Fréttablaðið - 04.09.2014, Side 56

Fréttablaðið - 04.09.2014, Side 56
4. september 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 44 BAKÞANKAR Atla Fannars BjarkasonarNýjasta samstarf tískuhönn- uðarins Karl Lagerfeld er við dúkkurisann Mattel Inc., en þar er Barbie- dúkkan meðal annars fram- leidd. Í til- efni þess að Barbie-dúkk- an fagnar 55 ára afmæli á árinu lét hönn- uðurinn gera eftirmynd af sér sjálfum í formi Barbie-dúkku, nema kvenkyns. Dúkkan er klædd í sams konar fatnað og fatahönn- uðurinn sést iðulega í, svarta dragt, hvíta skyrtu með háum kraga, með svart bindi, griffl- ur og svört sólgleraugu. Dúkk- an verður framleidd í mjög takmörkuðu upplagi en útgáfu- dagur hennar verður tilkynnt- ur síðar á árinu. Lagerfeld verður Barbie-dúkka KARL LAGERFELD Það olli miklu fjaðrafoki í byrjun vikunnar þegar hakkarar brutu sér leið inn í síma þekktra einstak- linga og láku út myndum úr einkasafni á síðunni 4Chan. Bandaríska alríkislögreglan, FBI, er komin í málið og telur um öryggisbrest í iCloud-kerfinu að ræða, en forritið yfirfærir allar myndir af snjall- tækjum í heimilistölvuna. Um grafalvarlegt mál er að ræða og hefur spurningarmerki verið sett við siðferði þeirra sem skoða þessar einkamyndir á internetinu. Mesta athygli hefur Óskarsverðlaunaleikkonan Jennifer Lawrence fengið en nektarmyndum af henni var stolið úr símanum og þær birtar á netinu. Tals- kona hennar, Liz Mahoney, segir atvikið hafa verið kært til lögreglu og hótar kæru á alla þá miðla sem birta myndirnar. „Við teljum þetta algert brot á einka- lífi og höfum haft samband við yfirvöld vegna þessa. Allir sem birta þessar stolnu myndir af Jennifer Law- rence mega búast við lögsókn.“ Leikkonan Mary Elizabeth Winstead lenti einnig í tölvuþrjótunum og tjáði hún sig um atvikið á sam- skiptamiðlinum Twitter. „Til ykkar sem eruð að horfa á myndir sem eiginmaður minn og ég tókum af okkur í svefnherberginu okkar, á heimili okkar: Vonandi líður ykkur vel með ykkur sjálf.“ Einnig lentu þær Rihanna og Cat Deely í hökkurunum. Nat Kerris sagði, í yfirlýsingu fyrir hönd Apple, að fyrirtækið ætlaði að kanna málið. „Við leggjum mikið upp úr því að gögn viðskiptavina okkar séu örugg. Við munum rannsaka málið ítarlega.“ Ken Westin, sérfræðingur í öryggismálum, segir í samtali við Times að það sé mikilvægt fyrir fræga ein- staklinga og almenning að muna að það er erfitt að hafa stjórn á hlutum sem fara í gegnum ofangreint iCloud- kerfi inn í tölvubúnað. „Um leið og myndum og öðrum gögnum er hlaðið niður í forritið er miklu erfiðara að hafa stjórn á því, þó að við teljum það vera prívat.“ Þetta er ekki í fyrsta sinn sem gögnum og mynd- um úr einkasafni frægra einstaklinga er lekið á netið af hökkurum. Á síðasta ári var reikningsyfirlitum, kennitölum og öðrum öryggisgögnum frá einstakling- um á borð við Jay Z, Beyoncé, Mel Gibson og Ashton Kutcher, lekið á netið. Einnig lentu leikkonurnar Scarlett Johansson, Mila Kunis og Christina Aguilera í því að pósthólfin þeirra voru hökkuð af Christopher Chaney, sem í desember 2012 var dæmdur fyrir brot- ið þar sem Aguilera og Johansson báru vitni. „Þessi öryggistilfinning kemur aldrei aftur og það er ekkert sem getur komið í staðinn fyrir þá tilfinningu, enda alger innrás inn í einkalíf þitt,“ sagði Aguilera. alfrun@frettabladid.is Láku nektarmyndum úr snjallsímum stjarnanna Bandaríska alríkislögreglan, FBI, rannsakar nú hvernig hakkarar komust inn í síma fj ölda þekktra einstaklinga og láku myndum úr þeim á netið. Mesta athygli hefur leikkonan Jennifer Lawrence fengið en nektarmyndir af Óskarsverðlaunaleikkonunni fóru á netið í byrjun vikunnar. Vekur þetta spurningar um öryggi snjallsíma sem margir hverjir geyma mikilvægar upplýsingar fyrir eigendur sína. Meðal þeirra sem hafa tjáð sig um málið er leikkonan Emma Watson, en þær Jennifer Lawrence eru vinkonur, og setti hún eftirfarandi skilaboð á Twitter-síðu sína: „Það sem er jafnvel verra en að sjá einkalíf konu svona brotið er að lesa kommentin þar sem birtist ekki vottur af samkennd.“ Slúðurbloggarinn Perez Hilton var einn af þeim fyrstu til að birta myndirnar af Lawrence á síðu sinni á sunnudagskvöldið en var fljótur að taka þær út og biðja leikkonuna innilega afsökunar á Twitter. Hann segist sjá mjög eftir því að hafa birt myndirnar, það hafi verið gert í flýti. FJÖLMARGIR STYÐJA LAWRENCE BRJÁLUÐ Jennifer Lawrence ku vera mjög reið vegna lekans og hyggst kæra alla þá miðla sem birta nektarmyndirnar af leikkonunni. NORDICPHOTOS/GETTY EKKI SÁTT Mary Elizabeth Winstead segir mynd- irnar sem var stolið úr símanum hennar hafi verið teknar í svefnherbergi þeirra hjóna og ekki fyrir neinn að sjá nema þau tvö. Internetið er ótrúlegt. Vefsíður safna upplýsingum um allt sem maður gerir og nýta þær svo til að klæðskerasníða persónulega fyrir mann auglýsingar og annað efni sem höfðar til manns. EF maður leitar að súkkulaði á Google er komin auglýsing frá Snickers á Facebook-vegginn hjá manni fimm mínútum síðar. Og ef maður smellir á frétt um Kim Kardashian á Huffington Post metur Facebook stöðuna sem svo að maður fái hreinlega ekki nóg af henni og fyrr en varir yfirskyggir mikilfenglegur aft- urendi hennar allt annað efni. Vissuði að hún er að fara að gefa út bók sem inniheldur ekkert annað en sjálfs- myndir? Af hverju fæ ég aldrei svona góðar hug- myndir? INTERNETIÐ er samt ekki fullkomið. Stundum finnst mér eins og það þekki mig ekki neitt – þrátt fyrir að ég hafi verið daglegur notandi í meira en 15 ár. Miðað við auglýsingarnar sem birt- ast á Facebook-síðu minni þessa dag- ana heldur internetið að ég hafi áhuga á því að skrá mig á námskeið í garðyrkju. Reynsla mín af garðyrkju felst í að liggja sofandi í runnum í unglingavinnunni, þannig að námskeið kæmi sér reyndar vel. En ekki veit ég hvaðan sú hugmynd er komin að ég hafi á því áhuga. FACEBOOK telur líka að ég vilji fræðast um ljósaperur. Eru djúp skilaboð fólgin í því? Telur samfélagsmiðillinn að ég lifi í myrkri? Þá er endalaust framboð af aug- lýsingum frá stefnumóta síðum, framleið- endum stinningarlyfja og skottulæknum sem bjóða vöðvamassa gegn neyslu á furðulegum, sjaldgæfum ávöxtum. INTERNETIÐ er minn besti vinur en um leið minn versti óvinur. Eða ég vona allavega að raunverulegir vinir mínir telji ekki að ég sé myrkur vöðvafíkill á stinningarlyfjum sem sé í leit að maka, þrátt fyrir að eiga frábæra kærustu, og hafi í þokkabót áhuga á því að skrá sig á námskeið í garðyrkju. Mér sýnist á öllu að internetið hati mig. Internetið hatar mig TMNT 3D 5:20 ARE YOU HERE 8 LET’S BE COPS 5:45, 8, 10:20 THE EXPENDABLES 10 LUCY 8 AÐ TEMJA DREKAN SINN 2D 5:20 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas MIÐASALA Á TMNT 2D KL. 3.30 - 5.45 TMNT 3D KL. 3.30 - 8 - 10.15 TMNT 3D LÚXUS KL. 3.30 - 5.45 - 8 THE GIVER KL. 5.45 - 8 - 10.15 THE GIVER LÚXUS KL. 10.15 LET́S BE COPS KL. 3. 30 - 5.40 - 8 -10.20 EXPENDABLES KL. 8 - 10.40 AÐ TEMJA DREKANN 2 ÍSL. TAL 2D KL. 3.30 - 5.45 THE GIVER KL. 5.45 - 8 - 10.15 ARE YOU HERE KL. 8 - 10.30 LET́S BE COPS KL. 5.45 - 8 NIKULÁS Í FRÍI KL. 5.45 SEX TAPE KL. 8 DAWN . . . PLANET OF THE APES 3D KL. 10.15 VONARSTRÆTI ENSKUR TEXTI KL. 5.20 VONARSTRÆTI KL. 10.15 ÁLFABAKKA AKUREYRI EGILSHÖLL KRINGLUNNI KEFLAVÍK KS - CHICAGO SUN NEW YORK DAILY NEWS HITFIX Save the Children á Íslandi

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.