Fréttablaðið - 10.10.2014, Síða 12
10. október 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 12
www.fiskikongurinn.is
FISKIKÓNGURINN
S0GAVEGI 3
HÖFÐABAKKA 1
Sími 587 7755
OPIÐ LAUGARDAG
10 - 15
KOMDU
ELSKU
NNI
ÞINNI Á
ÓVART
STÓR SEXÝ DJÚSÍ
Uppskrift af rækjukokteil er á
Facebook síðu Fiskikóngurins
VIÐSKIPTI Stilla útgerð ehf., sem
fer með minnihlutaeign í Vinnslu-
stöðinni í Vestmannaeyjum (VSV),
hyggst stefna öðrum hluthöfum
félagsins vegna sameiningar við
útgerðina Ufsaberg, og kaupa á
fyrirtækinu Eyjaís.
Þetta lá fyrir eftir hluthafafund
VSV á miðvikudag þar sem for-
svarsmenn Stillu
lögðu ti l , og
fengu samþykkt
í krafti laga um
hlutafélög, að
einstaklingum
og félögum sem
fara með meiri-
h lutann yrði
stefnt í nafni
Vinnslustöðvar-
innar sjálfrar til að greiða skaða-
bætur vegna tjóns sem þeir hefðu
orðið fyrir við sameiningu og kaup
á félögunum tveimur í Eyjum.
Eigendur Stillu, bræðurnir Guð-
mundur og Hjálmar Kristjáns-
synir, vilja meina að viðskiptin
valdi VSV tjóni, og einstaklingar
og félög sem mynda meirihlutann
hafi hag af viðskiptunum, sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins.
Guðmundur Örn Gunnarsson,
stjórnarformaður Vinnslustöðvar-
innar, segir þá bræður vilja bætur
fyrir tjón sem þeir telja sig verða
fyrir – nokkuð sem aðrir hluthaf-
ar geti ekki fallist á að sé raun-
in. „Þvert á móti tel ég viðskiptin
mjög hagfelld fyrir félagið,“ segir
Guðmundur og bætir við að átök-
in innan VSV standi félaginu fyrir
þrifum í allri eðlilegri uppbygg-
ingu sjávarútvegsfyrirtækis.
„Það að hóta meðeigendum
sínum með þessum hætti held ég
að sé án fordæma,“ segir Guð-
mundur og segir deginum ljósara
að hluthafalögin séu meingölluð.
Hér vísar Guðmundur til þess að
samkvæmt hluthafalögum mega
eigendur meirihluta hlutafjár ekki
taka þátt í atkvæðagreiðslu vegna
mála sem beinast gegn þeim sjálf-
um, og þannig hafi minnihlutinn
gerræðislegt vald til að ná sínu
fram.
Spurður hvort málarekstur
bræðranna sé til þess að koma í
veg fyrir að hlutfjáreign þeirra
þynnist út, segir Guðmundur að
málið líti þannig út fyrir sér enda
hafi þeir lengi reynt að auka hlut
sinn í VSV, en enginn í hópi Vest-
manneyinganna hafi viljað selja.
Guðmundur Kristjánsson, for-
stjóri Brims og stjórnarmaður
í VSV, segir að málið liggi ljóst
fyrir og snúist um tvennt. VSV sé
metin allt of lágt, og því hafi verið
selt á undirverði. „Svo teljum við
að það sé hægt að reka Vinnslu-
stöðina miklu betur. En meirihluti
hluthafa hefur ekki viljað fara
eftir okkar tillögum, t.d. varðandi
fjárfestingu í skipum og tækjum,“
segir Guðmundur og nefnir að
stór sjávarútvegsfyrirtæki, sam-
bærileg við Vinnslustöðina, skili
betri afkomu. Því séu möguleikar
félagsins vannýttir, og gömul
atvinnutæki hluti af þeirri skýr-
ingu. svavar@frettabladid.is
Hóta málsókn í annað sinn
Guðmundur í Brimi og bróðir hans, Hjálmar Kristjánsson, ætla í skaðabótamál gegn öðrum hluthöfum í
Vinnslustöðinni hf. Framhald áralangra deilna á milli þeirra og meirihlutahóps Vestmannaeyinga.
Tillaga Stillumanna er í raun nýr kafli í átökum innan félagsins sem á sér
langa sögu. Um eru að ræða átök eigenda Stillu sem eiga ríflega 30% í
VSV, Guðmundar Kristjánssonar, sem er oftast kenndur við útgerð sína
Brim, og bróður hans Hjálmars, við hóp Vestmannaeyinga sem á tæp 70%.
Átökin náðu hámarki þegar VSV keypti hluti í Ufsabergi árin 2008 og
2011, gegn vilja bræðranna. Þeir fóru með málið fyrir dómstóla og stefndu
þáverandi stjórnarformanni ásamt þremur úr eigendahópi félagsins. Þeir
féllu síðar frá þeirri kröfu.
Í mars 2013 ógilti Hæstiréttur samruna VSV og félaganna tveggja; ný
samrunaáætlun var samþykkt af VSV og Ufsabergi í sumar og var sam-
þykkt á fundinum á miðvikudag. Málið er því í raun að fara annan hring.
FRAMHALD ÁRALANGRA ÁTAKA INNAN VSV
VIÐ BRYGGJU Bræðurnir vilja endurnýja skip og tæki – stjórnarformaður segir
deilur standa í vegi fyrir því. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR
GUÐMUNDUR
KRISTJÁNSSON
STJÓRNMÁL Borgarráðsfulltrúar
Framsóknar og flugvallarvina
lögðu fram fyrirspurn á fundi
borgarráðs þann 14. ágúst síðast-
liðinn um hvernig greiðslum til
aðila sem sitja í nefndum borgar-
innar sé háttað.
Í svörum frá Reykjavíkurborg
frá 29. september kemur fram að
misjafnt sé eftir nefndum hvern-
ig greiðslum sé háttað eða hvort
greitt sé fyrir setu í nefnd.
Sem dæmi fá fulltrúar í úthlut-
unarnefnd barnabókaverðlauna,
ferlinefnd fatlaðra og þjónustu-
hóps fatlaðra 12.285 krónur fyrir
hvern fund en formaðurinn fær
tvöfalda þá upphæð. - hó
Fyrirspurn um greiðslur:
Rúmar 12.000
krónur á fund
FYRIRSPURN Borgarfulltrúar Framsókn-
ar og flugvallarvina lögðu fram fyrir-
spurn um greiðslur vegna nefndarsetu.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HEILBRIGÐISMÁL Heilsugæslu-
stöðin í Glæsibæ hefur tekið upp-
lýsingagáttina Veru í notkun.
Þar getur fólk fengið rafrænan
aðgang að upplýsingum um eigið
heilsufar. Innleiða á Veru í öllum
heilbrigðisumdæmum. - jme
Vera í gagnið í Reykjavík:
Aðgangur að
eigin skrám