Fréttablaðið - 10.10.2014, Page 44
FÓLK|HELGIN
Við bjóðum bæði upp á opin námskeið sem haldin eru í kennslustofu
og kennslueldhúsi að Lynghálsi
3, og námskeið sem eru aðlöguð
að fyrirtækjum eða hópum,“ seg-
ir Guðrún Adolfsdóttir. Hún er
einn af fimm ráðgjöfum og mat-
vælafræðingum Matvælaskólans
hjá Sýni, en skólinn sérhæfir sig
í fjölbreyttu fræðslustarfi sem
tengist matvælum á einhvern
hátt.
„Námskeiðin getum við bæði
haldið hér hjá okkur eða í við-
komandi fyrirtækjum,“ segir
Guðrún og bendir á að Matvæla-
skólinn hafi farið með námskeið
sín um allt land á öllum tímum
ársins. „Enda teljum við sveigj-
anleika okkar aðalsmerki,“ segir
hún glaðlega.
Námskeiðin um gæðamál,
meðferð matvæla og vellíðan í
vinnunni eru vinsælust að sögn
Guðrúnar. „Við leggjum mikla
áherslu á að undirbúa nám-
skeiðin okkar í samráði við við-
skiptavini okkar og teljum það
mikilvægt í að ná sem bestum
árangri.“ Sem dæmi um önnur
námskeið nefnir Guðrún mat-
reiðslunámskeið um norður-afr-
ískan mat og annað um hollan,
heimagerðan og hagkvæman
mat.
Matvælaskólinn býður einnig
upp á 60 kennslustunda grunn-
nám sem ætlað er starfsfólki
í matvælagreinum auk Gæða-
stjórnunar I og II sem eru fram-
haldsnámskeið.
Nánari upplýsingar má
finna á www.syni.is
MATUR ER OKKAR MÁL
SÝNI KYNNIR Matvælaskólinn hjá Sýni sérhæfir sig í fjölbreyttu fræðslustarfi
sem á einn eða annan hátt tengist matvælum. Þar má finna skemmtileg nám-
skeið fyrir stærri og minni hópa og góðar hugmyndir að óvissuferðum.
VEL ÚTBÚIÐ ELDHÚS Skemmtilegt er fyrir hópa að koma og elda í glæsilegu eldhúsi
Matvælaskólans hjá Sýni.
Það sem þarf í þennan rétt fyrir fjóra:
• 500 g svínahakk
• 2 msk. olía eða smjör til steikingar
• ½ laukur, fínt skorinn
• 2 gulrætur, skornar smátt
• ½ lítið box tómatmauk (puré)
• 1 dós niðursoðnir tómatar með basil og
hvítlauk
• ½ dós maískorn
• ½ tsk. sykur
• salt og pipar
• Kartöflumús
• 1 kg kartöflur
• 75 g smjör
• 2 dl mjólk
• salt og pipar
• smávegis rifið múskat
• 2 dl rifinn ostur
AÐFERÐ
1 Skrælið kartöflur og skerið í teninga. Sjóðið þar til þær verða mjúkar. Hellið
vatninu af og maukið þær með smjöri
og mjólk. Bragðbætið með salti, pipar og
múskati.
2 Steikið hakkið á pönnu og setjið það síðan til hliðar. Steikið lauk og gul-
rót þar til grænmetið mýkist. Bætið þá
tómatmauki saman við. Setjið hakkið aftur
á pönnuna ásamt niðursoðnum tómötum
og maísbaunum. Látið malla smá stund og
bragðbætið með salti og pipar.
3 Setjið hakkið í djúpa eldfasta skál, eða fjórar litlar skálar. Setjið kartöflumús-
ina yfir kjötsósuna og síðan ostinn.
4 Bakað í ofni við 180°C í 30-40 mín-útur þar til osturinn hefur fengið á sig
gylltan blæ. Berið réttinn fram með fersku
salati og brauði, ef vill.
EINFALDUR EFTIRRÉTTUR MEÐ EPLUM
Ef fólk er til í eftirrétt á eftir Sheperd’s Pie
er upplagt að bjóða upp á hollan epladesert
að breskum sið.
Í þennan rétt, sem miðast við fjóra, þarf:
• 4 epli
• 1 dl vatn
• 1 tsk. sykur
• 4 dl hafragrjón
• ½ tsk. kanill
• 2 dl kotasæla eða grísk jógúrt
Afhýðið eplin og leggið í kalt vatn með
sítrónusafa til að þau taki ekki lit. Skerið
þau síðan smátt. Setjið í vatn og sjóðið þar
til eplin verða mjúk, bætið sykri út í blönd-
una. Maukið eplin og kælið.
Ristið haframjöl á þurri pönnu og dreifið
kanil yfir.
Setjið eplamús í botn á fallegu glasi,
síðan ristað haframjöl og kotasælu eða
gríska jógúrt. Þetta er gert að minnsta kosti
tvisvar sinnum.
EINS OG Á BRESKUM PÖBB
SPENNANDI Þeir sem hafa borðað á breskum pöbbum vita að eftirlæti þarlendra er svokallað Sheperd’s Pie. Til eru margar útgáfur
af þessum rétti, oft er hann gerður úr lambahakki en í þessari uppskrift er notað svínahakk. Það má vel breyta því ef fólk vill held-
ur aðra gerð af kjöti. Þessi réttur er þægilegur þar sem allt er sett í eina skál og svo er maturinn mjög góður daginn eftir líka. Fínn
hversdagsmatur sem flestum líkar, jafnt ungum sem þeim eldri.
SHEPHERD’S PIE
Þægilegur réttur
þar sem allt er sett
í eina skál.
NORDICPHOTOS/GETTY
DÆMI UM NÁMSKEIÐ MATVÆLASKÓLANS:
• Gæði og öryggi alla leið –
HACCP
• Gæði og öryggi alla leið –
HACCP (fyrir þá sem lengra eru
komnir)
• Indversk matargerð –
Matreiðslunámskeið
• Námskeið fyrir verkstjóra og
stjórnendur í fiskvinnslum
• Innri úttektir – sannprófun á
gæðakerfum í matvælaiðnaði
• Hópeflisnámskeið með áherslu
á gæðamál og matargerð
• Hönnun, uppsetning og viðhald
fyrir viðhaldfólk í matvælaiðn-
aði
• Norðu-afrískur matur –
Matreiðslunámskeið
• Merkingar matvæla – Nýjar
reglur
• Öryggi og meðferð matvæla í
frumframleiðslugreinunum eins
og í eldi og ræktun, slátrun, kjöt-,
fisk- og matvælavinnslum og í
mötuneytum og stóreldhúsum.
• Meðhöndlun og nýting á afurð-
um um borð í fiskiskipum
• Hollt, heimagert og hagkvæmt –
Matreiðslunámskeið
• Námskeið um innleiðingu mat-
vælastaðla eins og BRC, ISO
2200, IFS og MSC.
Auk námskeiða býður Sýni
upp á rannsóknir á matvælum og
úttektir og ráðgjöf varðandi með-
höndlun á matvælum.
Hátíðin verður í anda íslenskra
töðugjalda, gestrisni og upp-
skeruhátíðar en með þýsk-ís-
lensku ívafi, harmóníkutónlist,
lúðrablæstri og söng, mungát og
léttum veitingum.
„Verslanir og veitinga-
hús hafa sameinast
um að bjóða sér-
tilboð á
Októ-
berhá-
tíðinni,
hægt
verður að
bragða á gómsæt-
um ostum og fingra-
fæði í fjölmörgum verslunum og
drykkjarföngum af ýmsu tagi, en
hver verslun og hvert veitingahús
leggur sínar eigin línur í þeim efn-
um. Farandsöngvarar verða síðan
á ferli til að glæða stemninguna
auknu lífi,“ segir Jakob Frímann
Magnússon miðborgarstjóri.
Þetta er í fyrsta sinn sem
Októberhátíð af þessum toga
er haldin í miðborginni, en
fjölmargar hátíðir af
ólíkum toga ein-
kenna mið-
borgar-
lífið í 101
Reykja-
vík, þessu
fjölsóttasta
póstnúmeri Íslands
sem á aðra milljón
erlendra gesta sækir heim
árlega auk heimamanna sem
fjölmenna í miðborgina sína sér-
hvern dag vikunnar. Nánari upp-
lýsingar um hátíðina er að finna
á midborgin.is
OKTÓBERHÁTÍÐ
Í MIÐBORGINNI
Efnt verður til Októberhátíðar í miðborginni á
morgun, 11. október, í fyrsta skipti. Hátíðin hefst
klukkan 14.
LÍF OG FJÖR Verslanir og veitingahús hafa sameinast um að bjóða sértilboð á Októ-
berhátíðinni. Þá verður hægt að bragða á gómsætum ostum, og fingrafæði í fjölmörgum
verslunum.