Fréttablaðið - 10.10.2014, Blaðsíða 15
FÖSTUDAGUR 10. október 2014 | SKOÐUN | 15
Þegar dóttir mín varð eins árs á
dögunum uppgötvaði hún kær-
leikann. Okkur foreldrunum
til gremju eru það þó fyrst og
fremst leikföngin hennar sem fá
að njóta ástúðarinnar, tuskudýr
sem hún knúsar af innlifun. Það
kemur þó fyrir, þegar ekkert
tuskudýr er tiltækt, að hún beini
atlotum sínum að okkur. „Aaa,“
segir hún og strýkur okkur um
vangann. Eða það er það sem
hún heldur að hún sé að gera. Í
raun eru handtökin meira í ætt
við bardagabrögð Gunnars Nel-
sonar. Kinnhestur, munnkrækja,
augnpot, „rear naked choke“.
Mér varð hugsað til þessara
skaðræðisatlota þegar ég fylgd-
ist með fréttum vikunnar.
Gjafmildi pólitíkusa
Fréttablaðið greindi frá því í
upphafi viku að velferðarráðu-
neytið hygðist fela Barnavernd-
arstofu að endurnýja tæplega
500 milljóna króna þjónustu-
samning við meðferðarheim-
ilið Háholt í Skagafirði. Barna-
verndarstofa er hins vegar
eindregið á móti endurnýjun
samningsins. Telur stofan að
tilhögunin sé ekki í samræmi
við faglegar kröfur og með-
ferðarþörf barna sem glíma við
alvarlegan hegðunar- og/eða
vímuefnavanda. Þykir heimilið
afskekkt, of fjarri fjölskyldum
unglinganna og nauðsynlegri
fagþjónustu. Auk þess hefur
komið fram í fjölmiðlum að
heimilið sé lítið notað og standi
gjarnan tómt.
Þar sem hvorki nytsemi heim-
ilisins né hagsmunir vistmanna
þess virðast spila inn í tilskipun
velferðarráðuneytisins er erfitt
að draga aðra ályktun en þá að
byggðasjónarmið ráði för.
Slík gjafmildi pólitíkusa þegar
kemur að landsbyggðinni er
ekki ný af nálinni. Og það eru
ekki aðeins framsóknarmenn
sem senda bitlinga heim í hérað
eins og ríkissjóður sé jafnendur-
nýjanleg auðlind og mjöðurinn
sem rann úr spenum geitarinn-
ar Heiðrúnar forðum. Skemmst
er að minnast eins af síðustu
verkum Steingríms J. Sigfús-
sonar í ráðherrastóli er hann
lagði grunninn að kísilmálm-
verksmiðju á Bakka með því að
senda 2,6 milljarða norður sem
nota átti í vegaframkvæmdir,
jarðgöng og hafnarbætur við
Húsavík.
Rausnarlegar sálir leyfa póli-
tíkusum að njóta vafans og trúa
því að framferði þeirra ráðist
aðeins af kærleik í garð sveita
landsins. Meinhæðnara fólk
kann að halda því fram að þarna
sé keyptur fyrir skattfé almenn-
ings sigurinn í næsta prófkjöri.
En hver svo sem hvatinn er efast
enginn um að stjórnmálamenn
trúi því að með gjöfum sínum
strjúki þeir landsbyggðinni um
vangann. Við nánari athugun
kemur hins vegar í ljós að atlotin
eru, rétt eins og þegar dóttir mín
hyggst sýna mér væntumþykju,
nær því að teljast „rear naked
choke“. Þau eru kverkatak.
Íslenska mafían
Merkilegustu fréttir vikunn-
ar eru þær að það hafi þótt
merkilegustu fréttir vikunnar
að Mjólkursamsalan er ruddi.
Lengi hefur legið fyrir að starfs-
hættir MS eiga meira sammerkt
með ítölsku mafíunni en venju-
legum viðskiptaháttum.
Árið 2008 komst borgin Nap-
ólí í heimsfréttirnar fyrir að
vera sokkin á bólakaf í rusl.
Ástæðan var sú að glæpasam-
tökin Camorra, mafía Kamp-
aníuhéraðsins á Suður-Ítalíu,
höfðu sölsað undir sig alla sorp-
hirðu. Sorphirða er arðvæn-
legur bransi og með ógnunum
og samráði tókst þeim að hrekja
aðra keppinauta af markaðinum.
Ein um hituna gátu glæpageng-
in sinnt verkinu með hangandi
hendi og losað sig við ruslið í
vegaköntum og á víðavangi.
Gerði einhver sig líklegan til
að stofna sorphirðufyrirtæki
til höfuðs þeim var viðkomandi
ofsóttur af glæpagenginu og
beittur fjárkúgunum uns hann
gafst upp. Hljómar kunnuglega,
ekki satt?
Sveitirnar húðstrýktar
Rétt eins og þegar kemur að því
að senda bitlinga heim í hérað
er það ekki aðeins Framsóknar-
flokkurinn sem stendur vörð um
Mjólkursamsöluna. Þessi ríkis-
varða einokun er í boði allra
flokka. En með því að halda
hlífiskildi yfir hinni ógnvæn-
legu og áhrifamiklu mjólkur-
mafíu, til að mynda með því að
undanskilja hana frá samkeppn-
islögum, eru stjórnmálamenn að
húðstrýkja sveitir landsins.
Samantekt Kastljóssins fyrr í
vikunni á öllum þeim fyrirtækj-
um á sviði mjólkuriðnaðar sem
Mjólkursamsalan hefur kveð-
ið í kútinn með bolabrögðum
var fróðleg. Við nánari skoðun
kemur í ljós að eitt eiga mörg
þessara fyrirtækja sameigin-
legt. Þau voru starfrækt úti á
landi.
Vel má vera að ríkisstjórn-
in telji sig sýna landsbyggðinni
ástúð með því að moka krónum
í að búa til gervistörf í hnign-
andi byggðum landsins. En í
stað þess að vera landsbyggð-
inni knús jafnast þessi stefna á
við kjaftshögg. Hversu lengi er
hægt að viðhalda byggðunum
með því að láta fólk gæta þar
tómra stofnana? Hversu freist-
andi atvinnumöguleikar er stór-
iðja fyrir æsku landsins? Nær
væri að stjórnvöld hættu að taka
þátt í að berja niður nýsköpun í
matvælaiðnaði – alvöru nýsköp-
un sem býr til alvöru störf – sem
náttúrulegt væri að ætti sér stað
í sveitum landsins. Í stað þess að
gefa sveitum landsins rothögg,
hvernig væri að gefa einokun
Mjólkursamsölunnar náðar-
högg?
Knús eða kjaftshögg
Í DAG
Sif
Sigmarsdóttir
rithöfundur
Vel má vera að ríkis-
stjórnin telji sig sýna
landsbyggðinni ástúð með
því að moka krónum í að
búa til gervistörf í hnign-
andi byggðum landsins. En
í stað þess að vera lands-
byggðinni knús jafnast þessi
stefna á við kjaftshögg.
AF NETINU
Tíðindi úr Neanderdal
Fyrir stuttu sá ég
mynd af Neander-
dalskonu sem er
svo sem ekki í
frásögur færandi
fyrir utan það að
fram að því hafði ég
bara séð myndir af
Neanderdalskörlum. Miðað við
grunnþekkingu á því hvernig
tegundir fjölga sér myndi ég
varlega áætla að það hafi verið
álíka margar konur og karlar til
að viðhalda tegundinni, nema
þarna sé komin skýringin á því
hvernig fór fyrir Neanderdals-
mönnum.
Af einhverjum ástæðum
virðist karlkyn yfirleitt vera
hið sjálfgefna kyn í aðstæðum
þar sem ekki skiptir máli hvort
kynið er sýnt. Til dæmis voru
nánast allir brandarar sem ég
lærði sem barn um einhverja
kalla, nema auðvitað ljósku-
brandarar Um daginn sagði
ég sex ára dóttur minni hinn
sígilda brandara um vinnu-
mennina Við og Vind. Í minni
útgáfu var bóndakona sem réð
þá sem vinnumenn og endaði
hún svo á að leysa Vind og reka
Við.
Ég biðst afsökunar á að
eyðileggja punch line-ið ef ein-
hver hefur ekki heyrt þennan
brandara. Nokkrum dögum
síðar kom dóttir mín frekar
skúffuð til mín og sagðist hafa
lesið sama brandara í blaði og
þar var þetta bóndi sem réð
vinnumennina. Var þetta álitin
klár sögufölsun hjá móðurinni.
www.deiglan.is
Sigríður Dögg Guðmundsdóttir
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
Bíldshöfða 10 S: 5878888 br.is
Engin lántökugjöld
á bílafjármögnun
í október
Bílaleiga