Fréttablaðið - 10.10.2014, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 10.10.2014, Blaðsíða 8
10. október 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 8 TIL SÖLU Allar nánari upplýsingar veitir Steindór Guðmundsson, löggiltur fasteigna-, fyrirtækja og skipasali Sími: 480-2901 • Fax: 482 2801 steindor@log.is • www.log.is Óskað er eftir tilboðum í Gistiheimilið Iðufell, Bláskógabyggð. Miklir möguleikar á uppbyggingu ferðaþjónustu. Um er að ræða 2,8 ha. eignarlóð, á glæsilegum stað rétt við bakka Hvítár, í þéttbýliskjarnanum Laugarási, Bláskógabyggð. Á lóðinni er 2.003,1m² húsnæði. Húsið er skráð sem gistihús, byggt 1964. Húsið er á tveimur hæðum. Neðri hæð hússins er innréttuð að hluta sem gistiheimili. Efri hæðinni er skipt niður í þrjá sali. Húsið þarfnast viðhalds og endurbóta, bæði að innan sem utan. Fyrir liggur sam- þykkt deiliskipulag þar sem m.a. er gert ráð fyrir núverandi húsi, fimm ein- býlishúsa- þremur parhúsa- og fimm raðhúsalóðum. IÐNAÐUR Framkvæmdastjórar tveggja fyrirtækja sem stefna að kísilframleiðslu hér á landi eru fullvissir um að Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) eigi eftir að sam- þykkja fjárfestingarsamninga þeirra við ríkið. „Við tókum mið af samningnum sem ríkið gerði við þýska fyrir- tækið PCC vegna kísilversins á Bakka og fyrst sá samningur fór í gegn þá tel ég engar líkur á að okkar verði ekki samþykktur af ESA,“ segir Magnús Garðars- son, framkvæmdastjóri United Silicon hf. Fyrirtækið stefnir að byggingu 35 milljarða króna kís- ilmálmverksmiðju í Helguvík. ESA komst síðastliðinn þriðju- dag að þeirri niðurstöðu að fjár- festingarsamningar íslenskra stjórnvalda við fyrirtækin Becro- mal, Verne, Kísilfélagið, Thorsil og GMR Endurvinnslu, hefðu falið í sér ólögmæta ríkisaðstoð. Samningarnir voru gerðir frá 2010 til 2012 og fólu í sér ýmsa afslætti af opinberum gjöldum og sköttum sem ríkið þarf nú að end- urheimta. Ákvörðun ESA hefur ekki áhrif á aðra fjárfestingarsamninga sem ríkið hefur gert eða eru til skoð- unar. Allir samningar ríkisins um ívilnanir eru hins vegar með fyrirvara um samþykki eftirlits- stofnunarinnar. Hákon Björnsson, fram- kvæmdastjóri Thorsil ehf., segir eigendur fyrirtækisins í þeirri trú að fjárfestingarsamningur, sem var undirritaður í vor vegna áforma Thorsil um 38 milljarða kísilmálmverksmiðju í Helguvík, verði samþykktur. „Í honum er tekið tillit til þeirra athugasemda sem ESA gerði við þessa eldri samninga og því ætti ekki að vera nein óvissa í kringum þann samning,“ segir Hákon. haraldur@frettabladid.is Óttast ekki ákvörðun ESA um ríkisaðstoð Forsvarsmenn United Silicon og Thorsil eru fullvissir um að fjárfestingarsamning- ar fyrirtækjanna við ríkið verði samþykktir af Eftirlitsstofnun EFTA. Fyrirtæki á Grundartanga setti þrjár milljónir króna í samning sem var á endanum ólöglegur. „Við þurfum ekki að standa í stórum endurgreiðslum því þetta er ekki nema um tvær og hálf milljón króna. Hins vegar fóru um þrjár milljónir í að gera þennan samning og því má segja að ríkið skuldi okkur enn 500 þúsund fyrir útlagðan kostnað,“ segir Sigurður Ágústsson, framkvæmdastjóri GMR Endurvinnslu á Grundartanga. Eigendur fyrirtækisins skrifuðu undir fjárfestingarsamning við ríkið árið 2012. Samkvæmt ákvörðun ESA fól sá samningur, eins og áður segir, í sér ólögmæta ríkisaðstoð. „Ég held að það hljóti að mega velta því upp hvort ríkið eigi ekki einfaldlega að greiða okkur fyrir þann kostnað og tíma sem við lögðum í að uppfylla samning sem er svo dæmdur ólöglegur. Þetta er umhverfi sem er mjög ótryggt, vont fyrir fjárfesta og ekki líklegt til að laða að aðra fjárfestingu,“ segir Sigurður. GMR endurgreiðir tvær og hálfa milljón HELGUVÍK Framkvæmdir á lóð United Silicon eru hafnar og Thorsil stefnir einnig að byggingu kísilmálmverksmiðju á svæðinu. KJARAMÁL Átta af hverjum tíu læknum í Læknafélagi Íslands, sem tóku þátt í atkvæðagreiðslu samþykktu að fara í verkfall. Læknar ætla að fara í tíu tveggja sólarhringa verkföll. Það fyrsta verður 27. október, semj- ist ekki áður. Síðasta verkfallið er boðað 10. desember. Verkföll- in taka til mismunandi stofnana og deilda á sjúkrahúsum. Gert er ráð fyrir að í hverju verkfalli verði tryggð sambæri- leg mönnun og á frídögum. Er þetta í fyrsta skipti sem læknar nota verkfallsrétt sem þeir fengu fyrir þrjátíu árum. - jme Læknar boða fjölda tveggja sólarhringa verkfalla: Aðeins frídagavaktir HEILSA Geir Gunnlaugsson, land- læknir, segir að allar alþjóðleg- ar rannsóknir bendi til þess að afnám einkasölu ríkisins á áfengi muni leiða til aukinnar heildar- neyslu. Enn fremur sýni rannsóknir að samhliða aukinni áfengisneyslu aukist samfélagslegur kostnaður vegna áfengistengdra vandamála. Þetta segir Geir í pistli á vefsíðu embættis síns vegna frumvarps um afnám einkasölu á áfengi, sem liggur fyrir þinginu. Geir segir að sterkur vísinda- legur grunnur sé fyrir virkum aðgerðum til að draga úr skað- legum áhrifum áfengisneyslu. Stýring á aðgengi að áfengi sé árangursrík leið til að takmarka áfengisneyslu og um leið mjög virk forvarnaraðgerð. „Rannsóknir á takmörkun aðgengis sýna að takmörkun afgreiðslutíma, fjölda söludaga og sölustaða helst í hendur við minni neyslu og minna tjón af völdum hennar,“ segir Geir. Þetta komi meðal annars fram í Aðgerða- áætlun Alþjóðaheilbrigðismála- stofnunarinnar í Evrópu til að draga úr skaðlegri notkun áfengis 2012-2020 og Heilsa 2020 þar sem grunnur er lagður að forvarna- starfi stofnunarinnar til ársins 2020. - jhh Telur áfengisneyslu aukast með afnámi einkasölu: Landlæknir á móti breyttri áfengissölu VARAR VIÐ Geir Gunnlaugsson segir afnám einkasölu auka neyslu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA LANDSPÍTALINN Mikill meirihluti lækna er samþykkur verkfallsboðun. MYND/VILHELM Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Eldhús- og skolvaskar Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ Bol-834 80x48x18cm þykkt 0,8mm 11.990 Bol-604 48x43x18cm Þykkt stáls 0,8mm 7.790 (fleiri stærðir til) Gua 539-1 með veggstálplötu, grind fylgir, 1mm stál 17.990 Botnventill og vatnslásar fylgja öllum vöskum CR Plast skolvaskur 55x34x21cm með botn- ventli og vatnslás 8.590 Gua-543-1 vegghengdur, 1mm stál, einnig fáanlegur í borð kr. 17.990 18.900 Mikið úrval af blöndunartækjum. Á MÚRBÚÐARVERÐI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.