Fréttir - Eyjafréttir - 08.01.1981, Qupperneq 1
r
>
FRETTIR I
P gárgngur l.töl lað ^
J
Árlegt
grímuball
Eyverja
Hið árlega grímuball Ey-
verja fyrir börn var s.l. þriðju-
dag í Samkomuhúsinu.
Að venju komu gestirnir
klæddir hinu beztu búning-
um, svo sem venja er. 1.
verðlaun að þessu sinni hlaut
„ungur Elliðaeyjar-graddi“,
sonur Didda í Svanhól, sem
hér er mynd af.
Vöruafgreiðsla Herjólfs í
nýtt húsnæði
Vöruafgreiðsla Herjólfs h.
f. hefur nú flutt sig úr Frið-
arhöfn í hið nýja og glæsilega
hús sitt að Básaskersbryggju.
Öll aðstaða við losun og
lestun vöru er hin bezta í hinu
nýja húsnæði, sem er um 500
fermetrar að stærð.
Skrifstofur félagsins munu
væntanlega flytja á efri hæð
hins nýja húsnæðis um næstu
mánaðamót. A neðri hæð nýja
hússins verður afgreiðsla
pappíra og geymslur fyrir
skipafélagið.
I sal vörugeymslu er sér-
stök „renna“ fyrir flutninga-
vagnana, þannig að vörur eru
teknar úr þeim á jafnsléttu og
þykir þetta hið mesta hagræði
fyrir starfsmenn.
Það er til þess tekið, að
framkvæmdir við húsið hafa
gengið einkar vel og fullkom-
lega staðizt allar áætlanir og
gott betur og þeim félögum
Knúti Akselssyni, sem hann-
aði húsið, og Valgeiri Jón-
assyni, lofað fyrir vel unnin
störf.
Úr geymslusal vöruafgreiðslu Her
jólfs h.f. á Básaskersbryggju.
- w
Friðþjófur Másson er „yfirgeneral“
í vöruafgreiðslu Herjólfs.
Þrettándagleði
Týs í gær
í gær var haldin þrett-
ándagleði Týs, svo sem
venja er, þótt einum degi
seinna væri nú í ár. Það
vakti óskipta athygli, að
Týrarar höfðu stórglæsi-
lega flugeldasýningu. 500
svokölluðum tívolíbomb-
um“ var skotið á loft, auk
annarra flugelda.
Mjög mikil vinna liggur
að baki við undirbúning
og framkvæmd þessa
mannfagnaðar, og lætur
nærri að um eitt hundrað
manns hafi lagt þar hönd
á plóginn.
RENNIBEKKIR fyrir flestar
borvélar. - -- -- -- --
Filmuframköllun -------
ÖRBYLGJUOFNAR - m ■>
5-10 gíra reiðhjól, karla og kvenna.
12 og 6 strengja gítarar - - - -
Myndavélatöskur, þær koma að
gagni í vetur -------
(Þetta er bara brot af því stórkost-
lega vöruvali sem við höfum uppá
að bjóða - !
KJARNI SF
RAFTÆKJAVERZLUN -