Fréttablaðið - 10.10.2014, Qupperneq 58
10. október 2014 FÖSTUDAGUR| SPORT | 34
liðinu. Það verður ekki stærra hjá
manni en að spila með A-landsliðinu
og það var skemmtilegt að koma inn
í það umhverfi sem óþekkt andlit.“
Hann sagðist ekki vita hvort hann
væri í byrjunarliðinu í kvöld en að
hann myndi taka við því hlutverki
sem honum yrði úthlutað. „Það fer
enginn í fýlu í þessum hópi. Þetta er
það flott teymi og við gerum okkur
fulla grein fyrir því að við erum hér
sem fulltrúar okkar þjóðar. Hver og
einn gerir það sem ætlast er til af
honum.“
Lengi að finna rétta stöðu
Jón Daði spilaði með uppeldisfé-
laginu á Selfossi alla tíð, þar til
hann gekk í raðir norska úrvals-
deildarfélagsins Viking í ársbyrj-
un 2013. Hann segir að þar hafi
hann loksins fundið sína rétta
stöðu á knattspyrnuvellinum.
„Það hefur gengið illa að finna
hvaða staða hentar mér best. Ég
hef gegnt ýmsum hlutverkum;
spilað úti á kanti, á miðjunni og
sem sóknartengiliður. En ég lít á
mig sem hreinræktaða „níu“, að
spila sem fremsti sóknarmaður,“
segir hann.
„Ég hef hraða og er góður í að
koma mér á bak við varnarlínuna
og ná þannig að ógna markinu.
Ég tel mig þó geta bætt mig enn
meira sem framherji og unnið í
ýmsum þáttum sem gerir mig að
enn betri leikmanni.“
Jón Daði og Kolbeinn Sigþórs-
son náðu mjög vel saman í áður-
nefndum leik gegn Tyrkjum og
sá fyrrnefndi segir það frábært
að spila með sóknarmann eins og
Kolbein sér við hlið.
„Við erum ólíkir leikmenn.
Hann er virkilega góður í að halda
boltanum og er sterkur í teignum.
Ég er aðeins meira léttleikandi og
er úti um allt. Fyrir leikinn fórum
við mjög vel yfir hvað við ætluð-
um að gera og náðum að fylgja því
eftir. Vonandi verður framhald á
því.“
Leikur Lettlands og Íslands
hefst á Skonto-leikvanginum
klukkan 18.45 í kvöld og verður í
beinni textalýsingu á Vísi.
FÓTBOLTI Jón Daði Böðvarsson
gerði sér manna best grein fyrir
því, þegar byrjunarlið Íslands
í leiknum gegn Tyrklandi í síð-
asta mánuði var kynnt, að flestir
myndu staldra við nafn hans.
Þessi 22 ára Selfyssingur á
ekki langan landsliðsferil að baki
og hafði aðeins komið við sögu
í þremur vináttulandsleikjum
áður en stóra tækifærið kom gegn
Tyrkjum. Jón Daði nýtti tæki-
færið til hins ýtrasta, átti stórleik
og skoraði fyrsta markið í mögn-
uðum 3-0 sigri Íslands.
„Þetta hefur verið litríkt og
skemmtilegt,“ sagði Jón Daði
við Fréttablaðið á hóteli lands-
liðsins í Ríga í gær. Jón Daði og
félagar hans verða í eldlínunni í
kvöld þegar þeir mæta Lettlandi
á Skonto-leikvanginum. Miðað við
frammistöðu Jóns Daða er erfitt að
taka hann út úr byrjunarliðinu, þó
svo að Alfreð Finnbogason sé nú
kominn til baka eftir sín meiðsli.
„Ég hef alltaf haft það á tilfinn-
ingunni að Lars [Lagerbäck] og
Heimir [Hallgrímsson, landsliðs-
þjálfarar] séu ánægðir með mig.
Þeir sýndu mér mikið traust með
því að gefa mér tækifæri gegn
Tyrkjum og það var frábært að
finna fyrir því.“
Enginn í fýlu í landsliðinu
Jón Daði var einnig ánægður með
að fá tækifæri til að sýna sig og
sanna fyrir stuðningsmönnum
íslenska landsliðsins. „Ég skynjaði
það alveg að ég væri ekki þekkt-
asti maðurinn í liðinu og bjóst við
að einhverjir myndu ekki þekkja
nafnið mitt. Það var því frábært að
ná að sýna þeim að maður er góður
í fótbolta og ekki langt frá hinum í
Við erum ólíkir
leikmenn. Hann er
virkilega góður í að
halda boltanum og er
sterkur í teignum. Ég er
aðeins meira léttleikandi
og er úti um allt.
Jón Daði um muninnn á honum og
Kolbeini Sigþórssyni.
Eiríkur Stefán
Ásgeirsson
eirikur@frettabladid.is
Valgarður
Gíslason
valli@365.is
Frá Riga í Lettlandi
➜ Aldrei unnið tvo
fyrstu leikina
Íslenska karlalandsliðið hefur
aldrei unnið tvo fyrstu leiki sína
í undankeppni EM eða HM. Liðið
er nú í fimmta sinn í þeirri stöðu
að mæta í leik tvö með sigur á
bakinu en hefur tapað í sömu
stöðu í öll hin fjögur skiptin. - óój
LEIKUR TVÖ EFTIR SIGUR
Í FYRSTA LEIK Í UNDAN-
KEPPNUM HM OG EM
UNDANKEPPNI EM 2016
Fyrsti leikur: 3-0 sigur á Tyrklandi
Annar leikur: Á móti Lettlandi í
kvöld
Dagar á milli leikja: 31
UNDANKEPPNI HM 2014
Fyrsti leikur: 2-0 sigur á Noregi
Annar leikur: 0-1 tap fyrir Kýpur
Dagar á milli leikja: 4
UNDANKEPPNI EM 2008
Fyrsti leikur: 3-0 sigur á Norður-
Írlandi
Annar leikur: 0-2 tap fyrir
Danmörku
Dagar á milli leikja: 4
UNDANKEPPNI EM 1992
Fyrsti leikur: 2-0 sigur á Albaníu
Annar leikur: 1-2 tap fyrir Frakk-
landi
Dagar á milli leikja: 98
UNDANKEPPNI HM 1986
Fyrsti leikur: 1-0 sigur á Wales
Annar leikur: 0-3 tap fyrir Skotlandi
Dagar á milli leikja: 35
Líður best á toppnum
Jón Daði Böðvarsson sló í gegn í sínum fyrsta mótsleik með A-landsliði karla en hann skoraði eitt marka Íslands
í 3-0 sigrinum á Tyrkjum. Hann gerði sér grein fyrir því að hann var ekki þekktasta nafnið á skýrslunni.
FÓTBOLTI Ísland mætir Lett-
landi í Riga í kvöld en á
blaðamannafundi landsliðs-
ins sagði Lars Lagerbäck,
annar þjálfaranna, að hann
hefði ekki orðið var við
vanmat í íslenska leik-
mannahópnum.
Landsliðið vann í
síðasta mánuði frá-
bæran 3-0 sigur á
Tyrkjum og mætir
í kvöld lemstruðu
liði Lettlands sem
er talsvert lægra
skrifað á styrk-
leikalista FIFA.
„Það er oft erf-
itt að takast á við
væntingarnar, bæði
hjá leikmönnum og
aðilum sem standa
utan liðsins,“ sagði
Lagerbäck á fundin-
um í gær. „Væntingar
aukast með velgengn-
inni og þá er auðvelt að
halda að við séum betri
en við erum.“
Lagerbäck er minn-
ugur þess að íslenska
liðið átti slæma leiki
í síðustu undan-
keppni og hefur
ítrekað verið
r æ t t u m
tapleikinn í
Kýpur sem
kom nokk r-
um dögum eftir
góðan sigur á Noregi.
„Þetta verður því próf-
raun fyrir okkur – að sýna
að við getum átt tvo góða
leiki í röð.“ Hér fyrir ofan
er gengi liðsins undir
hans stjórn í næsta alvöru
leik eftir sigur.
Lagerbäck hefur áður
haft orð á því að leikurinn
gegn Tyrklandi hafi verið
einn sá besti sem hann hafi
upplifað á sínum 37 ára þjálf-
araferli.
„Þetta er það sem mér finnst
svo athyglisvert við fótbolta –
að reyna að komast að því hvað
það var sem olli því að liðið small
svona vel saman. Og af hverju það
ætti ekki að geta gert það í hverj-
um leik.“
En hann ítrekar að einbeiting
og þolinmæði séu lykilatriði.
„Við ætlum okkur til Frakklands
en til þess þurfum við að klára
níu leiki til viðbótar.“ - esá
Prófraun fyrir liðið
Lars Lagerbäck vill fá annan góðan leik hjá Íslandi.
NÆR HANN AÐ FYLGJA EFTIR
DRAUMABYRJUNINNI?
Jón Daði Böðvarsson á hótelinu
í Ríga í gær.
11. sept 2012: 0-1 tap á móti Kýpur
16. október 2012: 0-2 tap á móti Sviss
7. júní 2013: 2-4 tap á móti Slóveníu
11. október 2013: 2-0 sigur á Kýpur
15. október 2013: 1-1 jafntefli við Noreg
10. október 2014: Mæta Lettum í kvöld
Samtals: 1 sigur, 1 jafntefli, 3 töp
Næsti keppnisleikur
eftir sigurleik í tíð
Lars Lagerbäck
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SPORT