Fréttir - Eyjafréttir - 20.12.1981, Blaðsíða 15
#
Hitaveitan hefur nu verið okkar forgangsverkefni í nokkur ár og er sjálfsagt þarfaþing, þótt nokkrar
deilur standi um framkvæmd hennar milli neytenda og forráðamanna.
Þessir kappar voru kampakátir á Básaskersbryggju einn dag í ágústmánuði, nánar tiltekið á Þjóðhátíð.
Nokkur mannaskipti hafa átt sér stað i lögreglunni undanfarin ár. Aldnir hverfa, maður kemur í manns
stað. Þessir voru að bíða eftir að lendingu flugvélar í flugturninum.
Flugumferðarstjórinn og bæjarstjórinn bíða líka eftir flugvélinni eins og lögreglan. Það var lítil
einkaflugvél, sem beðið var eftir, en flugmaður hennar, bandarískur átti í erfiðleikum með vélina og
„nauðlenti“ í Vestmannaeyjum.
ÞEKKT
ANDLIT
ÚR
BÆJAR-
LÍFINU
Við breytum út frá venju að
þessu sinni og birtum nú hér
myndir af þekktum andlitum
úr bæjarlífmu.
Kinverskt máltæki segir: „Ein
mynd segir meira en tíu þús-
und orð!“ Þess vegna látum við
myndirnar tala hér að mestu en
segjum lítillega frá tilefni sem
þær varða.
Ljósmyndir: Sigurgeir Jónasson
Er hann að fara að blása til orustu???
"rrsv
bjöbg
Björgin ve.5 færir björg í bú,
Skipstjórinn og „útgerðarmaðurinn”
stíga frá borði eftir að hafa skoðað
aflann!!!
M
1* V F
Harður vetur í ár. Frost og kuldi. Betra en rigningin segir einhver. En það vantar snjóinn, segja börnin.
i-b_ hoverserviGG)
\ J_ j ■ —
tíovercraft Corporation
Hér fylgir ein með frá 1967, er framámenn bæjarins kynntu sér framtíðarmöguleika í samgöngumálum.
Nokkrir þessara manna eru nú horfnir af sjónarsviðinu.
Herjólfur h.f. flutti nýlega í nýtt húsnæði á Básaskersbryggju. Þarna eru tveirskipsmannaá Herjólfi. En
hvað er flueumferðarstiórinn að-----1-----'
„Þrátt fyrir böl og alheimsstríð, þá haldin verður Þjóðhátíð11, sagði einhver. Þarna er blaðamanna-
fundur í Herjólfsdal nokkrum dögum fyrir hátíðina.
13
„Bara barinn“. A þessu ári var vígður glæsilegur samkomusalur í Samkomuhúsinu og er hann enn
kallaður bara „Barinn“. Skálað fyrir starfsfólkinu.
„Á hvað ertu að horfa lóti? „Ha, ég. Ég er að skoða stelpurnar!“ Myndin er tekin við vígslu íbúða
aldraðra við Eyjahraun 2.
Þarna er litið björtum augum á tilveruna, enda ekki ástæða til annars um borð í BRAVÓ. Lífsneistinn
blikar á þeirra brá, hver þekkir þá af öðru?