Fréttablaðið - 17.05.2014, Qupperneq 72
17. maí 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 40
TEIKNAR ÞÚ
FLOTTAR
MYNDIR?
Sendu okkur myndina þína í pósti til
Fréttablaðsins, Skaft ahlíð 24, 105 Reykjavík
eða með tölvupósti á krakkar@frettabladid.is
Leikurinn
1. Ertu fluttur úr Skírisskógi?
Nei, í rauninni bý ég enn þá
í Skírisskóginum. Ævintýra-
skógurinn rúmar nefnilega svo
marga mismunandi heima.
Innan Ævintýraskógarins má
til dæmis finna Hálsaskóg þar
sem Lilli klifurmús og Mikki
refur búa, Dverghamra, sem
eru heimili dverganna sjö, og
líka Skírisskóg, þar sem ég bý
með mömmu og Tomma litla
bróður mínum.
2. Hverjir fleiri en þú búa í
Ævintýraskóginum? Hérna í
Ævintýraskóginum búa allar
þær ævintýrapersónur sem
þér getur dottið í hug. En
mest hangi ég með Þöll, sem
er besta vinkona mín. Já, og
Þyrnirós, sem er alveg frábær
stelpa líka.
3. Hvernig kynntistu Þyrni-
rós? Ég kynntist henni í gegn-
um Þöll, sem er sameiginleg
vinkona okkar. Við erum öll
á sama aldri svo við leikum
okkur oft saman. Oftast erum
við að æfa okkur að skjóta af
boganum. Ég get sko sagt þér
það að ég skaut einu sinni epli
af höfði Þallar í 30 metra fjar-
lægð! Þyrnirós stóð reyndar
ekki alveg á sama en ég vand-
aði mig og þrotlausar æfingar
síðustu ára eru greinilega að
skila sér.
4. Ertu hættur að ræna þá
ríku til að gefa þeim fátæku?
Ég vil ekki meina að ég ræni
þá ríku. Því það er alls ekki fal-
legt að stela. Ég tel mig frekar
vera að sækja aftur peningana
sem Jóhann prins tók af íbúum
Ævintýraskógarins. Hann skildi
þá eftir slyppa og snauða
þannig að þeir áttu ekki einu
sinni peninga til að kaupa sér
mat, hvað þá lyf. Tommi bróð-
ir minn er afskaplega veikur
og hann þarf að fá drekatár á
hverjum degi svo honum líði
aðeins betur, ég sæki pen-
inga til Jóhanns á meðan hann
sefur og fyrir þá kaupi ég
dreka tár fyrir Tomma litla.
5. Er Litli-Jón með þér í Ævin-
týraskóginum? Ég hef ekkert
hitt hann lengi. Ætli Þöll hafi
ekki tekið við hlutverki hans
sem lífsförunautur minn.
6. En fógetinn í Nottingham?
Fógetinn í Ævintýraskóginum
er afskaplega ógeðfelld kona.
Hún er með Jóhanni prinsi í
liði og hún leggur sig alla fram
við að gera líf okkar hinna í
Ævintýraskóginum óbærilegt.
7. Hvað finnst þér skemmti-
legast að gera í skóginum?
Ég hef langmest gaman af því
að skjóta af boganum mínum.
Ég, Þöll og Þyrnirós förum oft
lengst inn í skóginn og æfum
okkur tímunum saman. Við
syngjum líka mikið og förum í
alls konar leiki, eins og eltinga-
leik og feluleik.
8. Kann Þyrnirós að skjóta
af boga? Já, ég er að kenna
henni það. Hún er auðvitað
ekki alveg jafn góð í því og ég,
enda er ég búin að æfa mig
miklu meira en hún. En hún er
mjög efnileg og henni finnst
þetta gaman svo ég efast ekki
um að hún á fljótlega eftir að
verða sannkallaður bogfimi-
meistari.
9. Hver er allra besti vinur
þinn? Það er hún Þöll, við
elskum hana öll.
10. Hvað er það hræðilegasta
sem þú lendir í? Að horfa upp
á fólk vera beitt óréttlæti eða
misrétti. Fyrir mér eru allir
jafnir og allir eiga sama til-
veruréttinn, hvort sem þeir
eru fátækar ekkjur eða ríkir
prinsar. Mér finnst mikilvægt
að vera alltaf góður við alla,
menn og dýr og hjálpa þeim
sem minna mega sín.
Kaupir drekatár fyrir
Tomma bróður sinn
Hrói höttur er kominn til Íslands og verður á ferð og fl ugi um allt land í sumar
ásamt alls konar öðrum ævintýraverum úr smiðju Leikhópsins Lottu. Hrói kom
við hjá okkur og féllst á að svara nokkrum spurningum Krakkasíðunnar.
Brennibolti
Þátttakendum er skipt í tvö lið. Liðin byrja á því að velja sér höfð-
ingja sem eru staðsettir hvor á sínum enda vallarins. Miðlína skilur
á milli liðanna. Boltinn gengur síðan á milli höfðingjans og sam-
herja og þeir reyna að skjóta andstæðinga sína. Takmarkið er að
skjóta alla úr hinu liðinu. Þeir sem fá boltann í sig fara yfir til höfð-
ingjans og hjálpa honum. Þegar aðeins er einn eftir fer höfðinginn
út og hann fær alltaf boltann. Það má grípa boltann þegar verið er
að skjóta í þau, ef þau missa boltann eru þau úr og fara til höfðingj-
ans. Það lið sem er á undan að skjóta alla andstæðinga sína sigrar.
Teikningar og texti: Bragi Halldórsson
96