Fréttir - Eyjafréttir - 16.07.1981, Blaðsíða 1
>
FRETTIR (
VIKUBLAÐ f
8. árgangur Vestmannaeyjum 16. júlí 1981 28. tbl.
J
AÐSENT BRÉF:
roðann í austri
66
Einn dag í vor sáu
eyjaskeggjar að Safna-
húsið þeirra var orðið
rautt að norðanverðu. Þá
sáu margir rautt í meira
en einni merkingu. Og
liturinn ekki heldur í takt
við meirihlutann okkar,
sem er í mesta lagi
rauðskjöldóttur.
Menn töluðu um furðu-
legt smekkleysi, en fólk
sem býr á eyju og fer á
mis við meiriháttar list-
rænar uppákomur, ber
vitaskuld ekki skynbragð
á æðri sjónmenntir.
Nú hafa FRÉTTIR upp-
lýst, að sá sem litnum
réði er arkitekt í Kanada
og ekki dregið í efa færni
hans í sinni grein. Hitt eru
nokkur tíðindi, að þeir
sem gera skipulagsupp-
drætti ráði litum húsa á
svæðinu. Stundum hafa
arkitektar húsa haft hönd
í bagga um iitaval húsa,
sem þeir hanna, en ekki
hér, enda eru þeir arki-
tektar íslenskir.
Áður fyrr hefði það þótt
með ólíkindum, að menn
úr öðrum heimsálfum
ættu eftir að ráða lit á
húsum í Eyjum. - Er búið
að spyrja kanadamann-
inn hvernig liturinn á
Ráðhúsinu megi vera?
Gjafir til
byggingar
V.V.V.
Nýlega hafa fjáröflunar-
nefnd Verndaðs vinnustaðar
borist eftirtaldar gjafir, sem
hér með er þakkað fyrir:
Áheit frá M.R. kr. 100. Gjöf
frá skipshöfninni á b.v. Vest-
mannaey VE 54 kr. 6.300.
Vestmannaeyjum 10. júlí 1981.
F.h. fjáröflunarnefndar VVV,
Jóhann Friðfinnsson.
Fréttatilkynning
Um leið og fjáröflunar-
nefnd Verndaðs Vinnu-
staðar þakkar höfðing-
legar gjafir, sem borist
hafa, leyfir hún sér að
benda bæjarbúum á, að
opnaður hefur verið vá-
tryggður sparireikningur
NR. 700188 í Útvegs-
bankanum.
Nefndin heitir á alla, að
styðja framgang málsins.
Þjóðhátíðar-
lagið
Lengi hefur það verið
árlegur siður að fá samið
sérstakt Þjóðhátíðarlag
fyrir hverja Þjóðhátíð.
Má þar sérstaklega
minnast hinna fallegu og
vinsælu laga, sem Odd-
geir heitinn Kristjánsson
samdi um árabil, helst
við texta Árna úr Eyjum
eða Ása í Bæ.
Auglýst var sérstaklega
eftir Þjóðhátíðarlagi í ár
og bárust fjölmörg lög úr
ýmsum áttum. Sérstök
dómnefnd var sett á lagg-
irnar og hún valdi úr lag,
sem Ingólfur Jónsson frá
Dalvík samdi, lag og Ijóð.
Þjóðhátíðarlag Ingólfs
verður frumflutt á kvöld-
dagskrá föstudagsins.
Þessir hressu peyjar voru meðal farþega í Herjólfi
um hvítasunnuna og fengu þeir að gægjast út um
gluggann í brúnni, eins og góðum skipstjóraefnum
sæmir.
MALLORKA
ÍITWMIK
VESTMANNAEYJAUMBOÐ:
ENGILBERT GÍSLASON
KOSTAKJÖR
SÍMI 2220 - 1318
Nýr bátur
í flotann
Fiskimjölsverksmiðjan hf.
hefur fest kaup á 700 tonna
loðnuskipi, áður Haförninn,
þar áður Loftur Baldvinsson
EA. Skipið heitir nú Sig-
hvatur Bjarnason VE 81 og
er það byggt í Noregi 1968,
en var lengt 1973.
---------------------
Þjóðhátíðar-
blað
I áraraðir hefur verið geílð
út sérstakt þjóðhátíðarblað
og mun slíkt blað koma út
helgina fyrir Þjóðhátíð. Rit-
stjórar blaðsins eru þeir Her-
mann Einarsson og Sigurgeir
Jónsson.
Blaðið er fjölbreytt að efni
og myndum og allur frá-
gangur hinn vandaðasti.
Blaðið er prentað í prent-
smiðjunni Eyrún í Vest-
mannaeyjum.
-
Verðið
í Dalinn
Nú hefur þjóðhátíðar-
nefnd Týs ákveðið verð á
aðgöngumiða á Þjóðhátíð
1981.
Verðið er kr. 400,- á
mann. Börn innan ferm-
ingar og ellilífeyrisþegar
þurfa ekkert að borga.
Hækkun á verði að-
göngumiða milli ára er
100%, þar sem á síðustu
þjóðhátíð kostaði gkr. 20
þúsund.
Verði sama verðlags-
þróun ríkjandi hjá íþrótta-
félögunum verður miða-
verðið í Dalinn kr. 800
árið 1982, kr. 1600 árið
1983, kr. 3200 árið 1984
og á því herrans ári 1985
kostar kr. 6400 í Dalinn.
- Nú er komið í versl-
anir þjóðhátíðarkönnur
og öskubakkar og bolir
væntanlegir eftir helgi.