Fréttablaðið - 05.07.2014, Side 20
5. júlí 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 20
Sjá frekari umfj öllun og fl eiri
myndir á vísir.is
visir.is
Fjórða sumarið í röð fer hópur ungmenna um land-ið og safnar upplýsingum um eyðibýli og önnur yfir-gefin íbúðarhús í sveitum. Rannsóknaverkefnið nefn-
ist Eyðibýli á Íslandi og markmið
þess er að rannsaka og skrá umfang
og menningarlegt vægi þessara
mannvirkja. Framtíðarsýnin er
endurgerð valinna eyðibýla í sam-
starfi við eigendur þeirra og nýting
í ferðaþjónustu.
Hringnum lokað
Rannsóknarverkefnið hófst árið
2011. Það sumar voru skrásett eyði-
býli og yfirgefin hús á Suður- og
Suðausturlandi. Sumarið eftir var
Norðurland eystra og Vesturland
undir og þriðja sumarið voru það
Vestfirðirnir og Norðvesturland. Í
sumar er hringnum lokað á Austur-
landi og suðvesturhorninu. Hvert
sumar hefur átta til tíu manna
hópur ungs fólks sinnt skráningu;
margir koma að verkefninu aftur
og aftur. Afraksturinn, eins og stað-
an er í dag, er sá að fyrir sumarið
höfðu 556 hús verið færð til bókar,
en gefin hafa verið út fimm bindi
af veglegu riti sem ber nafn verk-
efnisins.
„Verkefnið á rætur sínar hjá
nokkrum einstaklingum sem hafa
áhuga á byggingarlist, menningu og
þessum manngerða arfi sem leynist
í sveitum landsins. Við fórum strax
þá leið að fá háskólanemendur til
liðs við okkur og í sumar eru þau níu
sem starfa við skráninguna,“ segir
Gísli Sverrir Árnason, menning-
ar- og stjórnsýsluráðgjafi og einn
aðstandenda verkefnisins. Hann
telur líklegt að í haust muni liggja
fyrir upplýsingar um rúmlega 700
íbúðarhús. „Það er há tala, kannski,
en samt skilgreinum við eyðibýli í
okkar rannsókn frekar þröngt.“
Skilgreiningin sem Gísli vísar
til nær til yfirgefinna íbúðarhúsa
í sveitum landsins sem ekki hafa
verið tekin til annarra nota. Þau
verða að hafa fjóra uppistandandi
útveggi, og þurfa ekki endilega að
standa á eyðijörð, heldur geta þau
staðið á jörð í búnytjum. Þessi hús
geta haft mikla þýðingu af ýmsum
ástæðum; verið merkar menningar-
minjar og mikilvægar heimildir um
byggðasögu. Aldur húsanna, húsa-
gerð eða byggingarlag þeirra getur
líka verið sérstakt.
Nýting er næsta skref
Aðstandendur verkefnisins horfa
langtum lengra en að ljúka skrán-
ingu eyðibýlanna og gefa afrakst-
urinn út á bók. Það er einungis
hugsað sem fyrsta skrefið í mun
stærra samhengi hlutanna.
„Þó að í augnablikinu einbeiti
hópurinn sér að því að ljúka rann-
sókninni, sem hefur kostað blóð,
svita og tár, þá er það draumurinn
að vinna að því með eigendum að
gera nokkur hús upp, og í fram-
haldinu taka þau í notkun í ferða-
þjónustu. Sem betur fer eru þegar
býsna mörg dæmi um það að eig-
endur húsa hafa gert upp hús sem
við höfðum þegar skráð. Það er stór-
kostlegt, hvort sem það er að ein-
hverju leyti að þakka þessu verk-
efni. Hitt get ég sagt að umfjöllun
um verkefnið hefur verið til góða,
og þetta snýst fyrst og síðast um
hugarfar. Kannski hafa heimsókn-
ir krakkanna hverju sinni, eða
útgáfa bókanna, leitt einhverjum
fyrir sjónir að eyðibýlið þeirra er
verðmæti. Þetta hafi breytt hugar-
fari eigendanna til húsanna frá því
að dæma þau ónýt yfir í að þarna
liggja bæði huglæg og efnisleg
verðmæti,“ segir Gísli.
Stundum dapurlegt
Bergþóra Góa Kvaran er einn níu-
menninganna sem annast skrán-
ingu í sumar. Hópurinn er staddur á
Austurlandi þar sem um 90 eyðibýli
hafa verið skráð. Hún lýsir vinnunni
með þeim hætti að keyrt er upp að
hverju einasta bæjarstæði til að
ganga úr skugga um að þar standi
yfirgefin hús. Leitað er til staðkunn-
ugra, en áður hefur verið safnað
grunnupplýsingum um hvert svæði
og hvar helst er að bera niður.
„Húsin eru jafn misjöfn og þau
eru mörg. Stundum er það bara
ber steinramminn. Á dögunum
sóttum við heim eyðibýli þar sem
kviknað hafði í, en mikil saga var
tengd jörðinni. Flugslys hafði orðið
þar nálægt, tóftirnar eru úti um
allt enda var um stórbýli að ræða
þegar allt var þar í blóma. Það er
mikil upplifun, enda fær maður til-
finningu fyrir því hvernig lífið var
á þessum stað á árum áður,“ segir
Bergþóra sem er á sínu þriðja sumri
á eyðibýlaveiðum. „Svo eru það hús
þar sem allt er til alls; það eru dæmi
um það að línið sé enn þá í skápun-
um. Ég hef komið inn í hús þar sem
búið var um rúmin, kaffibollar og
smáhlutir stóðu frammi í eldhús-
inu. Í öðru húsi stóðu diskar á dúk-
uðu borði, svona eins og eigendurn-
ir hefðu skroppið frá rétt fyrir mat.
Önnur hús eru nýkomin í eyði og
munu sjálfsagt grotna niður á næstu
árum,“ segir Bergþóra sem bætir
við að oft sé dapurlegt að koma
inn í húsin. „Stundum er það líka
óhugnan legt. Það verður að viður-
kennast. Margar heimsóknir vekja
hjá manni miklar tilfinningar. Eins
og þegar fólk gat ekki lengur beðið
eftir brú eða vegabótum og flosnaði
upp af góðri jörð þess vegna.“
Svavar
Hávarðsson
svavar@frettabladid.is
Færa 700 eyðibýli til bókar
Eftir sumarið verður búið að safna gögnum um rúmlega 700 hús undir merkjum verkefnisins Eyðibýli á Íslandi. Þá mun liggja
fyrir þekkingargrunnur um búsetu og líf Íslendinga fyrr á tímum. Uppbygging og nýting húsa í ferðaþjónustu verður næsta skref.
Bergstaðir
í Svartárdal
Böðvarsdalur
í Vopnafirði
Vellir í Skagafirði
Stundum er það góð tilfinning að koma að eyðibýli,
en því er lýst af þátttakendum verkefnisins að það
geti líka verið dapurlegt, jafnvel óhugnanlegt.
Þau sem skrá sögu eyðibýlanna hafa átt kost á því
að sjá landið frá nýju sjónarhorni. Þeirra mat er að
vinnan muni nýtast þeim um ókomin ár.
MYNDIR/EYÐIBÝLI Á ÍSLANDI
Unnið hefur verið að skráningu eyðibýlanna síðan 2011. Þau hafa verið mynduð og gaumgæfð innan sem utan. Við þetta framtak hefur mikilli sögu verið bjargað frá glötun.