Fréttablaðið - 10.10.2014, Page 42
Lífi ð
FRÉTTABLAÐIÐ Samfélagsmiðlar og bloggið.
BLOGGARINN KVENLEGUR OG KLASSÍSKUR TÖFFARI
Blair Eadie
atlantic-pacific.blogspot.com
Ofurskvísan Blair Eadie heldur úti tísku-
blogginu Atlantic-pacific. Hún er búsett í
San Francisco og starfar sem sölustjóri hjá
GAP. Stíllinn hennar er einstaklega kven-
legur og sést hún sjaldan án sólgeraugna
og rauða Beso-varalitarins frá Stila. Hún fer
sínar eigin leiðir í fatavali og er óhrædd við
að blanda saman áberandi munstrum og
vera í stóru, skærlitu pilsi við joggingpeysu
og hæla. Flottur töffari sem gaman er að
fylgjast með og leita eftir innblæstri.
My Ex Boyfriend
https://www.facebook.com/
myexboyfriend.info
Einstaklega skemmtileg síða hjá danskri
second-hand-verslun. Þarna eru seld
gömul húsgögn í bland við ný, og þeim
gefið nýtt og ferskt yfirbragð. Myndirn-
ar eru vel stíliseraðar og stundum erf-
itt að sjá hvort um gamalt eða nýtt er
að ræða. Töff síða fyrir þá sem leita að
innblæstri fyrir heimilið og finnst gaman
að gefa gömlum húsgögnum nýtt líf.
The You Way
http://www.pinterest.com/
theyouway/
Skandinvísku tískubloggararnir Anine
Bing, Sofie Fahrman og Pernille Tes-
baek, stofnuðu saman bloggsamfélag-
ið The You Way, en þær eru allar hvor
með sitt tískubloff. Þar birta þær mynd-
ir af því nýjasta í tískuheiminum hverju
sinni. Nú hafa þær bætt Pinterest-síðu í
safnið, sem skemmtilegt verður að fylgj-
ast með, en þær eru miklar smekkkonur.
Á Pinterest-síðunni birta þær innblástur
af fatasamsetningum, förðun og fréttir
úr tískuheiminum.
Andy Heart
http://instagram.com/an-
dyheart
Tískubloggarinn og hönnuðurinn Ann
Kim er búsett í Los Angeles. Ásamt því
að halda úti tískublogginu andy heart.
com, er hún mjög virk á Insta gram
þar sem hún birtir fallegar myndir
af sér og lífi sínu. Stíllinn hennar er
miním alískur og örlítið skandinavískur
og hennar uppáhald er fallegar hand-
töskur.
Tryggir fullkomna mælingu á margskiptu gleri
Skjár sem sýnir þér nýju gleraugun frá öllum hliðum
Fljótlegt og einfalt ferli
Skilar þér fullkomnu gleri fyrir þína sjón
BYLTINGARKENND NÝJUNG
í mælingum á margskiptum glerjum
HAMRABORG 10, KÓPAVOGI – SÍMI: 554 3200
OPIÐ: VIRKA DAGA 9:30-18 LAUGARDAGA 11:00- 14:00
TRAUS
T
OG GÓ
Ð
ÞJÓNU
STA
Í 18 ÁR