Fréttir - Eyjafréttir - 19.11.1981, Page 1
Stærsta
ffréttablað
Eyjanna
Eina óháða
blaðið í
Eyjum
Fréttir koma út í 2300 ein- tökum vikulega
8. árgangur
Vestmannaeyjum 19. nóvember 1981
46. tölublað
Bæjarráð
Fimmtudag 12. nóv.:
1. mál:
A fundinn mættu full-
trúar Vörubílstjórafélags-
ins Ekils sbr. síðustu
fundargerð bæjarráðs, og
gerðu þeir grein fyrir
sjónarmiðum sínum varð-
andi samskipti félagsins
og bæjarsjóðs, sem og al-
mennt varðandi atvinnu-
ástand vörubifreiðastjóra
og horfur í þeim málum.
- Bæjarráð getur eftir
atvikum fallist á það sjón-
armið vörubifreiðastjóra,
að framvegis verði um
meiri sundurliðun að
ræða á útboðsverkum
bæjarsjóðs, og vísar að
öðru leyti til samnings og
samkomulags aðila frá 11.
júní 1976.
2. mál:
Rætt var um rekstur-
og fjárhagsstöðu bæjar-
sjóðs og stofnana hans.
Laugardag 14. nóv.:
1. mál:
A fundinn mætti stjórn
Starfsmannafélags Vest-
mannaeyjabæjar og gerði
grein fyrir afstöðu sinni til
væntanlegrar launanefnd-
ar sveitarfélaga, sbr. bréf
til stjórnarinnar til samn-
inganefndar og bæjarráðs
dags. 13.11.1981. I fram-
haldi þar af urðu nokkrar
umræður um kosti og
galla þeirra hugmynda,
sem liggja að baki áforma
um stofnun launanefndar
sveitarfélaga, sem og al-
mennt um gerð kjara-
samninga.
Akveðið var að aðilar
hittust aftur aftur að lokn-
um stofnfundi launa-
nefndarinnar.
Alda sýnir mál
verk í Akóges
Á sýningunni verða um 30
olíumálverk, flest unnin síð-
ustu 4 árin. Einnig verða
blómamyndir, púðar og dúk-
ar, flest málað á flauel.
Sýning þessi er sölusýn-
ing.
Fréttatilkynning.
Alda Björnsdóttir opnar
málverkasýningu í Akóges í
kvöld, 19. nóvember kl. 8.
Sýningin verður opin frá
kl. 14-22 dagana 20., 21., 22.
og lýkur á sunnudagskvöldi.
alda er fædd 4. júlí 1928 í
Vestmannaeyjum og er dóttir
Björns Sigurðssonar frá Pét-
ursborg.
’réttatilkynning frá
'oreldrafélagi Bamaskólan;
-Eftirfarandi bréf var sent bæjarráði og skólanefn
Foreldrafélagið hélt fund
sl. fimmtudag. Á fundinn
mættu Ásgerður Ólafsdóttir
blindraráðgjafi og Arnór
Helgason. Þau veittu ýmsar
upplýsingar varðandi kennslu
sjónskertra. Bréf þetta er til
nánari upplýsinga og rök-
stuðnings fyrir beiðni okkar
um aðstoð vegna þessara mála.
Hér í Vestmannaeyjum búa
nú 4 mjög sjónskert börn.
Fram kom hjá Ásgerði að það
er einsdæmi hér á landi að svo
mörg börn séu í ekki stærra
byggðarlagi.
I reglugerð um sérkennslu
er greint frá því að svona
sjónskert börn eigi rétt á 10
kennslutímum á viku vegna
fötlunar sinnar. Vegna þess-
ara óvenjulegra ástæðna fer
Foreldra- og kennarafélag
Barnaskólans fram á að Vest-
mannaeyjabær mæti þessum
vanda með því að veita ríf-
legan styrk þannig að einn
kennari geti menntað sig í
kennslu sjónskertra barna.
Félagið mun einnig fara
fram á það við félagasamtök í
bænum, að þau leggi máli
þessu lið. Á þann hátt gæti
orðið um myndarlegan styrk
að ræða.
Ennfremur vill félagið
benda á að þörf fyrir tal-
kennara við skólana er mikil.
I lauslegri könnun sem gerð
var í Barnaskólanum vetur-
inn 1980-1981 kom í ljós að
30-40 börn þyrftu á talkennslu
að halda. Félagið óskar eftir
því að Vestmannaeyjabær sjái
sér fært að veita annan styrk
til kennara sem vildi leggja
stund á nám í talkennslu.
Til upplýsinga skal þess
getið að talkennsla og blindra-
kennsla er tveggja ára nám að
loknu almennu kennaraprófi.
Til upplýsinga skal þess
getið að talkennsla og blindra-
Kristniboðs-
basar
Næstkomandi laugardag
eftir hádegi kl. 5, verður basar
í húsi KFUM við Vest-
ftiannabraut.
Undanfarnar vikur hefur
hópur kvenna, sem vilja
styrkja starf íslensku kristni-
boðanna í Eþíópíu og Kenýju
unnið af kappi og árangurinn
hefur mátt sjá í sýningar-
glugga Kjarna undanfarna
daga.
Nú er tækifæri til að kaupa
ýmsa handavinnu til jólagjafa
á hóflegu verði.
Einnig verða seldar kökur
og blóm.
Fundur um Video
Foreldrafélag Bamaskólans
hefur ákveðið að gangast fyrir
umræðufundi um video-málið.
Fengnir verða aðilar sem
hafa misjafna skoðun á þessu
máli, til að hefja umræðurnar.
Fundurinn verður næst-
komandi mánudag kl. 20.30
í Barnaskólanum.
Rétt er að vekja áhuga
allra á þessum fundi, það
skiptir alla máli, hvort auk-
ið verður við sjónvarpsefni
og á hvern hátt. Eins hafa
margir áhyggjur af þessari
þróun, -telja hana neikvæða.
Einnig eru skiptar skoðanir
um hvort leggja eigi kapal eða
setja upp endurvarpsstöð.
Athygli skai vakin á því að
allar rannsóknir benda til þess
að börn og unglingar horfi
mest á sjónvarp. Það er því
virkileg ástæða fyrir foreldra
að fylgjast með þessu máli.
Verðbólgan er ekld farin að virka!
Vanti þig örbylgjuofn - grillofn - sauma-
vél - eða hvað þetta allt heitir..............
fæst það í Kjarna á gamla verðinu!
YAMAHA orgelin á gamla verðinu og á mjög
góðum kjörum.
Kjami
s/f Skólavegi 1 - Sími 1300