Fréttir - Eyjafréttir - 24.09.1981, Síða 1
Stærsta
fréttablað
Eyjanna
Eina óháöa
blaðið í
Eyjum
Fréttir
koma út í
2300 ein»
tökum
vikulega
8. árgangur
Vestmannaeyjum 24. september 1981
38. tölublað
LANDKRABBI SKRIFAR:
FÁ SJÁLFSTÆÐISMENN MEIRIHLUTA?
Þau eru orðin æði mörg
árin frá því Sjálfstæðismenn
hafa einir haft meirihluta í
bæjarstjórn. Margt virðist
benda til þess að næsta vor
kunni svo að fara, að gamall
draumur Sjálfstæðismanna
rætist og flokkurinn fái hrein-
an meirihluta. Margir eru
orðnir þreyttir á vinstra sam-
starfinu og vilja gjarnan reyna
eitthvað nýtt. Margt á þó eftir
að gerast í haust og vetur,
þannig að þetta getur allt
saman breyst.
HVAÐ GERIST
Á LANDSFUNDI ?
Um mánaðamótin okt/nóv.
fer fram landsfundur Sjálf-
stæðismanna. Sá fundur kann
að ráða miklu um gang mála.
Ekki bara á landsvísu heldur
einnig í hverju sveitarfélagi.
Svo kann að fara að flokkur-
inn klofni endanlega vegna
átakanna um forystuna. Nú
þótt Geir og Co sitji áfram í
forystusveitinni er ekki víst
að öllum líki það og kunna að
láta flokkinn fmna fyrir því í
bæjarstjórnarkosningunum.
Ekki virðast þessi deilumál
hafa haft áhrif á störf bæjar-
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
Samstarfið virðist ganga vel,
enda vita fæstir hvernig full-
trúarnir standa í deilumál-
unum, nema þá helst að Sig-
urður Jónsson fer ekki leynt
með óánægju sína á forystu
flokksins.
HVAÐ MEÐ
PRÓFKJÖR?
Sjálfstæðismenn eru aðeins
farnir að ræða undirbúning
fyrir næstu bæjarstjórnar-
kosningar. Síðast var viðhaft
prófkjör þar sem góð þátttaka
varð. Nú munu vera uppi
harðar deilur í flokknum um
hvort viðhafa skuli prófkjör
eða ekki. Þó munu bæjarfull-
trúar flokksins vera með-
mæltir prófkjöri en ýmsir
aðrir forystumenn mjög harðir á
móti. Hvað verður ofaná er
ekki gott að segja.
HVERJIR VERÐA
Á LISTANUM
Arnar Sigurmundsson hef-
ur skipað efsta sæti listans.
Hér er á ferðinni mjög glögg-
ur maður, sem er mjög snögg-
ur að hugsa og gerir oft góða
hluti. Mörgum finnst þó að
hann einum of mikið vilja
forðast átök við vinstri menn-
ina og reyna í lengstu lög að
halda friðinn.
Nokkuð öruggt má heita að
Arnar Sigurmundsson verði
áfram bæjarfulltrúi eftir
næstu kosningar.
Sigurður Jónsson er um-
deildur í flokknum, á harða
stuðningsmenn, en einnig
marga sem ekkert myndu
gráta það þó hann dytti út af
listanum. Mörgum í flokkn-
um fínnst hann hafa of sósíal-
demókratískar hugsanir. Lík-
legt verður þó að telja að
Sigurður verði áfram sérstak-
lega verði prófkjör viðhaft.
Gísli Geir Guðlaugsson er
dugnaðarforkur og hreinrækt-
aður hægrimaður. Þó vill
krafturinn stundum verða full-
mikill og aðalatriðið að berja á
andstæðingnum. Hitt er svo
að sennilega væri hitaveitan
ekki komin svona langt, ef
Gísli hefði ekki verið til að
berja á meirihlutanum.
Georg Þór Kristjánsson er
sérlega prúður maður sem
gefur af sér góðan þokka á
fundum. Hann hefur þó frek-
ar lítið haft sig í frammi, en þó
tekið jákvætt á málum. Georg
mun hafa verulega styrkt sína
stöðu, sérstaklega eftir að hann
komst í forystusveit Eyverja.
Líklegt er að erfítt verði að
fella núverandi bæjarfulltrúa
útj gefi þeir kost á sér.
Sigurgeir Olafsson skipaði
5 sætið síðast. Líklegt er að
hann eigi góða möguleika að
halda því sæti eða jafnvel
kömast ofar. Hér er á ferðinni
vel liðinn maður sem á drjúgt
fylgi.
FLEIRI VILJA
KOMASTAÐ
Margir í flokknum hafa þó
áhuga á að takast á við bæjar-
málin. Má t.d. nefna Magnús
Kristinsson formann Eyverja
harðan baráttujaxl sem lands-
frægur varð fyrir að vera einn
af örfáum stjórnarmönnum
SUS, sem ekki styðja Geir.
Magnús Jónasson bílastjóra-
forstjóri, er rnaður vel liðinn
sem hefur orðið langa reynslu
af bæjarmálum, ætlar sér
örugglega öruggt sæti fyrir
næstu kosningar. Þá má nefna
menn eins og Stefán Runólfs-
son, Eyjólf Martinsson, Sigurð
Einarsson, menn sem gjör-
þekkja atvinnulífið og stjórn-
un stórra fyrirtækja.
Margir hafa haft áhuga á
því að fá Harald Gíslason til
þátttöku í stjórnmálum. Enn
hefur hann ekki ljáð máls á
slíku hvað sem nú kann að
verða.
Líklegt má telja að Sigur-
björg Axelsdóttir verði á list-
anum. Hún hefur starfað mjög
mikið að félagsmálum. Þá er
líklegt að nöfn eins og Friðrik
Ásmundsson, Kristinn Páls-
í dag kl. 16.00. verður
haldinn almennur fundur í
Bæjarstjóm í Safnahúsinu
2. hæð.
Mörg mál verða á dagskrá
fundarins, þar á meðal
fundargerðir bæjarráðs og
nefnda. Af fundargerðum má
ætla að húsnæðismál
bæjarsjóðs komi mjög til um-
ræðu, svo og stefnumótun í
orkumálum, en uppi eru hug-
son, Þórður Rafn og Helgi
Bemódusson verði á listanum.
FLEIRI KONUR -no
Þá má telja víst að kVen'há-''
deildin ætli sér stærri hlufén
áður. Foringi kvennafélags-
ins Ingibjörg Johnssén (trú-
lega harðasti bindindismaður
norðanAlpafjalla) mun örugg-
lega beita sér fyrir því af
hörku að fríða fylkingin hennar
úr Eygló sitji í góðum sætum.
Enn hefur kvennadeildin þó
ekki ákveðið, hverjar skuli
settar fram til höfuðs karla-*
veldinu.
ERFIÐUR RÓÐUR
Sjálfstæðismenn eiga ömgg-
lega erfitt verk fyrir höndum
ætli þeir sér meirihluta. En
eins og fram kom síðast veltur
það kannski fyrst og fremst á
Framsókn hvernig til tekst.
myndir á Suðurlandi um
stofnun sérstakrar Rafmagns-
veitu Suðurlands, sem myndi
yfirtaka eignir rafveitnanna á
svæðinu, ef það frumvarp
yrði að lögum.
Að sögn Arnars Sigur-
mundssonar, hafa bæjarfull-
mundssonar hafa bæjarbúar
ekki fjölmennt á bæjarstjórn-
arfundi, en fundurinn í dag er
öllum opinn.
VIÐ SELJUM
A L D A
ÞVOTTAVÉLIN OG ÞURRKARINN
NYKOMIÐ:
MIKIÐ ÚRVAL LJÓSKASTARA
ÍTALSKRA LAMPA
OG SVO EIGUM VIÐ LÍKA HEILA
GLÁS AF LOFTLJÓSUM!!
LÍTTU VIÐ!
ÞAÐ BORGAR SIG
KJARNIsF SKÓLAVEGI 1 - SÍMI 1300
Fundur í bæjarstjórn í dag