Fréttir - Eyjafréttir - 05.11.1981, Síða 1
Stœrsta
fréttablað
Eyjanna
Eina óháða
blaðið í
Eyjum
Fréttir koma út í 2300 ein- tökum vikulega
8. árgangur
Vestmannaeyjum 5. nóvember 1981
44. tölublað
BRAUTIN
Það er greinilega farið að
styttast verulega í kosningar
til bæjarstjórnar, þar sem
Brautin kom út í gær.
I blaðinu er vakinn upp
gamall penni, sem skrifar ein-
dálk á fjórðu síðu undir
nafninu MOLAR.
Við lestur greinastúfa
hans sýnist hér kominn
fram sami höfundur og
BRAUTIN baðst velvirðing-
ar á fyrir 2-3 árum, en þá
þóttu skrif hans taka út fyrir
allt velsæmi í árásum á póli-
tíska andstæðinga.
Að þessu sinni verða Geir
Jón og Magnús íhaldsmenn
fyrir barðinu á þessum
draugi. Magnús er skamm-
aður fyrir skoðun sína á
vídeómálinu og kallaður fyrir
það vindbelgur og heilag-
leiki, svo eitthvað sé nefnt.
Geir Jón er aftur á móti
skammaður fyrir að hafa sagt
blaðalesendum frá veru sinni
á bæjarstjórnarfundi, sem
hann sat sem áheyrandi, en
fundurinn var opinn öllum
bæjarbúum.
Eitthvað virðist frásögn
Geir Jóns hafa farið fyrir
hjartað á krötunum, því þeir
skamma hann fyrir að segja
ekkert frá afrekum þeirra á
fundinum.
Bæjarfulltrúar meiri- og
minnihluta hafa verið að
kvarta undan fámenni bæjar-
búa á almennum fundum, og
skýtur það þá skökku við, að
I MOLUM
vegið skuli að þessum fáu
hræðum fyrir það eitt að
mæta á slíkum fundum, og
segja frá dvöl sinni þar í
bæjarblöðunum.
Bæjarfulltrúar mega ekki
vera það viðkvæmir að vera
skammast yfir því einu, að
ekki skuli minnst sérstaklega
á þá í skrifum frá almennum
fundum bæjarstjórnar.
Ekki verður því trúað að
þessi skrif í Molum Brautar-
innar séu með vitund bæjar-
fulltrúa Alþýðuflokksins, því
bæði MHM og GÞBÓ hafa
verið fylgjandi opinni um-
ræðu um málefni bæjarins.
Blaðið vill í lokin hvetja til
málefnalegrar umræðu um
bæjarmálin, og skorar jafn-
framt á bæjarbúa að sækja
opna fundi bæjarstjórnar og
ekki síst láta í sér heyra í
bæjarblöðunum!
Almennur bæjarstjórnar-
fundur er á morgun kl. 17.00 í
Safnahúsinu.
Vonandi verða skrif Braut-
arinnar og annarra blaða ekki
til að draga úr áhuga þeirra
fáum bæjarbúa, sem hingað
til hafa sótt fundi bæjar-
stjórnar.
Hinsvegar mætti koma
meiri hvatning frá bæjarfull-
trúum sjálfum til bæjarbúa
um að sækja þessa fundi. Alla
slíka hvatningu hefur vantað,
hvað þá að málin hafi verið
gerð áhugaverð fyrir bæjar-
búa. Mjög auðvelt er að setja
þannig fram málin að þau
vekji athygli og áhuga.
Nú í vetur mun verða
borgarafundur á vegum JC,
eins og gert var í s.l. vetur, en
á þeim fundi gátu bæjarbúar
tekið þátt í umræðum um
hin ýmsu málefni með bæjar-
Afsláttarkort
Kaupfélagsins
Á síðastliðnu ári var tekin
upp sú nýbreytni að gefa
félagsmönnum í kaupfélag-
inu kost á að versla út á
sérstök afsláttarkort.
Hver félagsmaður fékk þá
afhent tvö kort á skrifstofunni
og gegn framvísun hvors
þeirra fékk hann 10% afslátt á
viðkomandi úttekt í vefnaðar-
vöru- eða Búsáhaldadeild.
Nú hefur verið ákveðið að
gefa félagsmönnum korst á
þessu aftur í all auknum
mæli.
Hver félagsmaður fær sam-
tals sjö kort, þrjú sem gilda í
Vörumarkaði, tvö í Vefnaðar-
vörudeild og tvö í Búsáhalda-
deild.
Félagsmenn hafa nú fengið
kortin send heim, en þeir
félagsmenn, sem af einhverj-
um ástæðum hafa ekki fengið
kortin send, eru beðnir að
vitja þeirra á skrifstofunni.
Þeir, sem vilja ganga í
félagið nú, eru einnig beðnir
að koma á skrifstofuna og
- Fiskeldi í Vestmannaeyjum
fulltrúum og þótti þessi fund-
ur takast mjög vel. Því skul-
um við vona, að bæjarbúarfái
meiri áhuga á málefni kaup-
staðarins, en það er einungis
hægt, komi bæjarfulltrúar til
móts við almenning, sem þó
hefur stigið fyrsta skrefið í
þessari viðleitni.
ganga frá því og fá þeir þá
einnig afhent kort.
Undanskilið afslætti er kjöt
í heilum og hálfum skrokkum
í Vörumarkaði, svo og heim-
ilistæki og stærri raftæki í
Búsáhaldadeild.
Kortin gilda til 10. des-
ember, og eingöngu gegn
staðgreiðslu. Fréttatilkynning.
Aðalfundur
Foreldra-
félags
í kvöld kl. 20.00 hefst
aðalfundur Foreldrafélags
Barnaskólans og verður hann
í Barnaskólanum.
Á dagskrá fundarins eru
venjuleg aðalfundarstörf. Ás-
gerður Ólafsdóttir mun flytja
erindi um kennslu fyrir sjón-
skerta, ásamt Arnþóri Helga-
syni.
Undir liðnum önnur mál,
verður rætt um videomálin,
sem svo hátt hafa borið í
umræðu bæjarbúa að undan-
förnu.
Aríðandi tílkynning tíl
foreldra skólabama
Borist hefur bréf frá land-
lækni, þar sem sagt er frá
mislingafaraldri í Noregi og
að líklegt sé að fasaldur þessi
gangi yfir ísland á næstunni.
Það eru eindregin tilmæli
heilbrigðisyfírvalda, að börn
á aldrinum 6-15 ára, sem ekki
hafa fengið mislinga eða verið
bólusett gegn þeim, verði nú
þegar bólusett.
Öll skólabörn verða því
send heim með miða, þar sem
foreldrar eru beðnir að upp-
lýsa þessi atriði, og verða
síðan bólusett á næstu dögum.
Vestmanneyingar
Kynning á örbylgjuofnum í
Kjarna kl. 4-6 í dag.
u
Dröfn Farestveit kynnir og
sýnir notkun Toshiba örbylgju-
ofna.
ýjjörið svo vel og lítið inn!
'_____________________________r