Fréttir - Eyjafréttir - 12.03.1981, Síða 1
FRETTIR
VIKUBLAÐ
8. árgangur Vestmannaeyjum 12. mars 1981
10. tölublað
Ágreiningur um störf í lög-
regSunni
Eins og komiö hefur fram hér í
blaðinu og eftir miklum orörómi
hér í bænum, er alvarlegur á-
greiningur um mannaráðningar
í lögreglunni hér í Eyjum. Hafa
dagblöðin fjallað um málið og
sagt frá því að skorist hafi i odda
milli varðstjóra og yfirlögreglu-
þjóns, vegna deilu um ráðning-
ar starfsmanna. í dagblaðinu
Vísi s.l. þriðjudag kemur fram,
að bæði bæjarfógeti og yfirlög-
regluþjónn neita að ræða um
málið opinberlega, svo sem og
fram kemur í svari fógeta í Frétt-
um í dag, við ,,opnu bréfi“ í
síðasta blaði.
Þar er vísað til þess að dóms-
málaráðherra ráði menn til
starfa í lögregluna.
Það kemur hinsvegar fram, að
yfirlögregluþjónn á að gefa sin
meðmæli við ráðningar á starfs-
mönnum. Engum blandast hug-
ur um það, að dómsmálaráð-
herra hlýtur að hafa afskaplega
litið til málanna að leggja, ef
meðmæli eru starfsmanni áverri
veginn. Það hefur hvergi komið
fram opinberlega, að maðurinn,
sem deilan snýst um, hafi nokk-
uð unnið sér til lasts í sinu starfi,
aðeins um persónulega óvild að
ræða, eins og kemur fram i
viðtali við hann í Vísi.
Virðist sem þetta mál sé að
verða að leiðindamáli, og að
lögreglumenn hér skiptist í tvö
lið, með og á móti.
Hvort sem fógeti, yfirlögreglu-
þjónn eða dómasmálaráðherra
hefur úrslitavald í þessu máli,
hlýtur eitthvað að vera að, ef
umsagnaraðilar treysta sér ekki
til að mæla með manninum.
Lögreglumenn starfa hjá opin-
Heimilisþjónusta
Tekið hefur til starfa heimilis-
þjónusta á vegum Vestmanna-
eyjabæjar.
Hlutverk heimilisþjónustunn-
ar eraö veita hjálp á þeim heimil-
ar er að veita hjálp á heimilum,
aðra en hjúkrun, sé þess þörf
vegna sjúkdóma, barnsburðar,
örorku, elli eða af öðrum á-
stæðum.
1. Aðstoð við aldraða i þeim
tilgangi að gera þeim kleift að
dvelja sem lengst á eigin heim-
ilum.
2. Aðstoð við sjúklinga í
heimahúsum i þeim tilgangi að
stytta sjúkrahússdvöl eða jafn-
vel koma í veg fyrir hana.
3. Umsjón með heimili, þar
sem húsmóðir eða heimilisfaðir
eru fjarverandi vegna veikinda.
4. Aðstoð við öryrkja sem
búa einir.
5. Önnur tilfelli, sem meta
þarf hverju sinni.
Greiðsla fyrir heimilisþjón-
ustu ersamkvæmtgjaldskrá, þar
sem tekið er tillit til tekna og
kostnaðar við hjálpina.
Félagsmálafulltrúi tekur við
beiðni um heimilisþjónustu.
Frettatilkynning frá Félagsmalaraöi.
Til vikublaðsins
Frétta
í opnu bréfi, er birtist í 9. tbl. 8. árg. Frétta er ýjað að orðrómi
um að forsvarsmenn lögreglunnar séu að flæma einhverja
ónefnda lögreglumenn úr starfi vegna þess að þeir hafi leitaö
réttar sins i sambandi við upsagnir og mannaráðningar.
Ég vil af þessu tilefni taka fram, að ég tel ekki ástæðu til, né
neinum til góös, að tíunda kosti eða lesti manna opinberlega.
Á hitt er rétt að benda, að þaö er dómsmálaráðherra sem
ræður lögreglumenn til starfa og ég tel siður en svo, að hann
hafi misbeitt valdi sínu við mannaráðningar.
Með kveðju,
Kristján Torfason.
P.S.
Er ekki almenn kurteisi að undirrita bréf, hvort sem þau eru
opin eða lokuð?
beru fyrirtæki, og því ættu
ráðningarsamningar ekki aö
vera neitt einkamál eins manns.
Sé svo, hlýtur að vera misbeiting
á valdi, nema annað sé leitt í Ijós.
Þvi ætti það að vera öllum fyrir
bestu að útkljá málið á heiðar-
legan hátt. Á meöan maðurinn
hefur ekkert til saka unnið, er
það skylda hins opinbera, að
hann fái að halda sinum rétt-
indum, og séu þau fyrir borð
borin, er ekki réttlátt að farið sé
að eins og hér virðist vera:
Enginn vill vera ábyrgur í mál-
inu, vísar hver á hinn.
Guðlaugur Sigurðsson.
P.S.
Það skal tekið fram, að hverj-
um og einum er frjálst að skrifa
undir dulnefni hér í blaðinu. Hið
rétta nafn þarf þó að fylgja
viðkomandi skrifum á handriti.
Það skal einnig tekið fram að G.
og G., sem skrifuðu undir ,,opið
bréf" til lögreglustjóra eru með
kurteisari mönnum bæjarins í
annan tíma.
Skýring
komin
í síðasta tbl. Frétta var sagt frá
dularfullu máli vegna fjarveru
fulltrúa bæjarins á hluthafafundi
Flugleiða 23. febrúar s.l.
Kom á daginn, að kjörinn
fulltrúi bæjarins, Magnús H.
Magnússon, mætti ekki á fund-
inn, en lét íslaugu Aðalsteins-
dóttur í Reykjavík fara með at-
kvæöi bæjarins og greiddi hún
atkvæöi gegn tillögu stjórnar
Flugleiða h.f.
Sem kunnugt er náði tillaga
um fjölgun í stjórn Flugleiða
ekki 80% fylgi hluthafa, og vant-
aði aðeins innan við 1% að svo
væri.
I fundargerð bæjarráös s.l.
mánudag má sjá, að mál þetta
hefur valdið deilum og lét fulltrúi
minnihlutans í bæjarráði bóka
mótmæli við þessi vinnubrögð
MHM.
Vinabæjarmót
Jyvaskyla, vinabær Vest-
manneyja í Finnlandi, býður til
vinabæjarmóts dagana 28.-30.
maí n.k. Boðið er fjórum fulltrú-
um frá Vestmannaeyjum, ásamt
mökum.
Opinn fundur
Almennur fundur i bæjarstjóm
verður n.k. laugardag kl. 16.30 í
Safnahúsinu.
Rétt er að vekja athygli á því
að nú er bæjarstjórnarfundur
utan venjulegs vinnutíma og því
ættu bæjarbúar aö sjá sér fært
að mæta og fylgjast með málum.
Mörg mál liggja fyrir fundin-
um á laugardag, m.a. fundar-
gerðir bæjarráðs ofl.
x®' ------
Ör»a'
Styttur - Lampar - Loftljós
ELECTROLUX
ELDAVÉLATILBOÐIÐ STENDUR
ENNÞÁ, 25% ÚTBORGUN
en nú fer hver að verða síðastur!
YAMAHA ORGEL
Aðeins 25% útborgun
KJARNI sf
raftækjaverslun
Skólavegi 1 - Sími 1300