Fréttir - Eyjafréttir - 07.05.1981, Síða 1
r
FRETTIR (
■ VIKUBLAÐ f
8. árgangur Vestmannaeyjum 7. maí 1981 18. tölubla^j^
J
MALLORKA
(nt(KVTH(
VESTMANNAEYJAUMBOÐ:
ENGILBERT GÍSLASON
KOSTAKJÖR
SÍMI 2220 - 1318
Glæsilegur
S.l. laugardag var nýr salur
í Samkomuhús Vestmanna-
eyja vígður og er hann tengd-
ur við „litla salinn“ sem lokið
var við 1974. Haustið 1979
hófust framkvæmdir við and-
dyri nýbyggingarinnar.
Það er teiknistofan Arko í
Reykjavík sem gerði nýjar
teikningar að þeim hluta ný-
byggingarinnar, sem nú hef-
ur verið tekinn í notkun, 200
fermetrar.
Þessi nýi salur er mjög
smekklega unninn, bólstraðir
bekkir, teppalagt í hvert horn
og salernisaðstaða til mikillar
fyrirmyndar, en þar er gert
ráð fyrir að fatlaðir geti
komist um.
Þegar stækkun hússins var
ákeðin var strax mörkuð sú
stefna að gera ráð fyrir vín-
veitingum í veitingasölum
nýbyggingarinnar, enda tími
kominn til að leggja niður
svokallaða ,,vínlausa“ staði,
sem reynslan hefur sýnt að
meira er drukkið á.
Með tilkomu þessa nýja
salar skapast möguleikar fyrir
fólk yfír tvítugt að fara út
að skemmta sér og kaupa vín á
staðnum. Bæjarstjórn hefur
heimilað vínveitingar á föstu-
dags- og laugardagskvöldum,
en húsið fór ekki fram á
meira.
Almennir dansleikir munu
verða áfram með svipuðu
sniði í eldri salnum en þar eru
flestir gestir áaldrinum 16-18
ára og verði aldurstakmark þá
20 ára þegar dansleikir eru í
eldri sal fyrir 16-20. Aldurs-
takmark á almenna vínveit-
ingastaði er 18 ára, en þeir
sem eru orðnir tvítugir mega
þó aðeins kaupa vín.
Hefur verið haft á orði, að
staður sem þessi hefði átt að
vera kominn fyrir 10 árum
hér í Eyjum, en vasapelaböll
hafa tíðkast hér í meirihluta.
Þótt hátt sé til lofts í
þessum nýja sal Samkomu-
hússins er hann mjög hlýleg-
ur og setja blóm, sem eru við
skemmtistaður opnaður
Úr nýja sal Samkomuhússins.
stigann upp í „litla salinn“
mjög skemmtilegan og hlý-
elgan svip á umhverfíð.
Kl. 21.00 á laugardags-
kvöld var opnunarhátíð í nýja
salnum og varð uppselt á þá
hátíð. Jón Karlsson, fram-
kvæmdastjóri hússins sagði
eftir þetta kvöld, að um-
gengni gesta hefði verið til
mikillar fyrirmyndar og er
það góð byrjun.
Vonandi er að gestir sýni
Ný verslun
Eigendaskipti hafa orðið á versl-
uninni Fancv við Vestmannabraut.
Hinir nýju eigendur eru þær Mattý
Guðmundsdóttir og Guðmunda
Hjörleifsdóttir.
þessu framtaki þá virðingu að
gengið verði vel um og eins að
snyrtilegur klæðnaður verði í
hávegum hafður.
Aætlað er að verða með
matsölu frá kl. 19-21, þegar
eldhús hefur verið gert klárt,
en nú þegar er selt smurt
brauð á staðnum.
Fréttir óska Samkomuhús-
inu til hamingju með þennan
áfanga og vonar að fram-
haldið verði ekki síðra, en það
sem komið er.
Ætla þær að kappkosta að hafa á
boðstólum barna- og unglingafatn-
að, buxur og peysur á dömur og
herra, frúa- og tækifærisfatnað og
sitthvað fleira.
Fréttir óska þeim stöllum góðs
gengis í versluninni.
Borðtennismót
N.k. laugardag fer fram
borðtennismót skólanna og
tómstundaráðs í Félagsheim-
ilinu og hefst það kl. 10.00.
Vitað er að töluverð þátt-
taka verður í mótinu, sem
skipt er niður í tvo keppn-
isflokka. Það er meistari
Barnaskólans og meistari
Gagnfræðaskólans.
keppni í eldri flokknum
hefst kl. 10.00, en keppni í
yngri flokkunum hefst kl.
13.00.
Tómstundafulltrúi.
r-
Agóði hlutaveltu
Hjálmar Baldursson, Aðalsteinn
Baldursson, Þórina Baldursdóttir
go Soffía Baldursdóttir, Kirkju-
bæjarbraut II, og Valgerður K.
Harðardóttir Heimagötu 28 og
Ragnar Olason, Vesturvegi 29, gáfu
Sjálfsbjörgu Vestmannaeyjum kr.
118, sem hér með er móttekið með
þakklæti.
Sjálfsbjörg.
Gáfu eins
dags laun
Starfsmenn í Netagerðinni
Ingólfí gáfu eins dags laun sín
til Verndaðs vinnustaðar, að
upphæð kr. 4.930. Alls voru
það 13 starfsmenn sem gáfu
laun sín.
Móttekið með innilegu
þakklæti.
Sjálfsbjörg
Vestmannaeyjum.
ELECTROLUX!
Isskápar, eldavélar og ryksugur eru enn á
tilboðsverði. Athugið að tilboðið stendur
enn3 25% út og rest á 5 mánuðum.
Þetta eru alveg sérstök kjör fyrir Vest-
manneyinga í tilefni vertíðarlokanna.
Gjörðu svo vel og líttu inn hjá okkur.
KJARNI
sf RAPTÆKJAVERSLUN