Fréttir - Eyjafréttir - 26.11.1981, Blaðsíða 1
Fréftir
koma út I
3300 oin-
tökum
víkuioga
Stærsta lllHlllÍÍ; Eylmntm E inaóháfta blaélé 1 Eyjum
8. árgangur
Vestmannaeyjum 26. október 1981
47. tölublað.
„Getraunagróði”
Sunnudaginn 29. nóv. nk.
frumsýnir Leikfélag Vest-
mannaeyja sitt 107 verkefni,
en það er skopleikurinn
GETRAUNAGROÐI eftir
Philip King. Þetta er fyrsta
verkefni Leikfélagsins á þessu
leikári, en undanfarin ár hef-
ur leikfélagið jafnan spreytt
sig á þremur verkefnum á
vetri. Svo mun og verða í
vetur og er nú þegar hafinn
undirbúningur á uppsetningu
á bamaleikriti. Getraunagróð-
anum leikstýrir Sigurgeir
Scheving sem á undanfömuin
árum hefur sett upp þó nokkur
verkefni hjá Leikfélaginu, við
góðan orðstýr.
Með hlutverkin í leiknum
fara: Baldvina Sverrisdóttir,
Guðrún Kolbeinsdóttir, Oskar
Arason, Runólfur Dagbjarts-
son, Sigurgeir Arnason og
Magnús Magnússon, en hann
gerir einnig leikmyndina að
þessu sinni.
Næstu sýningar á Get-
raunagróðanum, verða svo á
mánudag og þriðjudag og að
sjálfsögðu eru allar sýningarn-
ar i Bæjarleikhúsinu Vestm.
Hér eru nokkrir leikendur í Getraunagróða Leikfélags Vestmannaeyja.
éx-
» í <(M . \ 't
* i 4 » * * * « » 4 t » 4 : • * 4 >
> i'- « ? - ? V M* i •••." ?• * *
M *** >t * 4 * í v < *
k V *# I * <* * * * i 4 1' i * « í
• * • ui-vmí ' n i
rJ j i » i ir i i m
« • <: »«•***. «1«
' liMTÆ’ V t ‘ j tuttl fl!
■ * 411 i V h
) 4 f * í
v i » M í *
4 i í I /1f
y *>* *> * *
mælum
Græðir Fjarhitun óhóflega á
sem alltaf eru að bila?
Neytendum hitaveitunnar hér
hcfur orðið tíðrætt um reikninga
fyrir hraunhitann, ekki bara þessa
dagana heldur og allt frá bvrjun.
Hagkvæmni hitaveitu hefur ætíð
verið mæld eftir verði á olíulítra og
þykir þá mörgum „vel sloppið" með
kyndingarkostnað.
Fjarhitun hér notar sérstaka
mæla til að ákvarða notkun, og
selur hvern rúmmetra ákveðnu
verði. En oft á tíðum bila þessir
mælar, og meira að segja mjög oft,
þannig að áætla verður notkun,
miðað við meðaltalsnotkun i bæn-
um.
Blaðið hefur frétt af nokkrum
aðilum, sem telja sig hafa farið
halloka út úr viðskiptum við Fjar-
hitun. Einn notandi iekk til dæm-
is reikning upp á tæpar eitt þús-
und krónur fyrir 4ra daga notk-
un, eða 130 tonn (eitt hundraðog
þrjátíu tonn), fyrir aðeins 4 daga.
Ekki vildi hann una þessari
áætlun og vildi láta leiðrétta þenn-
an misskilning, en allt kemur fyrir
ekki. Framkvæmdastjóri Fjarhit-
unar neitar staðfastlega að leið-
rétta reikninginn og scgir (með
sínum skýringum) hann vera rétt-
an.
Fleiri svipuð dæmi hafa komið
upp á borðið og vitað að fólk hefur
þurft að kyngja þessum ,,stað-
reyndum".
Það er því spurning, hvort Fjar-
hitun á að vera að brölta með þessa
mæla, sem ekki er hægt að treysta
til mælingar á notkun, heldur nota
ákveðið fastagjald, eins og fjöl-
margar aðrar hítaveitur gera.
Pípulagningamaður tjáði blað-
inu, að það borgaði sig fyrir Fjar-
hitun að fleygja „öllu þessu mæla-
rusli“, en selja þess í stað neyt-
Framhald á bls. 2
Kynning á glerblásturs
list í Akóges
Dagana 26. - 29. nóvember
verður Margo J. Renner með
sýningu í ýmsum glermunum
sem hún hefur unnið að á
undanförnum 5 árum.
Margo nam glerblástur við
háskólann í Riverfalls í Banda-
ríkjunum 1975, og kynnir nú
þessa listgrein í fyrsta sinn
hér á Islandi.
Þetta er sölusýning og verð-
ur opnuð í kvöld kl. 20-22, þá
er opið á morgun, föstudag á
sama tíma og frá 14-22 á
laugardag og sunnudag.
Margo mun framleiðagler-
muni á meðan á sýningunni
stendur.
Allir eru velkomnir - sjón
er sögu ríkari.
Veruleg vandræði
Framsóknarmenn eru þegar
byrjaðir að þinga um skipan
framboðslista fyrir næstu
bæjarstjórnarkosningar.
Eitthvað mun þetta veltast
fyrir þeim, hver erfa eigi efsta
sæti listans. Ekki eru allir
Frammarar sáttir við að leitað
skuli út fyrir raðir hinna
hreinræktuðu.
Allt hefur þetta BAKAÐ
framsóknarmönnum mikil
vandræði.
Og meira um framsóknar-
raunir. Eins og menn hafa
tekið eftir kom Framsóknar-
blaðið loks út. -Blaðið var af
minni stærð en önnur bæjar-
blöð. Nú munu Framsóknar-
menn enn hafa í hyggju að
minnka blaðið. Helst er nú
rætt um að hafa blaðið með
svipuðu sniði og danska blað-
ið ANDRÉS ÖND.
Sigurður Jónsson.
Þeir hafa komið sér vel
þessir, síðustu dagana....
SSKALORIK
Látið ekki kuldann hrjá
ykkur, fáið ykkur raf-
magnsblástursofn.
3. gerðir
KJARNI S/F SKÓLAVEG 1