Fréttir - Eyjafréttir - 29.07.1981, Blaðsíða 1
Tvær fimm stjörnu
ferðir til Amsterdam
21. og 28. ágúst.
- „Hræbillegt" -
VESTMANNAEYJAUMBCH):
ENGILBERT GÍSLASON
KOSTAKJÖR
SÍMI 2220 - 1318
GLEÐILEGA
ÞJÓÐHÁTIÐ
1981 -
Kokkaskólinn endur-
vakinn í Eyjum?
Stjórn Útvegsbændafélags
Vestmannaeyja ætlar að
reyna að koma því til leiðar,
að starfræksla kokkaskóla
verði tekin npp aftur hér í
Eyjum.
A árunum um og eftir 1970
var starfræktur kokkaskóli
hér c.a. annað hvert haust.
Fór verkleg kennsla fram í
mötuneyti Isfélagsins, en bók-
leg kennsla í Stýrimanna-
skólanum.
Nú í seinni tíð hefur borið
verulega á því hér í Eyjum, að
skortur er á vönum mat-
sveinum á Eyjaílotann. En
sífellt eru gerðar meiri kröfur
til þeirra, sem vinna við mat-
reiðslu um borð í fiskiskipum.
Útvegsbændafélagið hefur
rætt við forráðamenn Isfé-
lagsins um aðstöðu fyrir verk-
lega kennslu í mötuneyti
þeirra, þá hefur Sigurgeir
Jóhannsson, forstöðumaður
mötuneytisins fallist á að taka
að sér að veita verklega
hlutanum forstöðu. Þá má
búast við góðri fyrirgreiðsiu
Framhaldsskólans hér í sam-
bandi við bóklega námið.
Útvegsbændur hafa snúið
sér ti! bæjarráðs og farið þess
á leit, að bæjarráð beiti sér
fyrir því, að yfirvöld mennta-
mála í Réykjavík heimili
starfrækslu kokkaskóla hér
með svipuðu sniði og áður og
að hann geti hafið starfrækslu
næsta haust. Þá er farið fram
á svipaðan styrk frá bænum
við starfsemina bg.áðfur/fyrr.
Ekki þarf að efast um, að
hér er hreyft þörfu máli og
verður að vona, að yfirstjórn
menntamála og Matsv^ina-
skólans í Reykjavík veiti
nauðsynleg leyfi, þannig að
hægt verði að fara afstað með
kokkaskóla hér í haust.
Skattarnir eftir Þjóð-
Fréttir höLðu samband
við Inga Tómas Björns-
son, skattstjóra og spurð-
ist fyrir um skattskrána.
Ingi sagði að álagning-
arseðlar færu í póst eftir
helgina og fljótlega í
naestu viku mega bæjar-
Leigu-
íbúðir
Umræður fara nú fram
hjá bæjaryfirvöldum um
stefnumörkun, hvað varð-
ar fjölda leiguíbúða á
vegum bæjarráðs.
Arið 1977 voru hér í
eigu bæjarsjóðs 105 leigu-
íbúðir en eru nú komnar
niður í 51. Þannig má
segja, að verulegt átak
hafi verið gert á þessum
árum, til að fækka leigu-
íbúðum.
Uppi munu vera hug-
myndir um að selja fleiri
,,telescope“-hús og enn-
fremur rauðu húsin við
Ashamar, og fleiri.
Þá eru uppi hugmyndir
um byggingu íbúða til
leigu. Mótbárur munu
verulegar gegn þessari
hugmynd.
Einnig eru hugmyndir
um að kaupa íbúðir af
verktökum, þannig að í-
búðirnar væru ekki allar á
sama stað.
A næstu vikum mun
fara fram umræða á veg-
um bæjaryfirvalda um
þessi mál, þ.e. stefnu-
mörkun, hvað varðar í-
búðafjölda í eigu bæjar-
sjóðs, og fyrirkomulag.
búar líta augum skattana
sína fyrir árið 1980.
Vegna mikilla breyt-
inga á skattalögum og á-
lagningaraðferðum hefur
þó tekist að koma skött-
unum í gegnum kerfið á
svipuðum tíma og fyrri
ár.
Eyjabúar geta því á-
hyggjulaust haldið gleði-
lega Þjóðhátíð í ár.
.
Eitt af mörgu, sem
náttúra Eyjanna skart-
ar, er þessi „ranafíll"
viö Kaplagjótu.
Ljósm.: Sigurgeir Jónasson.
SKÝLH) AUGLÝSIR:
Öl - Gos - Sælgæti.
Opið alla Þjóðhátíðardagana kl. 11
til 20.
Fyrri sendingin af peys-
unum seldist upp, ný
sending komin!
SK9LI0
Hækkun
Félagsmálaráð hefui
samþykkt að fara fram á
hækkun dagvistunargjalda
um 18% fráog með 1. júlí.
Frímiðar
í Dalinn
: ' 'Í9 d.i'i'.:' 'M’ v • ;
Þjóðhátíðarnefnd Týs
1981, hefur ákveðið að
unglingar undir 14 ára
aldri (innan fermingar) og
fólk eldra en 60 ára fái frítt
í Dalinn á Þjóðhátíð.
Aður var sú regla að
börn innan férmingar og
fólk 67 árá ' (ellilífeyris-
þegar) og eldri fengi frítt.
Aðsókn í
lampann
Á fundi fyrir nokkru hjá
stjórn Iþróttamiðstöðvar
var mikið rætt um sólar-
lampann og kom fram hjá
framkvæmdastjóra, að
upppantað er í lampann
fram til 1. september frá
kl. 7 á morgnana til kl.
hálftíu á kvöldin.
Stjórn Iþróttamið-
stöðvar fór því fram á við
bæjarráð að fá heimild til
að panta annan sólar-
lampa.
Sárt tap
Hún er fallvölt knatt-
spyrnar, eins og oft áður.
Það sást best, er Akurnes-
ingar komu, sáu og sigr-
uðu lið ÍBV í 1. deild-inni
s.l. laugardag.
Aðeins 4 dögum áður
rassskelltu ÍBV menn Ak-
urnesinga í bikarkeppn-
inni með 5 mörkum gegn
engu, en á laugardaginn,
sigruðu Akurnesingar, 2
mörk gegn 1.
Næsti leikur ÍBV í 1.
deildinni er í kvöld, mið-
vikudag, í Reykjavík og
verður leikið við eitt af
botnliðunum, KR. Gangi
ykkur vel strákar!