Fréttablaðið - 10.10.2014, Page 54
Ítarlegt viðtal við Emblu um
þessi mál og önnur má sjá í
Íslandi í dag í kvöld sem hefst 18:55
á Stöð 2
visir.is
Það er særandi og móðgandi að
gert sé ráð fyrir að sú stelpa sem
verður skotin í mér glími við kyn-
röskun sem er viðurkennd geð-
röskun innan geðlækninga.“ Þetta
segir hin 24 ára Embla Guðrúnar-
og Ágústsdóttir sem stundar nám í
félags- og kynjafræði við Háskóla
Íslands. Embla er hreyfihömluð
og segir einkennilegt að fólk geri
aldrei ráð fyrir að hún sé á föstu
eða langi til þess, hvort hana langi
í barn eða börn. „Eðlilegar spurn-
ingar sem vinkonur mínar á sama
aldri eru iðulega spurðar út í.“
Hlýtur að vera pervert
Embla er búin að fá nóg af því
hvernig litið er á fatlað fólk, hvern-
ig komið er fram við það og hvernig
viðmótið virðist lítið breytast þrátt
fyrir þá umfjöllun sem á sér stað.
„Það er hvorki þægilegt fyrir mig
né þær stelpur sem ég á stefnumót
við, að vita til þess að það sé viður-
kennt að það hljóti eitthvað að vera
að þeim, fyrst þær laðist að mér.“
Embla segir þó skipta máli í hvora
áttina málið snýr. „Ef ófötluð kona
er með fötluðum manni, finnst
mörgum hún vera góð og kjörkuð.
Þessi kona fær klapp á bakið. Ef
ófatlaður maður er hins vegar með
fatlaðri konu, hlýtur eitthvað að
vera að honum. Hann getur ekki
mögulega elskað og virt mann-
eskjuna sem hann er með, hann er
pervert.“
Ekki litið á fatlaða sem kynverur
Á dögunum hélt Embla fyrirlestur
í Háskóla Íslands um samspil kyns
og fræðslu og þá upplifun hennar
að fá í raun ekki að vera kyn. „Fólki
lítur ekki á fatlað fólk sem kynver-
ur og gerir ekki ráð fyrir að við
séum það. Það er ergjandi. „Það er
litið á mig og komið fram við mig
eins og ég sé þriggja ára. Fólk spyr
manneskjuna með mér hvort eða
hvað ég vilji, frekar en að spyrja
mig sjálfa. Þá finnst fólki ekkert
að því að snerta mig, snerta hárið á
mér og klappa mér á bakið. Þetta er
eitthvað sem það myndi aldrei gera
við aðra ófatlaða manneskju, nema
hún sé þá þriggja ára.“ Þá segir
Embla einkennilegt að ófötluðum
finnst þeir þurfa að hrósa fötluð-
um í tíma og ótíma. „Það er allt-
af verið að segja við mig, og það á
mjög barnslegan hátt, að ég sé svo
fín og mikið krútt svo ekki sé talað
um hvað ég sé dugleg. Orðið dug-
leg hefur í dag enga merkingu fyrir
mér því ég er sögð dugleg fyrir það
eitt að kaupa í matinn.“
Vinkonunum hrósað fyrir að
umgangast hana
Embla segir ekki vandamálið vera
að fólk vilji ekki fötluðum vel. Það
kann þó illa að umgangast fatl-
aða og segir hún til að mynda sárt
þegar sussað er á barn sem spyr
foreldri sitt hvers vegna hún gangi
skringilega eða hvers vegna ein-
hver sé í hjólastól. „Þegar svona
er brugðist við upplifir barnið eitt-
hvað rangt og neikvætt. Betra væri
að segja við barnið að allir séu ekki
eins og jafnvel spyrja barnið hvort
því finnist hjólastóllinn ekki flott-
ur.“ Það er ljóst að Embla og annað
fatlað fólk þarf að takast á við hluti
sem aðrir leiða varla hugann að.
„Það upplifa til dæmis fáir að vinir
þeirra fái sérstakt hrós fyrir að
fara með þeim út á lífið. Fólk gerir
ráð fyrir að ég hafi ekkert fram að
færa og að vinirnir taki mig með af
tómri góðmennsku. Þetta pirrar.“
Betra í útlöndum
Embla segist finna mun minna
fyrir því að vera fötluð þegar hún
er erlendis, til að mynda í Svíþjóð.
„Þar eru menn einfaldlega komnir
mun lengra en hér heima. Þar er
fólk mun sýnilegra. Það vinnur í
bönkum, á veitingahúsum o.s.frv.
Þetta sérðu ekki hér heima.“ Hún
segist þó vongóð um að viðhorf
fólks og framkoma þess í garð
fatlaðra breytist í náinni framtíð.
„Hún þarf að gera það og hlakka
ég mikið til þess dags þegar eng-
inn tekur sérstaklega eftir mér
þó ég sé aðeins öðruvísi,“ segir
Embla.
Er eitthvað að stelpum
sem eru skotnar í mér?
„Það er litið á mig og komið fram við mig eins og ég sé þriggja ára. Fólk spyr
manneskjuna með mér hvort eða hvað ég vilji, frekar en að spyrja mig sjálfa.“
KOMIN MEÐ NÓG Embla er komin með nóg af því hvernig litið er á fatlað fólk. FRÉTTBLAÐIÐ/VALLI
Ef ófötluð kona er
með fötluðum manni,
finnst mörgum hún vera
góð og kjörkuð.
Sindri
sindrason
sindri@stod2.is
PI
PA
40 MILLJÓNIR
Á EINN MIÐA!
Vænlegast til vinnings
MILLJÓNAVELTAN
AÐALÚTDRÁTTUR
70 MILLJÓNIR
3.000 manns fá allt frá 5 þúsund
á einn miða.
A
40
A
R\
TB
W
krónum upp í 25 milljónir.
W
A
•
S
ÍA
•
1
43
26
0
DRÖGUM Í DAG
10.
OKTÓBER
Tryggðu þér
miða fyrir
kl. 18
í dag!
miða áTryggðu þér
www.hhi.is síma , í
563 83OO næsta eða hjá
boðsmanni.um averððMi
00 kr.3er aðeins 1.
KAREINN MIÐI, ÞREFALDIR MÖGULEI
MILLJÓN Á MANN
5 x 1 MILLJÓN
5 heppnir vinningshafar fá
eina milljón króna hver.
1
10. október 2014 FÖSTUDAGUR
LÍFIÐ
10. október 2014 FÖSTUDAGUR