Fréttablaðið - 06.10.2014, Side 15

Fréttablaðið - 06.10.2014, Side 15
MÁNUDAGUR 6. október 2014 | SKOÐUN | 15 AF NETINU E N N E M M / S ÍA / N M 6 4 0 7 1 Ég man eftir því þegar ég var að aka með föður mínum í gamla daga og það kom rigning. Það gat liðið drykklöng stund áður en hann greip til sinna ráða gagnvart henni. En þegar hann gerði það setti hann rúðuþurrkurnar alltaf á allra mesta hugsanlegan hraða, hversu lítil sem rigningin var – þó að þetta væru bara nokkrir dropar – og þannig hélst það um nokkra hríð, jafnvel eftir að rúðan var löngu orðin þurr og farið að ískra í henni. Hann var að hugsa um annað – með hausinn fullan af ótal hlutum, eins og það hét. Mér dettur þetta stundum í hug þegar ég fylgist með íslenskri þjóðfélagsumræðu. Stundum er eins og vanti í hana einhvers konar miðstig, kannski hina frægu meðal hófsreglu; stundum er eins og umræðan taki ekki mið af aðstæðum heldur nýlundunni og skemmtanagildinu. „Hún Ísafold er besta þjóð …“ Ég hitti á dögunum tékkneska konu sem átt hafði þess kost að hlýða á forseta Íslands tala um land sitt og þjóð í fyrirlestri við háskóla í landi hennar. Ég innti hana nánar eftir fyrirlestrinum. Hún hugsaði sig um, kurteislega, og sagði svo eitthvað á þá leið að hún teldi ekki að sumar þjóðir væru snjallari en aðrar við lausn einhverra mála, enda hefðu þjóð- ir ekki eiginleika einstaklinga. Ég kinkaði kolli, skömmustuleg- ur, leið eins og þetta væri mér að kenna, sem það náttúrlega var alls ekki – ekki frekar en þegar ég var í Danmörku árið 2007 að borða ís með dætrum mínum og tvær rosknar konur sögðu við mig byrstar – eins og bara rosknar danskar konur geta orðið byrstar – þegar þær urðu þess áskynja að við værum íslensk: „Þið eruð alltaf að kaupa eitthvað hér!“ Ég muldr- aði eitthvað um að ég hefði nú bara verið að kaupa ís en ekki Magasin du nord. En mér leið eins og þetta væri allt saman mér að kenna. Sem það var ekki. En sem sé: forsetanum hættir til þess að tala um okkur erlendis eins og bílasali að selja bíl sem hann er innst inni ekki viss um að sé nógu góður. Þetta er ein hliðin. Hin hliðin speglar þetta oflof og er oflast. Umræðan sem Gunnar Smári stendur fyrir um að gerast nokk- urs konar próventufólk í norska ríkinu er sögð góð og gagnleg því hún dragi svo vel fram hversu langt að baki Norðurlandaþjóðum Íslendingar standa á ótal sviðum. Það gerum við áreiðanlega – og gerðum það reyndar líka þegar við stóðum í útrásinni, vansæll- ar minningar. Gallinn er bara sá að hugmyndin um aðild að Noregi er mýrarljós. Þetta verður aldrei. Það er verið að eyða umtalsverðu hugviti, orku og fjöri í hugmynd sem allir vita innst inni að er bara leikur að hugsanlegum möguleika – óraunhæf – og þegar það renn- ur upp fyrir fólki, sem það mun gera (eins og það rann upp fyrir Íslendingum á sínum tíma að það var enginn grundvöllur fyrir við- skiptaútrásinni til Norðurlanda), þá verður allt svart og ömurlegt og allar umbætur og hugmyndir að betra samfélagi virðast jafn óraun- hæfar og þessi reyndist vera. Milli þess að leggja undir sig Norður- lönd og leggjast undir Norðurlönd hlýtur þó að vera einhver milliveg- ur: til dæmis að reyna að vera full- gild Norðurlandaþjóð, taka okkur til fyrirmyndar það besta úr þjóð- félagslausnum þeirra. Og svo beina sjónum að aðild að ESB sem er raunhæfur valkostur – og innan seilingar ef við kjósum svo. Það er eins og sá valkostur sé of raunhæf- ur til að vekja áhuga fólks. Ísland er ónýtt– auðlind Skrýtið. Við erum ýmist einhver mikilfenglegasta þjóð allra tíma eða þá bara alls engin þjóð. Annað- hvort fór bara þjóðarhratið til Ameríku á sínum tíma eða þá eina fólkið sem eitthvað gat. Annað- hvort er allt einskis virði nema bændur eða þá allt sem aflaga hefur farið var bændum að kenna. Annaðhvort dóu allir sem eitt- hvað gátu eða bara afburðafólk- ið sem lifði af móðuharðindin. Í umræðuna hér vantar svo oft eitt- hvert millisvæði, kannski áhuga á sjálfum veruleikanum, sem alltaf er síkvikur, mótsagnakenndur og erfiður viðureignar. Og við verðum að reyna að tak- ast á við hann. Við verðum að vera raunsæ. Við ættum ekki eyða orku okkar og hugkvæmni í asnalegar og óraunhæfar hugmyndir, þó að asnalegar hugmyndir séu miklu skemmtilegri en þær raunhæfu. Það er töluvert alvörumál að vera Íslendingur um þessar mundir. Undir fótum okkar dunar sjálf Jörðin með öllum sínum feiknum og ósamið er um skrilljóna skuldir útrásarmannanna. Allt getur gerst en þar með er ekki sagt að allt eigi eftir að gerast – kannski ekkert. En það hefði verið ágætt að hafa í forsvari fyrir þjóðina fólk sem hægt er að taka mark á þegar það tjáir sig um lands- hagi, talar af yfirvegun en bull- ar ekki bara. Ísland er ónýtt auð- lind en unga fólkið okkar verður að fá þá tilfinningu að hér sé þess vert að búa, það verður að fá þús- und sinnum betra kaup, betri opinbera þjónustu, betri innviði, meiri skynsemi, meiri andagift, skemmtilegra og gjöfulla líf og kærleiksríkari stjórnmálamenn. Hér er ung og vel menntuð þjóð sem getur skapað miklu meiri verðmæti en henni er gefinn kost- ur á að gera. Ótal margt hefur farið aflaga hjá okkur en hér er líka sköpunarorkan geysileg, sam- félagið er dýnamískt (já og þras- gjarnt); tækniþekking útbreidd, fjölhæfni töluverð, tengslin sterk og líka sú menning að fólk eigi að reyna að bjarga sér og hjálpa öðrum. Það er helsta verkefni íslenskra stjórnmála nú að við fáum fólk til að stjórna landinu sem er eins og fólk og hugsar eins og fólk. Þá getur Ísland alveg verið land fyrir Jóhann. Ofl of og ofl ast Í DAG Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Forsetanum hættir til þess að tala um okkur erlendis eins og bíla- sali að selja bíl sem hann er innst inni ekki viss um að sé nógu góður. Fjölgun aldraðra ekki vandamál Í nýlegri könnun Help Age International er lagt mat á félags- lega og efnahagslega velferð eldri borgara í 96 löndum. Ísland er í sjöunda sæti á listanum. Það kann hins vegar að koma á óvart að helsti munurinn á okkur og Noregi sem vermir fyrsta sætið er ekki efnahagslegar aðstæður aldraðra eða heilbrigði þeirra, heldur menntunarstig aldraðra. Þetta eru ánægjulegar niðurstöður en um leið hvatning til að gera enn betur. Öldruðum fjölgar hratt um allan heim. Íslendingar 70 ára og eldri eru nú rúmlega 29.000. Eftir tuttugu ár verða þeir tvöfalt fleiri. Í mínum huga er fjölgun aldraðra ekki vandamál– heldur staðreynd. blog.pressan.is/eyglohardar Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra Rás 2 felld inn í Rás 1 Nú hefur Rás 2 verið töluð niður sem verðlaus. Hún sé lítið annað en einn maður og nokkrir hljómdiskar. Sérkenni hennar við sölu auglýsinga hafa verið afmáð með flutningi leikinna auglýsinga á undan öllum fréttum Ríkisútvarpsins. Þá hafa morgun- þættir rásanna tveggja verið sameinaðir. Allt bendir til að Rás 2 verði einfaldlega felld inn í Rás 1. bjorn.blog.is Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.