Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 12.03.1981, Side 1

Fréttir - Eyjafréttir - 12.03.1981, Side 1
FRETTIR VIKUBLAÐ 8. árgangur Vestmannaeyjum 12. mars 1981 10. tölublað Ágreiningur um störf í lög- regSunni Eins og komiö hefur fram hér í blaðinu og eftir miklum orörómi hér í bænum, er alvarlegur á- greiningur um mannaráðningar í lögreglunni hér í Eyjum. Hafa dagblöðin fjallað um málið og sagt frá því að skorist hafi i odda milli varðstjóra og yfirlögreglu- þjóns, vegna deilu um ráðning- ar starfsmanna. í dagblaðinu Vísi s.l. þriðjudag kemur fram, að bæði bæjarfógeti og yfirlög- regluþjónn neita að ræða um málið opinberlega, svo sem og fram kemur í svari fógeta í Frétt- um í dag, við ,,opnu bréfi“ í síðasta blaði. Þar er vísað til þess að dóms- málaráðherra ráði menn til starfa í lögregluna. Það kemur hinsvegar fram, að yfirlögregluþjónn á að gefa sin meðmæli við ráðningar á starfs- mönnum. Engum blandast hug- ur um það, að dómsmálaráð- herra hlýtur að hafa afskaplega litið til málanna að leggja, ef meðmæli eru starfsmanni áverri veginn. Það hefur hvergi komið fram opinberlega, að maðurinn, sem deilan snýst um, hafi nokk- uð unnið sér til lasts í sinu starfi, aðeins um persónulega óvild að ræða, eins og kemur fram i viðtali við hann í Vísi. Virðist sem þetta mál sé að verða að leiðindamáli, og að lögreglumenn hér skiptist í tvö lið, með og á móti. Hvort sem fógeti, yfirlögreglu- þjónn eða dómasmálaráðherra hefur úrslitavald í þessu máli, hlýtur eitthvað að vera að, ef umsagnaraðilar treysta sér ekki til að mæla með manninum. Lögreglumenn starfa hjá opin- Heimilisþjónusta Tekið hefur til starfa heimilis- þjónusta á vegum Vestmanna- eyjabæjar. Hlutverk heimilisþjónustunn- ar eraö veita hjálp á þeim heimil- ar er að veita hjálp á heimilum, aðra en hjúkrun, sé þess þörf vegna sjúkdóma, barnsburðar, örorku, elli eða af öðrum á- stæðum. 1. Aðstoð við aldraða i þeim tilgangi að gera þeim kleift að dvelja sem lengst á eigin heim- ilum. 2. Aðstoð við sjúklinga í heimahúsum i þeim tilgangi að stytta sjúkrahússdvöl eða jafn- vel koma í veg fyrir hana. 3. Umsjón með heimili, þar sem húsmóðir eða heimilisfaðir eru fjarverandi vegna veikinda. 4. Aðstoð við öryrkja sem búa einir. 5. Önnur tilfelli, sem meta þarf hverju sinni. Greiðsla fyrir heimilisþjón- ustu ersamkvæmtgjaldskrá, þar sem tekið er tillit til tekna og kostnaðar við hjálpina. Félagsmálafulltrúi tekur við beiðni um heimilisþjónustu. Frettatilkynning frá Félagsmalaraöi. Til vikublaðsins Frétta í opnu bréfi, er birtist í 9. tbl. 8. árg. Frétta er ýjað að orðrómi um að forsvarsmenn lögreglunnar séu að flæma einhverja ónefnda lögreglumenn úr starfi vegna þess að þeir hafi leitaö réttar sins i sambandi við upsagnir og mannaráðningar. Ég vil af þessu tilefni taka fram, að ég tel ekki ástæðu til, né neinum til góös, að tíunda kosti eða lesti manna opinberlega. Á hitt er rétt að benda, að þaö er dómsmálaráðherra sem ræður lögreglumenn til starfa og ég tel siður en svo, að hann hafi misbeitt valdi sínu við mannaráðningar. Með kveðju, Kristján Torfason. P.S. Er ekki almenn kurteisi að undirrita bréf, hvort sem þau eru opin eða lokuð? beru fyrirtæki, og því ættu ráðningarsamningar ekki aö vera neitt einkamál eins manns. Sé svo, hlýtur að vera misbeiting á valdi, nema annað sé leitt í Ijós. Þvi ætti það að vera öllum fyrir bestu að útkljá málið á heiðar- legan hátt. Á meöan maðurinn hefur ekkert til saka unnið, er það skylda hins opinbera, að hann fái að halda sinum rétt- indum, og séu þau fyrir borð borin, er ekki réttlátt að farið sé að eins og hér virðist vera: Enginn vill vera ábyrgur í mál- inu, vísar hver á hinn. Guðlaugur Sigurðsson. P.S. Það skal tekið fram, að hverj- um og einum er frjálst að skrifa undir dulnefni hér í blaðinu. Hið rétta nafn þarf þó að fylgja viðkomandi skrifum á handriti. Það skal einnig tekið fram að G. og G., sem skrifuðu undir ,,opið bréf" til lögreglustjóra eru með kurteisari mönnum bæjarins í annan tíma. Skýring komin í síðasta tbl. Frétta var sagt frá dularfullu máli vegna fjarveru fulltrúa bæjarins á hluthafafundi Flugleiða 23. febrúar s.l. Kom á daginn, að kjörinn fulltrúi bæjarins, Magnús H. Magnússon, mætti ekki á fund- inn, en lét íslaugu Aðalsteins- dóttur í Reykjavík fara með at- kvæöi bæjarins og greiddi hún atkvæöi gegn tillögu stjórnar Flugleiða h.f. Sem kunnugt er náði tillaga um fjölgun í stjórn Flugleiða ekki 80% fylgi hluthafa, og vant- aði aðeins innan við 1% að svo væri. I fundargerð bæjarráös s.l. mánudag má sjá, að mál þetta hefur valdið deilum og lét fulltrúi minnihlutans í bæjarráði bóka mótmæli við þessi vinnubrögð MHM. Vinabæjarmót Jyvaskyla, vinabær Vest- manneyja í Finnlandi, býður til vinabæjarmóts dagana 28.-30. maí n.k. Boðið er fjórum fulltrú- um frá Vestmannaeyjum, ásamt mökum. Opinn fundur Almennur fundur i bæjarstjóm verður n.k. laugardag kl. 16.30 í Safnahúsinu. Rétt er að vekja athygli á því að nú er bæjarstjórnarfundur utan venjulegs vinnutíma og því ættu bæjarbúar aö sjá sér fært að mæta og fylgjast með málum. Mörg mál liggja fyrir fundin- um á laugardag, m.a. fundar- gerðir bæjarráðs ofl. x®' ------ Ör»a' Styttur - Lampar - Loftljós ELECTROLUX ELDAVÉLATILBOÐIÐ STENDUR ENNÞÁ, 25% ÚTBORGUN en nú fer hver að verða síðastur! YAMAHA ORGEL Aðeins 25% útborgun KJARNI sf raftækjaverslun Skólavegi 1 - Sími 1300

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.