Fréttablaðið - 10.10.2014, Side 55
FÖSTUDAGUR 10. október 2014 | LÍFIÐ | 31
„Ég er búinn að vera að nördast
í kokteilum liggur við frá blautu
barnsbeini, það liggur við að ég
hafi fengið kokteil á pelann,“ segir
Ólafur Örn Ólafsson hlæjandi, sem
ásamt Ými Björgvini Arthúrssyni
stendur fyrir kokteilnámskeiði
fyrir hópa. Námskeiðin eru tveggja
klukkustunda löng og þar er sögð
saga kokteilana og fólki leyft að
smakka kokteila frá ýmsum tímum.
„Þetta er í raun fyrirlestur þar
sem er farið í gegnum sögu kok-
teila til dagsins í dag með nokkr-
um stoppum þar sem ég hristi eða
bý til drykki frá mismunandi tíma-
bilum, þannig að fólk fái bragð-
upplifun af sögunni,“ segir Ólafur,
sem hefur brennandi áhuga á kok-
teilum og býr yfir miklum fróðleik
um þá. „Ég gæti talað um þetta í
marga daga en þurfti að ná þessu
niður í tvo tíma. Mér finnst þetta
ansi skemmtilegt,“ segir hann.
Námskeiðin eru haldin á veitinga-
staðnum Uno sem sér um að hafa
smárétti með kokteilunum. Þau
eru ætluð hópum og nú þegar hafa
nokkrir hópar setið námskeiðið.
„Þeir sem hafa komið eru ánægð-
ir með þetta og við höldum þessu
áfram meðan fólk vill koma,“ segir
hann. Nánari upplýsingar um nám-
skeiðin er að finna á Facebook- síð-
unni Glögg & Grín. - vh
Bragðupplifun af sögu kokteilanna
Ólafur hefur brennandi áhuga á kokteilum og miðlar nú reynslu sinni.
FRETTABLAD
ID
/STEFÁN
ELSKAR KOKTEILA
Ólafur fer yfir sögu
kok teilanna á námskeiði.
Leikkonan Selena Gomez hefur
mikinn áhuga á tísku og hefur nú
þegar hannað eina barnafatalínu
fyrir verslunar-
keðjuna Kmart.
Selena mætti á
tískuvikuna í
París í síðasta
mánuði en segir
í samtali við E!
að henni hafi
fundist þetta
dálítið stórt allt
saman. „Þetta
var í fyrsta skipti sem ég fór á
tískuvikuna. Þetta var eins og
vera kastað inn í eld. Maður er í
miðjunni á þessu öllu saman. Ég
fór í lok hátíðarinnar og þetta
var mjög stressandi. Mig langaði
að taka myndir af öllu. Ég hugs-
aði bara: „Mig langar í þetta, mig
langar í þetta og mig langar í
þetta!“ Selena segir að sig langi
hugsanlega til þess að hanna
meira en þá ekki fyrir börn. „Nú
þegar ég er orðin eldri og farin
að prófa nýja hluti, þá gæti þetta
breyst aðeins. Ég er ekki búin að
skipuleggja neitt enn en ég veit að
þetta langar mig að gera.“
Langar að
hanna föt fyrir
sinn aldurshóp
SELENA GOMEZ
„Allar skapandi greinar koma
saman og fókusinn verður á
samsláttinn,“ segir Ragnheiður
Gestsdóttir, ráðstefnustýra YAIC,
eða ráðstefnunnar You Are in
Control sem verður haldin í sjö-
unda sinn í byrjun nóvember.
Ragnheiður segir samslátt vera
áberandi í dag og sérstaklega á
Íslandi. „Markaðurinn á Íslandi
er lítill og fólk þarf því oft að
fara úr einu hlutverki í annað.
Það er oft í þessum núningi sem
ófyrirséðir hlutir gerast í skap-
andi vinnu og ráðstefnan fæst í
rauninni við það sem er að gerast
í grasrótinni og hvernig er hægt
að efla samsláttinn.“
Ragnheiður segir ráðstefn-
una vera fyrst og fremst fyrir
listamenn og skapandi fólk, en
fjölmargir erlendir fyrirlesarar
munu halda erindi á ráðstefn-
unni. „Það eru svo margir ein-
yrkjar í listinni og nauðsynlegt
fyrir þá að komast út úr stúdíó-
inu og hitta fólk í sama geira eða
ólíkum geirum og fá nýjar hug-
myndir um samvinnu.“ - ebg
Skapandi sam-
sláttur greina
FYRIR SKAPANDI FÓLK Ragnheiður
Gestsdóttir, ráðstefnustýra YAIC.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Heyrnartól Hljómflutningstæki Töskur Armbandsúr
Ég er búinn að vera
að nördast í kokteilum
liggur við frá blautu
barnsbeini.
Ólafur Örn Ólafsson.