Fréttir - Eyjafréttir - 10.12.1981, Side 1
VIKUBLAÐ í VEXTI
8. ARGANGUR
VESTMANNAEYJUM 10. DESEMBER 1981
49. TÖLUBLAÐ
Síldarvertíðin:
Mun lakari en í fyrra
Á þeirri síldarvertíð, sem nú er
nær lokið, eru komin á land í Eyjum
5451 tonn af síld, sem er miklu
minna magn en á síðustu síldar-
vertíðum. Kemur það til m.a. vegna
hegðunar síldarinnar, en hún hélt
sig mikið inni á fjörðum fyrir austan
land, eins og á síðustu vertíð. En nú
voru síldarverkendur fyrir austan
betur í stakk búnir til að taka á móti
mikilli síld til vinnslu en áður.
Þá var heildarafli talsvert minni á
þessari vertíð en haustið 1980 og
minna magni landað í Eyjum, Þor-
lákshöfn og Suðumesjum.
Þegar þetta er skrifað eru tveir
Eyjabátar enn á sild, þ.e. Valdimar
Sveinsson og Gjafar, en þeir gátu
ekki hafið veiðar fyrr en mjög seint
vegna breytinga,sem unnið var að á
bátunum. Eiga þeir eftir að veiða
samtals um 150 tonn upp í sinn
kvóta.
Heildarafli síldar, sem komið hef-
ur á land hér í Eyjum s.l. síldar-
vertiðir er sem hér segir:
1977 ................ 4.342 tonn
1978 ................ 8.312 tonn
1979 ................ 9.755 tonn
1980 ................ 8.280 tonn
1981 ................ 5.451 tonn
Af þessum tölum má sjá, að mun
minni afli hefur komið hér á land á
þessari vertíð. Enda hefur þetta þýtt
mun minni vinnu í haust, og bitnaði
minna síldarmagn mjög mikið á
síldarsöltun, en drjúgt var fryst hér í
Eyjum eftir að lokað var fyrir söltun.
■'f? [: ' • ífl B f i í l|k JK fím m | Iéa 1
: ’ -
ODDUR JÚLÍUSSON SKRIFAR:
Kveðja til Gogga
Vinur minn Georg Þór Kristjáns-
son gerir mér vandalausum, þann
óvæiiLU 1 iðu? ! ?:ðasta Fylki að
biðja mig um útskýringu á ný-
gerðum kjarasamningum. Tel ég að
sú útskýring fáist best með því að
birta samninginn hér i heild:
1. gr.
Síðast gildandi samningar fram-
lengjast til 15. maí 1982 með þeim
breytingum sem greinir í samningi
þessum.
2. gr.
Frá 1. nóvember 1981 hækki öll
laun um 3.25%.
3. gr.
Frá 1. nóvember 1981 skulu lág-
markstekjur fyrir fulla dagvinnu
vera krónur 5.214.- á mánuði að
meðtalinni hækkun skv. 2. gr., en
hlutfallslega lægri þegar um hluta-
starf er að ræða.
Þegar metið er, hvort starfsmaður
á rétt á greiðslu vegna þessa ákvæðis,
skal telja með dagvinnutekjum allar
launagreiðslur aðrar en greiðslur
vegna yfirvinnu, vaktavinnu eða
kostnaðargreiðslna.
Ákvæði þessarar greinar taka ekki
til unglinga innan 16 ára aldurs.
4. gr.
Hinn 1. desember 1981 greiðast
verðbætur á laun í samræmi við
hækkun framfærsluvísitölu frá 1.
ágúst til 1. nóvember 1981.
Hinn 1. mars 1982 greiðast verð-
bætur á laun skv. ákvæðum laga nr.
13/1979.
Lágmarksdagvinnutekjur taki
sömu hlutfallslega hækkun og laun.
5. gr.
Samningaviðræðum skal fram
haldið eigi síðar en 15. mars 1982.
6. gr.
Samningur þessi fellur úr gildi
án uppsagnar hinn 15. maí 1982.
Svo mörg voru þau orð. Nú eru
það áreiðanlega ekki illa kynntir
samningar sem ráku Georg til að
biðja um mínar útskýringar á plagg-
inu því arna, mér sýnist öllu heldur
að verið sé að fiska eftir minni
persónulegu afstöðu og skal hún
fúslega koma fram hér. Hér er um
það að ræða að samið er um 3.25%
grunnkaupshækkun, lágmarkstekjur
og afturvirkni samningsins, en það
er útaf fyrir sig stefnumarkandi þar
sem atvinnurekendavaldið hefur að
öllu jöfnu ekki verið til viðræðu um
slíkt.
Á móti þessu kemur að Olafs-
lögin svokölluðu eru viðurkennd
sem skammtímasamningur er hann
alltof langur og öllum vandamálum
ýtt til hliðar, frestað.
Ég óttast það mest að hér sé í
rauninni verið að semja til eins árs
þar sem ég hef ekki trú á því að ofan í
kosningar og sumarfrí verði farið í
samningagerð af neinum krafti.
Hinsvegar liggur það ljóst fyrir að
í dag hefði atvinnurekendum verið
gerður mikill greiði með átökum á
vinnumarkaðinum, hefði verkalýðs-
hreyfingin í dag látið teyma sig út í
verkföll, hefðu atvinnurekendur
hrópað margfalt húrra, þar sem þeir
blessaðir hefðu þá losnað við greiðslur
á jóladögum og hefðu fagnað því láni
að hafa fólkið heima kauplaust í
þeirri litlu vinnu sem nú er.
Auðæfi hafsins, orkulindir og
gróðurmoldin eru sá grunnur sem
þjóðlíf okkar byggist á. Ein höfuð-
nauðsyn stjórnvalda er að tryggja
skynsamlega nýtingu auðlinda lands-
ins og uppbyggingu og nýsköpun
atvinnuveganna í samræmi við land-
gæði. Hlúa þarf að þekkingu og þróa
tækni sem bestum árangri skilar
miðað við heildarhagsmuni svo unnt
sé að skapa alþýðu manna þau
eíhhagslegu, menningar- og félagslegu
lífsskilyrði sem best verður á kosið.
Goggi minn, Alþýðubandalagið
er stór og vaxandi flokkur fólks sem
á hugsjónir. Okkur er efst í dag að
boða lýðræði gegn leiftursókn. Til
marks um það, að í okkar fiokki er
fullt málfrelsi, dugar að netna það
eitt að hyggist menn bjóða sig fram í
trúnaðarstöður í flokknum þurfa
þeir ekki að draga sig til baka, langi
einhverju flokksbrotinu að klappa í
svo sem 5. mín. eins og raunin varð á
með ónefndan Eyverja.
Að lokum þetta Goggi, spurðu
Arnar Sigurmundsson næst þegar
þið hittist hvort hann í gegnum starf
sitt hjá Samfrost/Vinnuveitenda-
félag Vm. hafi nokkru sinni beitt sér
fyrir öðru en að kjörin yrðu löguð
hjá verkafólki í Vestmannaeyjum?
CHARLES DARWIN og þróunarkenningin
-níunda bókin í flokki um frömuði sögunnar
Bókaútgáfan Örn og Örlygur hefur
gefið út bókina OHARLES DARWIN
OG ÞRÓUNARKENNINGIN eftir
John Chancellor í íslenskri þýðingu
Steindórs Steindórssonar frá Hlöð-
um. Bókin er í bókaflokki um Fröm-
uði sögunnar og Frömuði landa-
funda, en áður hafa komið út hjá Erni
og Örlygi átta bækur i þeim flokki.
Hver og ein bók er þó sjálfstæð.
Bókin um CHARLES DARWIN er
prýdd fjölda mynda, bæði svart-
hvítra og litmynda, sem m.a. skýra
kenningar Darwins, en á sínum tíma
olli hann miklu fjaðrafoki og reiði er
hann setti fram hina byltingarkenndu
kenningu sína um þróun lífsins í
bókinni „Uppruni tegundanna." Hafa
fáar bækur sem út hafa komið valdið
öðrum eins deilum, og þótti mörgum
sem Darwin gerði lítið úr guðshug-
JÓHANNES LONG SKRIFAR:
Hæst bylur í tómri...
U
55
í Dagskrá s.l. föstudag var auðséð
að einhversstaðar hefi ég komið við
auman blett í skrifum mínum í
Fréttum vikuna áður.
Ekki dugði minna en meginhluti
forsíðu blaðsins til andsvara.
Varðandi Sjónvarpsmiðstöðina
h.f. títtnefndu og talin er eitthvert
feimnismál af minni hálfu, er það að
segja, að hún kemur inn í tilboð
okkar sem heildsölu- og innflutn-
ingsaðili á efni því, sem við ætluðum
að nota. Það er þvi eins farið með
okkur og öðrum þjónustuaðilum hér
í bæ, að við framleiðum fæstir okkar
„hráefni“ hér heima. Fyrir rafiðn-
aðarmenn eru lítil tök á slíku vegna
skorts á járni, kísil og öðrum hrá-
efnum sem til þarf. Efni þessi eru
flest unnin úr jörðu og er mér ekki
kunnugt um neinar slíkar námur hér
á eyjunni, nema ef vera skyldi í
kjallaranum hjá hjá herra V.
Varðandi tollabreytingar á köpl-
um og mögnurum er það að segja, að
við (og Sjónvarpsmiðstöðin h.f.)
vorum það forsjálir, er við gengum
frá okkar tilboði, að tryggja okkur
allt efni, áður en tollar hækkuðu,
enda hafði það legið í loftinu þó
nokkurn tíma, að tollum yrði breytt.
Þannig, að þetta er ekkert feimnis-
mál af okkar hálfu.
Um skrif herra V. er það eitt að
segja, að alltaf finnst mér það lítil-
mannlegt þegar menn ráðast með
róg og dylgjum á samborgara sína,
myndinni með því að halda því fram
að mennirnir væru komnir af öpum.
Eru í bókinni nokkrarteikningarsem
gerðar voru af Darwin á sínum tíma,
til þess ætlaðar að gera lítið úr
honum og kenningum hans.
Höfundur bókarinnar John Chan-
cellor hefur eytt miklum tíma í rann-
sóknir á ævistarfi og kenningar Dar-
wins, og þykir þessi bók hans bregða
einkar skyru og lifandi Ijósi á hinn
hægláta og hikandi náttúrufræðing,
sem á sínum tíma olli straumhvörf-
um með kenningum sínum.
CHARLES DARWIN og þróunar
kenningin er sett og umbrotin í
Prentstofu G. Benediktssonar, en
prentuð og bundin í Bretlandi.
að þeir skuli ekki þora að skrila
undir fullu nafni. Enda sannast
þarna kannski best það fornkveðna
að ávallt bylur hæst í tómri
tunnu!
Ég ætla ekki að fara í neitt
„blaðastríð" við slíka hugleysingja,
sem skýla sér á bak við dulnefni, er
þeir skrifa greinar í stíl við Gróu á
Leiti. Herra V. er það máske full-
ljóst að svona skrif gera menn litla en
ekki stóra.
Að síðustu vona ég að þessar
framkvæmdir við Sjónvarp Vest-
mannaeyja verði okkur Eyjamönn-
um til ánægju og þroska í framtíð-
inni, hvort sem kapalkerfið verður
Arcotan eða Whisi.
Jóhannes Long.
Nýjar
jólavörur
Plíseraðir skermar - Plíseruð loftljós
- Plíseraðar rósettur - Tréstand-
lampar - Tréborðlampar - Mynda-
rammar - Marmaralampar^ - Ódýr
tölvuúr - Morgunhanar - Útvörp -
Seríur - Stjömur og auðvitað ótal
margt fleira. -
_ Lítið inn, það borgar sig!
RAFTÆKJAVERSLUNIN
KJARNI S/F SKÓLAVEGI 1 - SÍMI 1300