Fréttir - Eyjafréttir - 07.05.1981, Page 2
í FRÉTTIR )
P Útgefandi. Eyjaprent h.f. - Ábm.: Guðlaugur Sigurðsson. Tölvu- ^
setning og offset: Eyjaprent h.f. Upplag: 2000 stk. vikulega.
Stórgjaflr til byggingar VVV
A fundi framkvæmda-
stjórnar Verndaðs vinnustað-
ar í Vestmannaeyjum s.l.
sunnudag voru eftirtalin
kjörin í Fjármála- og fjár-
öflunarnefnd: Jóhann Frið-
fmnsson, Einar V. Bjarna-
son, Gunnlaug Einarsdóttir,
Jóhann Olafsson og Guðjón
Olafsson.
Eftirtaldar peningagjafír
hafa borist í vikunni: Agóði af
merkjasölu 1. maí krónur
4.076,60. Ágóði af kaffisölu í
Alþýðuhúsinu og gjafir kr.
7.900,10. Ágóði af lokafagn-1
aði starfsfólks ísfélags Ve. í
Samkomuhúsinu kr. 5.551,50.
Um leið og þakkað er fyrir
þessar höfðinglegu gjafir ber|
sérstaklega að færa Hermanni
Jónssyni, hraunbúðum þakk-
ir, en hann afhenti kr. 1000 til
eflingar málefninu, sem hlot-
ið hefur mikinn meðbyr bæj-
arbúa og er það hvatning til
okkar, sem fyrir það störfum.
Vm., 6. maí 1981
f.h. fjáröflunarnefndar VVV,
Jóhann Friðfínnsson.
Vestmanneyingar,
takið eftir
Blómabíll frá Blómaborg, Hveragerði, verður
staðsettur við Bárustíg fimmtudag (í dag) kl. 18-22
og föstudag (á morgun) kl. 09-21.
Á boðstólum verður vandað og fjölbreytt úrval af
pottaplöntum og blómstrandi pottaplöntum. Einn-
ig úrval af nýafskornum blómum fyrir loka-
daginn.
BLÓMABORG, sími 99-4225
Nemendatónleikar
Nemendatónleikar og skólaslit Tónlistarskólans
verða á laugardaginn 9. maí kl. 16.00 í Bæjar-
leikhúsinu. - Allir velkomnir.
Skólastjóri.
ORÐSENDING
til viðskiptabáta og togara
frá frystihúsunum í Vest-
mannaeyjum
Vegna sumarleyfa í frystihúsunum 3. ágúst til 23.
ágúst n.k. verður ekki tekið á móti hráefni til vinnslu
frá síðasta löndunardegi fyrir Þjóðhátíð til 23. ágúst
1981.
Fyrsti löndunardagur eftir sumarleyfi verður
mánudagur 24. ágúst 1981.
Vestmannaeyjum, 2. maí 1981.
Fiskiðjan h.f.
Isfélag Vestmannaeyja h.f.
Vinnslustöðin h.f.
flLKYNNING
um aðstöðugjald í Vestm.eyjum ‘81
Bæjarstjórn Vestmannaeyja hefur ákveðið að leggja á
aðstöðugjald í Vestmannaeyjum árið 1981, skv. V. kafla laga
nr. 73/1981 um tekjustofna sveitarfélaga og reglugerð nr.
81/1962. Skv. ákvörðun bæjarstjórnar verður gjaldstigi sem
hér segir:
1. Af rekstri fiskiskipa og flugvéla ...................0,33%
2. Af fiskiðnaði og rekstri verslunarskipa..............0,65%
3. Af öllum öðrum iðnrekstri............................1,00%
4. Af öðrum atvinnurekstri .............................1,30%
Skv. ákvörðun bæjarstjórnar eru mjólkurvörur undanþegnar úr aðstöðugjalds-
stofni matvöruverslana, þ.e. vörur frá Osta- og smjörsölunni og Mjólkursam-
sölunni, þó ekki ávaxtadrykkir og ís.
Aðstöðugjaldsskyldir aðilar skulu skila skattstjóra sérstakri greinargerð um aðstöðu-
gjaldsskyldan rekstrarkostnað í því formi sem ríkisskattstjóri hefur ákveðið. Greinargerð
þessari skal skila með sakttframtali framtalsskyldra aðila samkvæmt lögum um
tekjuskatt og eignaskatt, en þeir, sem undanþegnir eru þeirri framtalsskyldu skulu skila
umræddri greinargerð ásamt ársreikningi til skattstjóra eigi síðar en 31. maí n.k.
Aðstöðugjaldsskyldir aðilar sem eigi skila nefndri greinargerð geta sætt áætlun
aðstöðugjaldsins.
Vestmannaeyjum 29. apríl 1981.
Skattstjóri.
Sumarleyfi í ágúst
Oft hefur komið til um-
ræðu hjá frystihúsunum í
Eyjum að hafa samræmd
sumarleyfi starfsfólks í ágúst
að lokinni Þjóðhátíð.
Nú hafa húsin ákveðið
sumarleyfi á tímabilinu 3.
ágúst til 23. ágúst n.k., þ.e. í
þrjár vikur.
Vegna sumarleyfanna verð-
ur ekki tekið á móti hráefni til
vinnslu í frystihúsunum frá
síðasta löndunardegi fyrir
Þjóðhátíð til 23. ágúst n.k.
Fyrsti löndunardagur eftir
sumarleyfi verður mánudag-
ur 24. ágúst.
Þrátt fyrir að ekki verði
tekið á móti hráefni til vinnslu
í 4 vikur og starfsfólk fari í
almennt í frí, verður húsun-
um ekki alveg lokað, því
reikna má með að nokkrir
starfsmenn geti ekki tekið frí
á þessum tíma, þá verða
afskipanir ofl. á tímabilinu.
Segja má að ágústmánuður
sé að verða allsherjar sum-
arleyfismánuður hér í Eyjum
og miðar fólk sumarleyfi sín
almennt við að fara í frí í
þjóðhátíðarvikunni eða næstu
viku á eftir.
Reikna má með að út-
gerðarmenn noti tímann til að
útbúa báta sína fyrir síldar-
vertíðina og togararnir munu
flestir fara í slipp meðan á
stoppinu stendur.
Forráðamönnum Verka-
lýðsfélaga, Utvegsbænda og
bæjarins hefur verið gerð
grein fyrir ákvörðun hús-
anna um sumarleyfin og hafa
þessir aðilar tekið ákvörð-
uninni með skilningi.
Fréttatilkynning frá frysti-
húsunum í Vestmannaeyjum.
VERÐLÆKKUN!
SYKUR 2 KG.
áður kr. 15.90
nú kr. 13.30
HOLAGOTU 28