Fréttir - Eyjafréttir - 17.09.1981, Síða 1
Stærsta fréttablaö Eyjanna ESna óhðða blaðið í Eyjum
111 u ■■ ■.. ij
Fréttir | kom® út I 2300 ein- tökum vikuiega
8. árgangur Vestmannaeyjum 17. september 1981
37. tölublað
Landkrabbi skrifar:
HVAÐ VERÐUR
FRAMSÓKN?
Fyrir síðustu bæjarstjórn-
arkosningar töldu flestir að
staða Framsóknar væri næsta
vonlítil. Margir spáðu því, að
flokkurinn fengi ekki mann
kjörinn í bæjarstjóm. Aldeilis
annað varð uppi á teningn-
um. Kraftaverkið gerðist.
Hinn gamalreyndi pólitík-
us, Sigurgeir Kristjánsson,
neyttia allra bragða til að
halda sínum hlut og tókst
það. Fyrir kosningar voru
Framsóknarmenn eins og svo
oft áður, opnir í báða enda,
töldu vel hugsanlegt að vinna
með Sjálfstæðismönnum.
Sérstaklega var þessari að-
ferð beitt við þá, sem taldir
voru líklegir til að kjósa í-
haldið. Við vinstri menn var
sagt, að nauðsynlegt væri að
kjósa framsókn, svo þeir
UM
dyttu ekki út úr vinstra sam-
starfinu.
Með þessu tókst að hala inn
drjúgt af atkvæðum.
Segja verður að úrslit síð-
ustu kosninga hafí fyrst og
fremst verið sigur Sigurgeirs.
maðurinn margreyndur og
drjúgur í fyrirgreiðslupólitík-
inni. Einnig er Sigurgeir
sleipur fundarmaður og tókst
Uppskeruhátíð skólagarðanna
Um síðastliðna helgi var
tekið upp í skólagörðunum,
og var uppskeran dálítið mis-
jöfn. Agætis uppskera var
undir kartöflugrösunum og
radísunum, en minna var um
annað góðgæti.
Næstkomandi laugardag
verður haldin uppskeruhátíð
Skólagarðanna og verður
hún haldin í Félagsheimilinu
við Heiðarveg og hefst kl.
13.30. Áætlað er að sýna Þar
kvikmyndír, það er teikni-
Náms-
flokkarnir
hefja starf
Eins og fram kemur í
auglýsingu á öðrum stað hér
í blaðinu, þá er innritun í
Námsflokka Vestmannaeyja
hafin. Að venju er boðið
upp á fjölbreytt námsfram-
boð. Ný grein á haustönn er
matreiðslunámskeið fyrir
byrjendur og þó sérstaklega
karlmenn. Þetta er alhliða
námskeið þar sem áhersla
verður lögð á tilbreytningu
þótt efnið sem unnið er úr sé
hefðbundið. Eru karlmenn
sérstaklega til að taka þátt í
þessu námskeiði.
Þá hafa Námsflokkar Vm.
áhuga á að bjóða upp á
Pfaffsníðanámskeið. Til
þess að svo geti orðið þarf
tiltekinn lágmarksfjöldi
þátttakenda. Því eru allir
þeir sem áhuga hafa á slíku
námskeiði beðnir að hafa
samband við forstöðumann
í síma 1078 eða 1499.
Fréttatilkynning.
myndir síðan Abott og Costello
og Marx bræður, þá verður
eitthvað góðgæti á boðstólum.
Krakkar mætið stundvíslega
og þið megið taka með ykkur
systkini ykkar.
Tómstundafulltrúi
INNBROT
Fyrir nokkrum dögum var
brotist inn á trésmíðaverkstæð-
ið í Hellisholt og þaðan stolið,
borvél, röraþvingum og öðrum
handverkfærum. Það eru vin-
samleg tilmæli til þeirra, sem
hafa orðið varir grunsamlegra
mannafcrða þar að undan-
fornu, láti lögrcgluna vita, eða
Þór Engilbertsson Ásavegi 23 í
síma 2418 í hádegi og í síma 2331
á kvöldin. - Það er sjálfsagt að
lána mönnum handverkfæri, en
að þau séu tekin ófrjálsri hendi,
kunnurn við illa við, sögðu
smiðir í Hellisholti.
„Okkur þykir rétt að
benda á, að þóttfullorðnir
hafa ntikið að gera, þá
gildir það sama um okk-
ur!“, gcetu þessir krakkar
verið að segja. _________
vel upp á framboðsfundinum
pg hreinlega „grillaði“ komm-
ana.
Þá má ekki gleyma því, að
annað sætið skipaði sérlega
vel liðinn og vinsæll maður,
Georg Hermannsson, þáver-
andi kaupfélagsstjóri. Það er
vissulega mikil blóðtaka fyrir
lítinn flokk manna eins og
Framsókn, að missa hann úr
plássinu. Væri hann starfandi
hér enn, má fullvíst telja að
skipaði efsta sætið. Mætti þá
líka slá því föstu að flokkur-
inn hefði fengið mann kjörinn
við næstu kosningar.
HVERJIR SKIPA
LISTANN?
Eitthvað munu Framsókn
armenn vera byrjaðir að tala
saman til undirbúnings næstu
kosninga. Menn þykjast sjá
þess ýmiss merki á Básaskers-
bryggjunni.
Sigurgeir er maður tekinn
að eldast nokkuð og er búinn
að vasast lengi í stjórnmála
þrasinu. Finni hann hæfan
eftirmann gæti hann örugg-
lega hugsað sér að hætta eftir
þetta kjörtímabil. En hver er
prinsinn? Það er spurning
sem erfítt er að svara á þessari
stundu. Þó er rétt að nefna
nokkur nöfn sem Sigurgeir og
félagar hafa til athugunar.
Jón Eyjólfsson, skipstjóri á
Herjólfí, yfírlýsti sig sem
Framsóknarmann fyrir all-
nokkru og er af mörgum
talinn álitlegt framboð. Þá
hefur verið nefndur kaup-
félagsstjóri Guðmundur Búason
örugglega velgreindur maður
en kannski of nýkominn tii
starfa hér, að hann vilji hella
sér í erfíða barátm fyrir til-
veru Framsóknar.
Hilmar Rósmundsson hef-
ur og verið nefndur. Maður
sem örugglega gæti aflað
flokknum þó nokkurs fylgis.
Sumir fíriha þó að því (eins og
með Kristjönu hjá krötunum)
að hann er vart talinn til
vinstri arms ílokksins. Vinstri
meirihlutinn gæti því verið í
hættu.
Margir hafa viðrað þá hug-
mynd að Herrnann Einarsson
ritstjóri Dagskrár, væri gott
framboð. Ekki er að eía að
hann myndi eiga gott ,,Come
Back” i Framsókn.
Ofantaldir hafa helst verið
nefndir í efsta sætið.
FLEIRI KOMA
TIL GREINA
Þá er talið líklegt að skipa
mumi listann, þótt ekki verði
í efsta sæti eftirtaldir. Jóhann
Björnsson, sem hefur verið
eins og JO-JO band upp og
niður listann áratugum sam-
an. Skæringur Georgsson,
hægri hönd S.K. hjá Esso
verður á listanum svo og Örn
Ölafsson hjá SÍS, þótt margir
Framsóknarmenn telji hann
með fullmikla hægrivillu.
Einar Steingrímsson verð-
ur örugglega á listanum, jafn-
vel að hann stefni á eitt af allra
efstu sætunum.
RÓÐURINN ERFÍÐUR
Sigurgeir mun gera allt til
að tryggja að flokkurinn fái
mann, jafnvel fara sjálfur fram.
Hann vill manna frekast halda
núverandi ástandi innan bæj-
arstjórnar jafnvel þó það kosti
nokkra kratabita.
BÓKASKÁPAR BÓKAHII I UE
NÝJA ÞVOTTAVÉLIN:
A L D A
ÞURRKARI OG ÞVOTTAVÉL í
EINU STYKKI! VERÐ KR. 7.240--
HANDVERKFÆRI
MIKIÐ ÚRVAL
TÖLVUR NÝKOMNAR
KJARNI S/F SKÓLAVEGI 1