í samningn- um um evrópska efnahagssvæðið alveg óháð afstöðunni til aðildar. Er hugsanlegt að í ljósi mikilla tækifæra í meiri fullvinnslu og ýmiss konar hátækniiðnaði í sjáv- arútvegsklasanum hefði greinin þörf fyrir rýmri fjárfestingar- kosti? Menn eiga ekki að hrapa að niðurstöðum. En það er ástæða til að greina slík álitaefni betur. Sjávarútvegurinn Útgangspunkturinn í öllum athugunum á landbúnaðin-um í tengslum við hugsan- lega Evrópusambandsaðild er að verja óbreytt ástand. Það er virð- ingarvert út frá því sjónarhorni að menn vita hvað þeir hafa. En er ekki hitt líka spurning hver fram- tíð landbúnaðarins á Íslandi er að öllu óbreyttu? Er ekki hugsanlegt að þeir kostir séu of þröngir ætli menn sér að sækja fram? Það hefur orðið talsverð fram- leiðniaukning í landbúnaði. Bænd- um fækkaði til að mynda nokkurn veginn í sömu hlutföllum hér á tíma Guðna Ágústssonar í landbúnaðar- ráðuneytinu og í Finnlandi á fyrsta áratug Evrópusambandsaðildar. Það var til marks um framfarir bæði hér og þar. Framleiðniaukningin þarf að halda áfram eigi bændur ekki að dragast aftur úr. En það eru tak- mörk fyrir því hvað þeim má fækka án þess að það ógni tilveru grein- arinnar. Spurningin er því sú hvort ekki þarf að hugsa dæmið upp á nýtt. Gætu sóknarfæri landbúnað- arins hugsanlega falist í frjálsari viðskiptum og greiðari aðgangi að nærmörkuðum? Við áleitnum spurningum af þessu tagi eru engin einföld svör. En ástæða getur verið til að greina þær betur og skoða hvort breyting- ar gætu mögulega falið í sér meiri tækifæri en óbreytt ástand. Hér eru verkefni fyrir fræðasamfélagið. Og þó að pólitíkin sé lokuð fyrir þekk- ingaröflun er greinilegt að almenn- ingur kallar eftir frjórri umræðu. Landbúnaðurinn Þ jóðleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi leikritið Eldraunina, eða The Crucible, eftir bandaríska leikskáldið Arthur Miller. Leikritið er byggt á sögulegum atburðum sem áttu sér stað í Salem á austurströnd Bandaríkjanna við lok sautjándu aldar. Um var að ræða svokallaðar norna- veiðar eða galdraofsóknir en í leikritinu eru nokkrar ungar stúlkur staðnar að því að magna seið úti í skógi og í kjölfarið eru þær grunaðar um galdur. Rannsóknarmenn og dómarar eru kallaðir til bæjarins og stúlkurnar bregðast við með því að saka aðra í bænum um að vera andsetnir. Arthur Miller leit á verkið sem ádeilu á McCarthy- tímann fyrir sextíu árum, en þegar verkið var fyrst frum- sýnt á Broadway áttu sér stað nornaveiðar í Bandaríkjunum. Öldungadeildarþingmaðurinn Joseph McCarthy fór fyrir hópi fólks sem vildi stöðva útbreiðslu kommúnisma í Bandaríkj- unum. Sjálfur var Miller kallaður til yfirheyrslu á vegum nefndar sem kallaðist því óþjála nafni „Óameríska nefndin“. Miller var sakaður um að vera kommúnisti eða í það minnsta að hafa samúð með málstað þeirra. Hann neitaði að benda á aðra sem gætu verið hallir undir kommúnisma og var dæmdur fyrir að óvirða banda- ríska þingið. Þeim úrskurði var síðar hnekkt. Arthur Miller lifði raunverulegar nornaveiðar. Sjötti áratugur- inn í Bandaríkjunum var óhugnanlegur tími hvað varðar ofsóknir á hendur fólki með ákveðnar stjórnmálaskoðanir – og ætti að vera okkur víti til varnaðar. Nornaveiðar eru dauðans alvara og sögulega eru þær furðu nálægt okkur í tíma sem slíkar. Og því miður eru nornaveiðar eitt- hvað sem við þekkjum ágæt dæmi um í nútímanum; annaðhvort í því formi að einhver sá sem unnið hefur sér eitthvað til óhelgi að mati hóps, sem telur sig fara með kennivald, er tekinn af lífi án dóms og laga í óeiginlegri merkingu eða í formi kröfugerðar um að eðlilegar leikreglur réttarríkis séu sveigðar til móts við refsigleði múgs. Og þá er sönnunarfærsla aukaatriði. Við ættum öll að temja okkur að tala af ábyrgð um fyrirbæri sem þessi en því miður hefur borið á því, ekki síst meðal stjórn- málamanna vorra tíma, að merking orða og hugtaka hefur verið gengisfelld. Okkur hættir til að vilja líkja snarpri umræðu við nornaveiðar fyrri alda eða ofsóknir og einelti í okkar nærsam- félagi. Þannig erum við fljót að gera lítið úr því þegar fólk er raun- verulega ofsótt. Nýjasta dæmið um slíkt gæti verið Guðni Ágústs- son en hann hætti óvænt við að leiða lista Framsóknarflokksins í Reykjavík. Fjölmargir vilja rekja þá ákvörðun til ofsókna sem Guðni á að hafa sætt á netinu. Er þar talað um „óhróður“ og „net- tröll“; Sigrún Magnúsdóttir, formaður þingflokks Framsóknar- flokksins, sagði í Fréttablaðinu í gær að menn hefðu farið hamför- um í gagnrýni á Guðna á meðan hann var að hugsa sig um. „Margt af því sem birtist á bloggsíðum og víðar er ógeð,“ sagði Sigrún í gær án þess að nefna nein dæmi. Við sem höfum fylgst með umræðunni spyrjum okkur hvar þennan meinta óhróður sé að finna nema átt sé við pistla þar sem vitnað er í orð Guðna sjálfs. Það er ekkert leyndarmál að Guðni hefur í áraraðir barist gegn hagsmunum Reykvíkinga í nafni byggðastefnu. Hann hefur meðal annars flutt þingmál um að Reykvíkingar eigi að borga hærri skatta en aðrir landsmenn, svo aðeins eitt dæmi sé nefnt. Spuninn virðist sá að Guðni sé fórnarlamb nornaveiða nútíma- legra nettrölla og hafi þess vegna mátt hrökklast frá. Fólk ætti ekki að tala af svo mikilli léttúð um það þegar raunveruleg múgsefjun og nornaveiðar taka völdin. Gengisfelling orða og hugtaka: Nornaveiðar Mikael Torfason mikael@frettabladid.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.