Fréttablaðið - 24.09.2014, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 24.09.2014, Blaðsíða 34
 | 8 24. september 2014 | miðvikudagur „Þessa dagana fer mest af mínum tíma í að undirbúa komu 1800 og þar er allt að smella. Við erum að ráða fólk og semja við fjarskipta- fyrirtæki og önnur fyrirtæki um þessa þjónustu,“ segir Andri Árna- son, framkvæmdastjóri 1800 ehf. Andri hefur undanfarin fjögur ár unnið að því að koma á fót fyrir- tæki sem mun sérhæfa sig í sölu á upplýsingum um símanúmer ein- staklinga og fyrirtækja. „Við höfum stefnt að því að fara í samkeppni við 118 og nú lítur út fyrir að það sé að fara að tak- ast,“ segir Andri. Hann bætir við að ákvörðun Póst- og fjarskipta- stofnunar í sumar, um breytt fyrir- komulag á miðlun símaskrárupp- lýsinga, hafi verið nauðsynlegur þáttur í að skapa rekstrargrund- völl nýja fyrirtækisins. Andri er stúdent frá Verslun- arskóla Íslands og hann lauk BS- námi í viðskiptafræði við Við- skiptaháskólann í Kaupmannahöfn (CBS) árið 2007. „Ég á mjög góðar minningar þaðan og við kærastan reynum að heimsækja Danmörku eins oft og við getum,“ segir Andri. Hann hóf störf hjá fjölskyldu- fyrirtækinu Miðlun sama ár og hann útskrifaðist. Faðir Andra, Árni Zophoníasson, stofnaði fyrir- tækið árið 1983. „Þegar ég byrjaði þar vann ég sem sölumaður en ég hef verið starfandi framkvæmdastjóri frá árinu 2010 og sinnt daglegum rekstri fyrirtækisins. Nú ætla ég í auknum mæli að færa mig yfi r til 1800 og sinna uppbyggingu þess fyrirtækis.“ Andri er í sambúð með Sólrúnu Maríu Reginsdóttur, nema og fl ug- freyju hjá Icelandair. Spurður um áhugamál nefnir hann golf, te og 30 kílóa hund af tegundinni Golden Retriever. Eyðir frítímanum í hundinn, golf og te Andri Árnason, framkvæmdastjóri 1800 ehf., lærði viðskiptafræði við CBS í Kaupmannahöfn og hóf störf hjá fjöl- skyldufyrirtækinu Miðlun árið 2007. Fjölskyldan rekur einnig Tefélagið sem selur te í búðir og á veitingastaði. FRAMKVÆMDASTJÓRINN Andri heldur mikið upp á Danmörku en þar átti hann heima í fjögur ár. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA „Andri er frábær drengur í alla staði og minnir mig stundum á örlítið yngri og örlítið hávaxnari útgáfu af sjálfum mér og eigum við því vel skap saman. Ég kynntist honum þegar hann eftir áralanga baráttu náði að klófesta Sólrúnu, konuna sína, en hún er systir nr. 3 í röð fegurðardísa sem bera eftir- nafnið Regins. Fyrir utan kvensmekkinn deilum við miklum og djúpum áhuga á rauðvíni og góðum mat og höfum átt mjög margar eftirminnilegar stundir saman við matarborðið og ég er nokkuð viss um að við munum einhvern tíma opna veitingastað saman. Svona til að toppa þetta þá virðumst við einnig vera með mjög áþekkan fatasmekk og höfum oftar en ekki mætt í nánast sams konar fötum í matarboð og er okkur þá gjarnan ruglað saman … eða þannig.“ Gunnar Már Sigfússon rithöfundur „Ég kynntist Andra Árnasyni þegar við stunduðum nám í Kaupmannahöfn. Andri er hógvær maður og hreykir sér ekki, oft og tíðum það hógvær að þrátt fyrir að við tölum saman daglega þá kemst maður oft að því eftir á að hann er búinn að vera að vinna að einhverju mjög merkilegu í þó nokkurn tíma. Andri er fróðleiksfús og gæddur þeim eiginleika að ná að skoða bróðurpart internetsins daglega. Hann er hafsjór af fróðleik og getur maður alltaf leitað svara hjá honum, hvort sem það er vegna nýjustu trenda í viðskiptalífinu eða nafns á götu í erlendri stórborg. Það sem Andri gerir, gerir hann vel. Hann anar ekki út í neitt og ef hann hefur ekki fundið réttu lausnina þá bíður hann þar til hann finnur hana. Andri er klár, ósérhlífinn og duglegur.“ Sigurgísli Bjarnason, veitingamaður á Snaps og Nings FRÁBÆR DRENGUR OG HÓGVÆRSVIPMYND Haraldur Guðmundsson | haraldur@frettabladid.is „Ég á hundinn ásamt kærustunni. Hann er fjögurra og hálfs árs gam- all og ég reyni að gefa honum eins mikla athygli og ég get. Því fylgja margir göngutúrar og mikil umönn- un,“ segir Andri og heldur áfram: „Svo rekum við fjölskyldan annað hliðarfjölskyldufyrirtæki sem heitir Tefélagið þar sem við seljum te í áskrift og í búðir og á veitingastaði. Það fer dálítill kraft- ur í það líka því við hittumst tvisv- ar í mánuði og pökkum og veljum te fyrir næstu mánuði. Te er því dálítið stór partur af mínum frí- tíma.“ Ásdís Halla Bragadóttir er eigandi EVU ehf., sem á og rekur meðal annars félagið Sinnum ehf. Sinn- um sérhæfi r sig í alhliða heima- þjónustu, heimahlynningu, heima- hjúkrun eða hvíldardvöl fyrir eldri borgara, fatlaða, langveika, sjúka og aðra þá sem þarfnast þjónustu til að geta búið heima við. Þá á EVA einnig Heilsumiðstöðina sem starfar í Lágmúla og á og rekur Hótel Ísland. Þannig verður veit- ingastaðnum góðkunna, Broadway, breytt í Lækna- og heilsumiðstöð sem verður í um 3.000 fermetra rými á neðstu hæðum hússins ásamt því sem sjúklingar geta fengið gistingu í sama húsnæði og þeir fá heilbrigðis- eða aðra vel- ferðarþjónustu. Kjölfesta, sjóður í eigu lífeyrissjóðanna, keypti 30 prósent í EVU nýlega en félagið veltir um 800 milljónum á ári. Ásdís ræðir um starfsemi EVU og dótturfyrirtækja í Klinki vik- unnar, ásamt kostum einkarekst- urs í heilbrigðisþjónustu sem er oft mjög umdeildur í umræðunni. Ásdís segir að þar sem þjóðin sé að eldast fl jótt muni stærri og stærri hluti af sameiginlegum sjóðum þurfa að renna í heilbrigðisþjón- ustu. Nauðsynlegt sé að fi nna nýjar leiðir til þess að bæta þjónustuna en með hagkvæmum hætti. Nýj- asta þátt Klinksins þar sem rætt er við Ásdísi má nálgast á forsíðu Vísis. Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is Viðtalið við Ásdísi Höllu Bragadóttur er hægt að sjá í þættinum Klinkinu á www.visir.is. ÁSDÍS HALLA BRAGADÓTTIR Það verða að eiga sér stað breytingar á næstu árum „Okkur finnst mjög spennandi að læknar og heilbrigðisstarfs- fólk hafi val um vinnustaði og á þessum sjö árum sem eru liðin frá því að við stofnuðum EVU þá höfum við hitt marga lækna og heilbrigðisstarfsfólk sem hefur áhuga á því að gera eitthvað á eigin vegum – hafa eitthvað um vinnuna sína að segja.“ „Það verður aldrei þannig að einkaaðilar fari að gera allt það sem Landspítalinn er að gera. Alls ekki. Þetta verður bara brotabrot af þeirri starfsemi. Það er fullt af hlutum sem eiga heima inni á Landspítalanum og hann er að gera mjög vel en það eru ákveðnir hlutir sem geta allt eins verið framkvæmdir af læknum utan spítalans.“ „Við gerum ráð fyrir að sömu samningar gildi fyrir lækna sem starfa þar [hjá Heilsumiðstöð- inni], til dæmis sérfræðilækna, og þá sem eru að starfa í Glæsibæ eða Domus eða Orku- húsinu eða annars staðar þannig að Sjúkratryggingar greiði fyrir þá þjónustu sem Sjúkratryggingar hafa áhuga á og eru tilbúnar til þess að kaupa.“ „Oft þegar talað er um einka- rekstur þá bregður mönnum og þeir spyrja: eiga sjúklingarnir að fara að greiða fyrir þjónustuna? Nei. Það er ekki það kerfi sem ég tala fyrir og ég held að það séu ekki margir á Íslandi sem vilja fara í þá átt.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.