Fréttablaðið - 13.10.2014, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 13.10.2014, Blaðsíða 1
FRÉTTIR MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup apríl-júní 2014 Mánudagur 12 VATNSKÖNNURSpænski hönnuðurinn Patricia Urquiola hefur hannað könnur sem nota má á veit-ingahúsum í Bilbao. Innblásturinn sótti hún til hefðbundinna trékanna sem not-aðar hafa verið í Baskalandi um aldir. Þ etta er tiltölulega ný þjónusta hjá okkur en við hreinsum húsgögn fyrir stofnanir og fyrirtæki,“ útskýrir Daníel Einarsson, framkvæmdastjóri Hreinsanda ehf. „Við hreinsum sófasett og stóla af bið-stofum, setustofum og fyrirlestrasölum, skrifstofustóla og fleira. Hægt er að fá lánaða stóla hjá okkur á meðan verið er að hreinsa húsgögnin en öll hreinsun fer fram í húsnæði okkar að Eldshöfða 1 Þ hvið fullk ÞRIF Á STÓLUM FYRIR FYRIRTÆKIHREINSANDI KYNNIR Hreinsandi býður fyrirtækjum og stofnunum upp á þrif á húsgögnum. Hreinsandi bæði sækir húsgögnin á staðinn og skilar og hægt er að fá lánuð húsgögn á meðan hreinsun stendur yfir. DJÚPHREINSUN Hreinsandi ehf. annast djúphreinsun á stólum og sófum fyrir fyrirtæki og stofnanir. Húsgögnin eru sótt á staðinn, þau djúphreinsuð og þurrk-uð og keyrð aftur í hús. M Y N D /PJET U R FASTEIGNIR.IS 13. OKTÓBER 2014 41. TBL. Fasteignasalan Fold hefur til sölu glæsilegt parhús við Bakkavör, á frábærum stað sunnanmegin í jaðri Valhúsahæðar á Seltjarnarnesi. Húsið er 315 fm, á tveimur hæðum með bílskúr. 1. hæð: Anddyri er flísalagt g með fataskápum, komið frá því í parketlagt alrými með sjávar- útsýni til suðurs. Herbergin eru þrjú á neðri hæðinni og eru þau öll parketlögð. Mögulegt er að hafa fleiri svefnherbergi á fyrstu hæð- inni og einnig auðvelt að útbúa þar Glæsileg eign á útsýnisstað Finnbogi Hilmarsson lögg. fasteignasali Bogi Pétursson lögg.fasteignasali Finndu okkur á Facebook Suðurlandsbraut 22 | Opið mán. – fös. frá kl. 9–17 | www.heimili.is Ásdís Írena Sigurðardóttir skjalagerð Gústaf Adolf Björnsson lögg. fasteignasali Stefán Már Stefánsson sölufulltrúi Guðbjörg G. Blöndal lögg. fasteignasali Brynjólfur Snorrason sölufulltrúi 2 SÉRBLÖÐ Fasteignir | Fólk Sími: 512 5000 13. október 2014 240. tölublað 14. árgangur SKOÐUN Varlega þarf að fara í laxeldi, segir Elín Hirst alþingismaður. 12 MENNING Maðurinn sem hataði börn er skemmtileg og hárbeitt ádeila. 18 LÍFIÐ Ylfa Helgadóttir tók þátt í Food and Fun og var boðið að elda á Michelin-stað. 20 SPORT Fótboltalandsliðið mætir stjörnum prýddu liði Hollands í kvöld. 22 Opið allan sólarhringinn í Engihjalla, Vesturbergi og Arnarbakka Sími 512 4900 landmark.is STJÓRNSÝSLA Ríkið veit ekki hversu mikil starfsmannavelta er hjá ráðu- neytum og stofnunum. Engar upp- lýsingar liggja fyrir um fjarvistir og ríkið vinnur ekki spár um manna- aflaþörf fyrir næstu ár eða áratugi. Gunnar Björnsson, skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu og forstöðu- maður kjara- og mannauðsskrifstof- unnar, segir að mannekla valdi því að ekki eru teknar saman tölur um starfsmannaveltu. „Við höfum lítið komist í þetta vegna þess að við erum ekki nógu mörg. Við hefðum gjarnan viljað vera með miklu betri tölfræði varðandi starfs- mannamál,“ segir Gunnar. Að sögn Gunnars eru menn ekki á eitt sáttir um hvernig eigi að skil- greina starfsmannaveltu. „Við höfum lengi ætlað að vinna þessar skilgreiningar en ekki komist til þess,“ segir hann. Ekki er heldur til miðlæg skrán- ing um fjarvistir hjá ríkinu. „Það er hvergi hægt að fá yfirsýn yfir það hversu margir veikindadagar eru hjá ríkinu,“ segir Gunnar og bætir við að ríkið geri heldur ekki neinar mannaflaspár. „Það eru engar spár til um hversu marga ríkisstarfsmenn gæti vantað til starfa á næstu árum og áratugum eða hvernig samsetning hópsins þyrfti að vera.“ Gunnar segir að menn finni verulega fyrir þörfinni á því að taka saman betri upplýsingar um starfsmannamálin. „Það er stöðugt verið að biðja um upplýsingar um starfsmannamálin,“ segir Gunnar sem ítrekar að tölurnar séu til en það vanti fólk til að vinna þær. - jme / sjá síðu 8 Allt á huldu um veikindi og starfsmannaveltu hjá ríkinu Mannekla veldur því að upplýsingar vantar um starfsmannaveltu og fjarvistir og að ekki eru gerðar spár um mannaflaþörf hjá ríkinu. Mikil þörf er á þessum upplýsingum, segir skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu. NEYTENDAMÁL Gert er ráð fyrir að það kosti 745 krónur á dag að fæða hvern einstakling, í frumvarpi fjármálaráðherra um breytingar á virðisaukaskatti. Hver fjölskylda verji rúmlega 2.980 krónum í öll matarinnkaup á dag. Þessar tölur eru byggðar á neyslukönnun Hagstofu Íslands. Miðað er við hjón með tvö börn, annað yngra en sjö ára. Bryndís Loftsdóttir, varaþing- maður Sjálfstæðisflokksins, segist ósammála þeim tölum sem lagð- ar eru til grundvallar í frumvarpi fjármálaráðherra. Hún verji tveim- ur milljónum í mat á ári. Bryndís á mann og þrjú börn á aldrinum sex til ellefu ára. Í frumvarpinu er hins vegar gert ráð fyrir að fjögurra manna fjölskylda verji 988 þúsund krónum í mat og drykk. Bryndís er ósátt við breytingar á virðisaukaskattsfrumvarpinu. „Það er nokkuð ljóst að boðuð einföldun mun ekki þýða lægri útgjöld fyrir almenning. Matvæli og aðrar vörur sem nú bera sjö prósent virðis- aukaskatt munu samviskusamlega hækka í verði í takt við hækkun á virðisauka og að auki um nokkrar krónur og tíkalla umfram það,“ segir Bryndís. - jhh / sjá síðu 4 Varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins efast um forsendur fjárlagafrumvarps: Áætla matarkostnað allt of lágt Það er hvergi hægt að fá yfirsýn yfir það hversu margir veikindadag- ar eru hjá ríkinu. Gunnar Björnsson, forstöðumaður kjara- og mannauðsskrifstofu fjármálaráðuneytisins. Það er nokkuð ljóst að boðuð einföldun mun ekki þýða lægri útgjöld fyrir almenning. Bryndís Loftsdóttir húsmóðir og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins. Bolungarvík 3° NNV 6 Akureyri 2° S 2 Egilsstaðir 3° SSA 2 Kirkjubæjarkl. 3° A 3 Reykjavík 3° VNV 3 Bjart með köflum víða en slydduél eða él norðvestanlands og skúrir með suðausturströndinni. Fremur hægur vindur og hiti 0 til 6 stig. 4 Hætta undir Norðurljósum Íbúar í Bláskógabyggð hafa áhyggjur af þeirri hættu sem þeir segja að skapist er rútur stoppi á miðjum vegi og hleypi ferðamönnum út til að horfa á norðurljósin. 2 Berum ekki flutninga Icelandair mun fjölga ferðum í 9.800 á næsta ári. Þær voru 4.900 fyrir fimm árum. Landið er almennt illa búið undir stóraukna flutninga. 6 Styrkja uppbyggingu á Gaza Evrópusambandið og Bandaríkin ætla að verja jafnvirði nærri 100 milljarða króna til uppbyggingar á Gasasvæð- inu. Fjölmörg önnur ríki leggja sitt af mörkum en Ísrael situr hjá. 10 Tilbúinn í dóm Uppljóstrarinn Edward Snowden segir að hann vildi gjarnan fara til Bandaríkjanna og mæta þar fyrir dómara ef réttarhöldin yrðu opin. 11 FRÉTTABLAÐ IÐ /VILH ELM HOLLENSKAR STJÖRNUR Arjen Robben og Robin van Persie og liðsfélagar þeirra í hollenska landsliðinu æfðu á Laugardalsvelli í gærkvöldi. Hollendingar mæta í kvöld íslensku landsliði sem er á miklum skriði í undankeppni Evrópumótsins. Sjá síðu 22.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.